Tónskáld og textahöfundar skora á RÚV að sniðganga Eurovision ef Ísrael er með

Félag þeirra sem semja lög og texta laga sem taka þátt í und­ankeppni Eurovision á Íslandi leggst gegn þátt­töku Íslands í keppn­inni nema Ísrael verði meinuð þátt­taka. „Við skuldum þeim þjóðum sem fara fram með offorsi í krafti hern­að­ar­máttar ekki að deila með þeim sviði á við­burði sem alla jafna ein­kenn­ist af gleði og bjart­sýni.“

Tónskáld og textahöfundar skora á RÚV að sniðganga Eurovision ef Ísrael er með
Formaður Bragi Valdimar Skúlason, for­maður stjórnar FTT, er einn þeirra sem skrifar undir áskor­un­ina. Mynd: Aðsend

Stjórn, félags tón­skálda og texta­höf­unda (FTT), sendi seint í gær­kvöldi áskorun til Stefáns Eiríks­sonar útvarps­stjóra og stjórnar RÚV þar sem hún skorar á RÚV að taka ekki þátt í Eurovision árið 2024 nema Ísraelum verði meinuð þátt­taka í keppn­inni á sömu for­sendum og Rússum í síð­ustu keppni. 

Í áskor­un­inni segir: „Okkur er öllum skylt að taka afstöðu gegn stríði og morðum á óbreyttum borg­urum sem sak­lausum börnum. Við höfum alltaf val um að leggja ekki nafn okkar við slíkt hvort sem við erum ein­stak­lingar eða stofn­anir rík­is­ins. Við skuldum þeim þjóðum sem fara fram með offorsi í krafti hern­að­ar­máttar ekki að deila með þeim sviði á við­burði sem alla jafna ein­kenn­ist af gleði og bjart­sýni.“

Undir áskor­un­ina skrifar öll stjórn FTT. Í henni sitja Bragi Valdimar Skúlason for­maður, Védís Hervör Árna­dóttir vara­for­maður, Sóley Stef­áns­dóttir, Ragn­heiður Gröndal, Andri Ólafsson, Hallur Ing­ólfs­son og Hildur Kristín Stef­áns­dóttir.

FTT var stofnað sem óform­legur sam­ráðs­vett­vangur árið 1981 af höf­undum hryntón­listar og texta­gerðar á Íslandi. Félagið starf­aði óform­lega fyrstu tvö árin, en frá form­legu stof­nári 1983 hefur það víða látið til sín taka og eflt sam­stöðu meðal höf­unda.

Í FTT eru nú 450 höf­undar og er félagið annað tveggja aðild­ar­fé­laga STEFs, Sambands tón­skálda og eig­enda flutn­ings­réttar. Hitt félagið er Tón­skálda­fé­lag Íslands, vett­vangur þeirra sem starfa á vett­vangi klass­ískrar tón­listar. Því er um að ræða félag þeirra tón­skálda og texta­höf­unda sem lík­leg­astir eru til þess að taka þátt í Söngvakeppni RÚV, sem er und­ankeppni Eurovision á Íslandi. 

Segir RÚV ekki hafa skoðun á átökunum

Stefán Eiríks­son sagði í sam­tali við Heim­ild­ina í gær að afstaða RÚV gagn­vart þátt­töku Ísrael í Eurovision sé „á sömu línu og EBU og ann­ara almanna­þjón­ustu­miðla.“ Það eigi bæði við um ákvörðun sam­bands­ins um reka Rússland úr söngvakeppn­inni, og svo þeirrar að leyfa Ísrael að halda áfram að taka þátt í söngvakeppn­inni. 

Margir hafa stigið fram og gagn­rýnt þessa ákvörðun RÚV. Þar á meðal rit­höf­und­ur­inn Bragi Páll sem vakti athygli á gjör­ó­líkri afstöðu útvarps­stjóra gagn­vart  þátt­töku Rúss­lands ann­ars vegar og gagn­vart Ísrael hins vegar. Í færsl­unni lýsir Bragi þessu sem „tvö­földu sið­gæði.“

Spurður út í þessa gagn­rýni þar sem bent er á þessa ólíku stefnur RÚV sagði Stefán við Heim­ild­ina í gær að „RÚV hefur engar sér­stakar skoð­anir á þessum átökum per se, við erum bara að tala þarna um söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva og það sem að henni snýr. Þannig það er alveg skýrt, RÚV hefur ekki það hlut­verk að taka afstöðu.“

Stefán sagði enn fremur að hlut­verk RÚV sé fyrst og fremst að flytja fréttir gæta þess að sá frétta­flutn­ingur sé hlut­laus og hlut­lægur eins og lög kveða á um.

Tæplega sjö þús­und manns hafa skrifað undir lista þar sem skorað er á RÚV að draga sig úr keppni. Útvarps­stjóri hefur þegar til­kynnt að RÚV muni ekki bregð­ast við þess­ari áskorun. Stefnt er að því RÚV taka þátt í keppn­inni eins það hefur gert síðan 1986.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Auðvitað, það má alltaf reiðsig á alvöru tónlistarfólk. Höldum okkar eigin keppni og bjóðum þeim sem taka afstöðu á móti stríði að vera með❤️
    Treysti fáum betur til að skipuleggja slíkt. Og Rúnar Freyr er alvanur að halda utanum slíka keppni
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár