Forsetinn sendir Grindvíkingum skilaboð

Nú reiðum við okkur á vís­inda­fólk, segir Guðni Th. Jóhann­es­son.

Forsetinn sendir Grindvíkingum skilaboð

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son, sendi lands­mönnum kveðju rétt í þessu vegna eld­goss á Suð­ur­nesjum sem hófst fyrr í kvöld. Grind­vík­ingar fengu sér­stak­lega hlýja kveðju frá for­set­anum. 

„Góðir lands­menn. Eldgos er hafið í grennd við Grinda­vík. Ekki er ljóst hvaða usla það getur valdið en nú reiðum við okkur á vís­inda­fólk okkar auk allra þeirra sem þurfa að sinna eft­ir­liti og öðrum aðgerðum. Framar öllu verndum við manns­líf en sinnum öllum vörnum mann­virkja eftir bestu getu. Ég sendi sem fyrr hlýjar kveðjur til Grind­vík­inga og þeirra sem nú sinna störfum á vett­vangi. Og að sjálf­sögðu ber fólki að fylgja öllum til­mælum Almanna­varna á þess­ari hættu­stundu.“

GosiðMynd sem Land­helg­is­gæslan tók á vett­vangi fyrr í kvöld.
For­sæt­is­ráð­herraHugsar með hlý­hug til fólks­ins á svæð­inu.

Fyriri klukku­tíma sagði for­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, að ljóst væri að um væri að ræða tölu­vert gos. Í færslu hennar sagði að eld­gos væri hafið á Reykja­nesskaga milli Sýl­ing­ar­fells og Haga­fells en rým­ing hefur staðið yfir í Grinda­vík frá 10. nóv­em­ber. „Nú sjáum við jörð­ina opn­ast og getum þakkað fyrir alla okkar góðu við­bragðs­að­ila og vís­inda­menn sem hafa vaktað þetta svæði und­an­farnar vikur og mán­uði. Varn­ar­garðar eru langt komnir sem mun geta skipt veru­legu máli en ég mælti fyrir frum­varpi um heim­ild til að reisa slíka garða strax í kjöl­far rým­ingar. Hugur okkar er hjá heima­fólki nú sem fyrr, við vonum það besta en ljóst má vera að þetta er tölu­vert gos. Mik­il­vægt er að veita við­bragðs­að­ilum rými til að vinna sína vinnu og fylgja leið­bein­ingum um umferð.“

Frá Skerja­firðiKatrín birti þessa mynd frá Skerja­firði með færsl­unni.

 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár