Paradís er víða og hvergi

Miðað við þessa bók er Abdulrazak Gurnah sann­ar­lega verð­ugur Nóbels­verð­launa­hafi. Mergjuð saga um Afríku sem við þekkjum flest alltof lítið, Afríku fyrir hvíta mann­inn, sögð af mik­illi sagna­gleði.

Paradís er víða  og hvergi
Bók

Paradís

Höfundur Abdulrazak Gurnah Þýðandi: Helga Soffía Einarsdóttir
Angústúra
331 blaðsíða
Niðurstaða:

Mergjuð saga um Afríku sem við þekkjum flest alltof lítið, Afríku fyrir hvíta manninn, sögð af mikilli sagnagleði. Persónugalleríð er eftirminnilegt og sögusviðið birtist manni ljóslifandi í huganum við lesturinn.

Gefðu umsögn

Margir höfðu á orði að Abdulrazak Gurnah væri einn óvænt­asti Nóbels­verð­launa­hafi síð­ari ára fyrir rúmum tveimur árum, en honum er ágæt­lega lýst í kynn­ing­ar­texta Para­dísar (og enn nákvæmar í prýði­legum eft­ir­mála þýð­anda): Hann „fædd­ist árið 1948 á eyj­unni Zanzibar, sem síðar varð sjálf­stjórn­ar­hérað í Tansaníu. Faðir hans og frændi voru kaup­menn frá Jemen, af arab­ískum upp­runa, og Abdulrazak flúði heima­landið í kjöl­far Zanzibar-bylt­ing­ar­innar þegar arab­ískum stjórn­völdum var steypt af stóli. Hann fékk hæli í Englandi árið 1968, lagði stund á bók­menntir en hóf sam­hliða skriftir vegna þess að hann fann fyrir heim­þrá. Hann notar skrift­irnar sem tæki til að skilja og skrá hlut­skipti flótta­manns­ins, rót­leysið, marg­klofna sjálfs­mynd­ina og ein­mana­leik­ann sem því getur fylgt.“

Þessir hlutir marka sann­ar­lega Paradís, en í bók­inni sýnir hann okkur enn fremur þá Afríku sem var til staðar löngu fyrir komu Evr­ópu­búa, Afríku þar sem Arabar og Ind­verjar voru stundum í hlut­verki nýlendu­herra en líka stundum í hlut­verki föru­manna í Afríku sem var þá þegar afskap­lega fjöl­þjóð­leg, þótt hún væri ekki enn þá orðin hvít að ráði. Allavega ekki þarna, á þeim slóðum sem nú er Tansanía. Hvíti mað­ur­inn er rétt að byrja að sölsa undir sig þennan hluta álf­unnar, hann vofir yfir, en bókin lýsir þó miklu frekar hinstu and­vörpum þess­arar ver­aldar áður en hvíti mað­ur­inn mætir. Þótt hann sé mættur, hann er bara ekki orð­inn alltum­lykj­andi enn þá.

„Hann notar skrift­irnar sem tæki til að skilja og skrá hlut­skipti flótta­manns­ins, rót­leysið, marg­klofna sjálfs­mynd­ina og ein­mana­leik­ann sem því getur fylgt.“

Og miðað við þessa bók er Gurnah sann­ar­lega verð­ugur Nóbels­verð­launa­hafi. Lesendur Salman Rushdie kann­ast kannski við frá­sagn­ar­stíl­inn, því texti Rushdie er oft eins og end­ur­tekin helj­ar­stökk þar sem honum tekst ein­hvern veg­inn ítrekað að lenda á löpp­unum. Það er vissu­lega meiri ró yfir texta Gurnah, en þó miklu meiri hasar en hjá dæmi­gerðum hvítum Evr­ópu­höf­undum. Hér birt­ist okkur lit­ríkt per­sónugall­erí, allt séð með augum öreig­ans Yusuf, sem er tólf ára í upp­hafi sögu en þroskast yfir í stálp­aðan og lífs­reyndan ung­ling í gegnum bók­ina.

Upp­á­halds­per­sónan mín var svo bif­véla­virk­inn Kalasinga, sem nær í raun tvisvar að kjarna bók­ina ágæt­lega. Gott dæmi er þessi setn­ing: „Það býr þarna mzungu,“ sagði Kalasinga og prump­aði ánægju­lega og blygð­un­ar­laust.“ Þarna birt­ist okkur karní­val­ísk gleði bók­ar­innar sem og áreynslu­lausar slett­urnar úr afrískum, ind­verskum og arab­ískum málum. Það er orða­skrá í lok bókar, en oft­ast dugar þó sam­hengið til að maður átti sig á merk­ing­unni. 

Hann útskýrir líka titil bók­ar­innar ágæt­lega. „Ég verð í Paradís að ríða öllu sem hreyf­ist, Allahwallah, á meðan eyði­merk­urguð­inn þinn pyntar þig fyrir allar þínar syndir,“ svar­aði Kalasinga hress í bragði.“ Þessi para­dís er nefni­lega grodda­leg og grimm og trú­ar­brögðin, í fleir­tölu, er hvers­dags­legur hluti manna sem blóta samt og syndga eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn. Þá er líka skemmti­leg pæl­ing að láta helsta spek­ing sög­unnar vera bif­véla­virkja, á þessum árum rétt fyrir fyrri heims­styrj­öld þegar bílar voru enn þá ansi nýmóð­ins upp­finn­ing, sér­stak­lega við rætur fjalls­ins mikla (sem maður reiknar með að sé Kilimanjaro, þótt það sé ekki tekið fram).

Yusuf finnur þó hvergi para­dís. Hann er hnepptur í þræl­dóm í upp­hafi bókar, tek­inn upp í skuldir föð­ur­ins, og þvælist því bara með straumi sög­unnar, vilja­laus, en kemst þó furðu langt að virð­ist á óvenju­legri feg­urð og ágætum gáfum. Hann er í raun Forrest Gump sög­unnar, mun klár­ari en Forrest vissu­lega, en dæmdur til að ber­ast með straumi sög­unnar, og hann áttar sig á þessum harmi sínum:

„Þær dæmdu hann allar fyrir að van­rækja sjálfan sig. Atburðir höfðu rekið dag­ana áfram og hann hafði haldið sér á floti og ein­blínt á næstu sjón­ar­rönd, kosið fáfræði í stað von­lausrar vit­neskju um hvað ætti fyrir honum að liggja. Honum datt ekk­ert í hug sem hann gæti gert til að losa sig úr fjötrum þess lífs sem hann lifði.“

Enda ófrjáls, eins og birt­ist best í sög­unni um aldr­aða þræl­inn sem var boðið frelsi en kaus þess í stað að halda áfram að sinna garði meist­ara síns; í hans útgáfu sög­unnar er það hans frelsi, hann telur sjálfum sér trú um að hann væri nú þegar frjáls að sinna garð­inum af ástríðu. En um leið veit hann líka að án meist­ar­ans bíður hans bara gatan.

„Veistu hvers vegna þeir eru svona sterkir? Vegna þess að þeir hafa hámað í sig heim­inn öldum saman.“
Úr Paradís

Um leið á þessi lýs­ing Yusuf merki­lega vel við okkur frjálsa nútíma­menn, okkur sem getum samt alveg orðið föst í vinnu eða sam­bandi eða í átt­haga­fjötrum vegna skulda, fátæktar eða skuld­bind­inga, við sem skynjum alveg stundum ófrelsi þrælsins í eigin helsi, þótt við séum marg­falt frjáls­ari.

Eða eins og hann orðar það síðar meir: „Við stritum, hættum öllu, búum langt frá fólk­inu okkar ... og erum samt sem áður blá­fá­tækir og hræddir eins og mýs.“

Okkur birt­ist hér kap­ít­al­ismi, vinnu­þrælkun og órétti sem var til staðar löngu áður en Evr­ópu­búar tóku álf­una yfir. Þeir koma vissu­lega við sögu, eru auð­vitað löngu búnir að taka yfir önnur svæði í Afríku og eru hægt og rólega að auka ítök sín á þessu svæði. „Veistu hvers vegna þeir eru svona sterkir? Vegna þess að þeir hafa hámað í sig heim­inn öldum saman. Röflið í þér á ekki eftir að stoppa þá,“ segir á einum stað, og oft er þeim líkt við ára og djöfla. En kaup­mað­ur­inn og þræla­hald­ar­inn Aziz sér þó að þeir eru ekki svo ólíkir honum sjálfum. „Þeir eru hér af sömu ástæðu og þú og ég.“

Með öðrum orðum; þeir eru nú þegar staddir í mein­gall­aðri para­dís. En sú para­dís á bara eftir að versna.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár