„Við viljum frekar að ákvörðunin komi að ofan“

Bragi Valdimar Skúlason, for­maður FTT, segir mik­il­vægt að ákvörð­unin um að draga sig út úr Eurovision komi frá RÚV svo að ábygðin sé ekki sett á ein­stak­ling­ana um að taka þátt. Hann segir félagið vilja að það sama verði látið ganga yfir Ísrael núna og Rússa í fyrra. Það sé rétt­læt­is­mál.

„Við viljum frekar að ákvörðunin komi að ofan“
Eurovision Í fyrra fengu Rússar ekki að taka þátt í Eurovision vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu. Kallað hefur verið eftir því að það sama gangi yfir Ísrael vegna átak­anna á Gasa­svæð­inu. Mynd: EPA

„Okkur finnst skipta gríð­ar­lega miklu máli að þessi ákvörðun komi frá RÚV. Því ef þetta er óbreytt þá mun fólk draga sig út – tón­list­ar­fólk og lista­fólk. Við viljum frekar að RÚV taki þessa ákvörðun heldur en að þetta sé sett á hvern og einn – sem er þá kannski í klípu á milli þess að fylgja sam­visk­unni og að sjá tæki­færi til að stíga á stóra sviðið úti. Við viljum frekar að ákvörð­unin komi að ofan.“

Þetta segir Bragi Valdimar Skúlason, for­maður félags tón­skálda og texta­höf­unda (FTT), í sam­tali við Heim­ild­ina. Félagið hefur sent áskorun til útvarps­stjóra og stjórnar RÚV um að hætta við þátt­töku Íslands í Eurovision til að mót­mæla fyr­ir­hug­aðri þátt­töku Ísraels í keppn­inni.

Bragi segj­ast skilja vel að RÚV bíði svara og ákvarð­ana frá þeim sem halda keppn­ina úti. „En ef eng­inn gerir neitt þá aukast lík­urnar á því að það verði ekk­ert gert,“ segir hann.

„Þetta er fyrst og fremst réttlætismál“

Í fyrra hót­uðu Finnar að draga sig úr keppni væri Rússum leyft að keppa. „Það varð til þess að það kom þrýst­ingur á að Rússar yrðu ekki með. Ef ein­hver tekur skrefið þá getur það sett þrýst­ing,“ segir Bragi.

Hann útskýrir að stjórnin líti kannski ekki á þetta sem póli­tískar yfir­lýs­ingar. „Þetta er fyrst og fremst rétt­læt­is­mál. Við viljum að það sama verði látið ganga yfir Ísrael núna eins og Rússa í fyrra. Ekkert flókn­ara en það. Svo það sé ekki ein­hver tví­skinn­ungur í því,“ segir Bragi.

Hann segir það hafa verið ein­hug í stjórn FTT að senda áskor­un­ina. „Auðvitað eru skiptar skoð­anir um þetta. En almennt í okkar röðum virð­ist vera tekið vel í þetta.“ Hann segir að félags­fólk hafi skorað á stjórn­ina að aðhaf­ast eitt­hvað. Það sé svo ann­arra að taka ákvarð­an­irnar. „Við erum alla­vega búin að gera þetta.“

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Valberg Öfjörð skrifaði
    Mér finnst þetta afskaplega merkileg setning, "Við viljum frekar að RÚV taki þessa ákvörðun heldur en að þetta sé sett á hvern og einn – sem er þá kannski í klípu á milli þess að fylgja samviskunni og að sjá tækifæri til að stíga á stóra sviðið úti. Við viljum frekar að ákvörðunin komi að ofan". Afhverju þarf fólk að vera í "klípu" með þessa ákvörðun? Er þetta ekki nokkuð augljóst hvað þarf að gera.
    0
  • Thorunn Ravn skrifaði
    Þá er bara að fá listamann sem er upprunalega frá Palestínu flytja atriðið á arabísku
    2
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Hér vísar hver sinni ábyrgð á næsta mann. Félagsmenn varpa ábyrgð sinni á stjórn FTT og stjórnin varpar henni be4int yfir til útvarpsstjóra f.h. stjórnar RÚV OHF. Og útvarpsstjóri varpar ábyrgðinni til þeirra sem stjórna hjá Samtökum evrópskra útvarpsstöðva. Mér finnst þetta leikrit afspyrnu lélegt og þeim til skammar sem að þessu koma. Hvað er svona erfitt við að taka siðferðislega afstöðu sem manneskja gegn þjóðarmorði Ísraelskra ráðamanna gegn paletínsku þjóðinni? Skammist ykkar!
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár