Gagnrýndi skurðlækninn á Klíníkinni í bréfi: „Veit ekkert hvaða áhrif þessi ákvörðun mun hafa á líf mitt“

Geir­þrúður Gunn­hild­ar­dóttir greind­ist með krabba­mein í árs­byrjun 2021 og fór þremur dögum seinna í maga­ermis­að­gerð hjá Aðal­steini Arn­ars­syni á Klíník­inni. Nokkrum mán­uðum síðar, þegar hún var búin að jafna sig aðeins á sjokk­inu sem hún varð fyrir, skrif­aði hún honum bréf og gagn­rýndi lækn­is­með­ferð­ina sem hún fékk.

 Þurfti strax að fá aðstoð á ríkisreknum stofnunum
 Þurfti strax að fá aðstoð á rík­is­reknum stofn­unum Eftir að hafa farið í maga­erm­ina á Klíník­inni þurfti Geir­þrúður Gunn­hild­ar­dóttir að fá heil­brigð­is­þjón­ustu á Land­spít­al­anum, bæði sjúkra­hús­inu sjálfu og eins á sjúkra­hót­el­inu.

„Enda veit ég ekk­ert hvernig þessi ákvörðun mun end­an­lega hafa áhrif á mitt líf til fram­tíðar,“ sagði Geir­þrúður Gunn­hild­ar­dóttir, 48 ára gömul kona, í bréfi til skurð­lækn­is­ins Aðal­steins Arn­ars­sonar sem hún hafði farið í maga­ermis­að­gerð hjá í árs­byrjun 2021. Bréfið var sent í tölvu­pósti segir hún. Heim­ildin fjallar um mál Geir­þrúðar í nýjasta tölu­blaði sínu og greinir frá upp­lifun hennar af þjón­ustu Klíník­ur­innar sem hún lýsir sem „kaldri“ og líkir við að vera í „verk­smiðju“. 

„Eftir á að hyggja var þetta mjög slæm ákvörðun.“
Geir­þrúður Gunn­hild­ar­dóttir,
48 ára gömul kona sem er búsett á Akureyri.

Í bréf­inu, sem hún sendi til Aðal­steins um sum­arið 2021, sagði Geir­þrúður við Aðal­stein að hann hefði ekki átt að gera skurð­að­gerð­ina á henni þar sem hún var nýbúin að grein­ast með krabba­mein þegar hún fór í hana og að afleið­ing­arnar hafi verið miklar fyrir hana:  „Á þeim tíma er ég í hálf­gerðu sjokki vegna þess að ég hafði verið greind með krabba­mein vik­una áður, sem ég sagði þér frá, og finnst mér að þú hefðir þá ekki átt að taka þá ákvörðun um að fram­kvæma þessa aðgerð.“ Hún fór svo í upp­skurð vegna krabba­meins­ins rúmum mán­uði eftir aðgerð­ina. 

Viðtalið er hluti af umfjöllun Heim­ild­ar­innar um þá þöglu einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu sem fer nú fram í ráð­herra­tíð Willums Þórs Þórs­sonar. Eftir að hann tók við sem heil­brigð­is­ráð­herra í lok árs 2021 hafa verið tekin ný skref í einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu, eins og lið­skipta­að­gerðir einka­að­ila með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands, og hefur Willum Þór boðað enn frek­ari breyt­ingar í þessa átt. Ein af þessum fyr­ir­hug­uðu breyt­ingum er að efna­skipta­gerðir, eins og maga­ermis­að­gerðin sem Gunn­hildur fór í, verði gerðar með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands af einka­fyr­ir­tækjum eins og Klíník­inni. Raunar er Klíníkin eina einka­fyr­ir­tækið sem gerir slíkar efna­skipta­að­gerðir hér á landi.  

Bað um að þurfa ekki að borga fyrir aðgerðina

Í bréf­inu fór Geir­þrúður fram á það við Aðal­stein að hún yrði ekki rukkuð fyrir aðgerð­ina þar sem hún hefði haft svo slæm áhrif á heilsu­far hennar. Geir­þrúður greiddi tæp­lega 1300 þús­und krónur fyrir aðgerð­ina en þar með var ein milljón á rað­greiðslu­láni sem hún er ennþá að borga af. Rað­greiðslu­lánið sem hún tók var til þriggja ára.

Í bréf­inu sagði Geir­þrúður um þetta: „Eftir á að hyggja var þetta mjög slæm ákvörðun, þar sem krabba­meins­með­ferðin ein og sér veldur miklum erf­ið­leikum við að nær­ast hvað þá heldur eftir maga­ermis­að­gerð­ina. Þá hefur mitt ástand verið mjög alvar­legt og ég er inniliggj­andi á spít­ala með nær­ingu í gegnum sondu. Nú er svo komið að fjár­hags­leg staða mín hefur snar­versnað vegna krabba­meins­með­ferð­ar­innar og tel ég, í ljósi aðstæðna, rétt­læt­an­legt af minni hálfu að fara fram á við þig að þú rukkir mig ekki fyrir þessa aðgerð.“

Í sam­tali við Heim­ild­ina segir Geir­þrúður að hún hafi sent bréfið nokkrum mán­uðum eftir aðgerð­ina þegar hún var byrjuð að jafn sig eftir það sjokk sem krabba­meins­grein­ingin, maga­ermin og krabba­meins­með­ferðin hafi verið í lífi. „Þarna var ég aðeins að ranka við mér,“ segir hún. 

Hún segir að svarið sem hún fékk frá Aðal­steini hafi verið stutt og að hann hafi bent henni á að tala við til­tekið trygg­inga­fé­lag vegna máls­ins.  Geir­þrúður hélt því áfram að greiða fyrir magermis­að­gerð­ina og er enn að því. Hún seg­ist ekki eiga svar­bréfið frá Aðal­steini þar sem hún hafi lík­lega eytt því. 

Fram­kvæmda­stjóri Klíník­ur­innar, Sigurður Ingi­bergur Björns­son, hefur ekki viljað veita Heim­ild­inni við­tal þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir um það.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eft­ir­lits­mál gegn Klíník­inni

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands hefur ekki svarað spurn­ingum sem Heim­ildin sendi henni fyrir tveimur mán­uðum síðan. Engin svör hafa borist um af hverju spurn­ing­unum hefur ekki verið svarað. Meðal spurn­inga er hvort Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafi opnað eft­ir­lits­mál gegn einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni líkt og Heim­ildir herma.
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Willum opnar á meiri einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu: „Þannig aukum við skil­virkni“

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra svarar spurn­ingum um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Klíníkin hefur í auknum mæli fengið til sín aðgerðir sem áður voru bara fram­kvæmdar á rík­is­reknum sjúkra­húsum. Skriður hefur kom­ist á þessa einka­rekstr­ar­væð­ingu eftir að Willum Þór tók við emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra.

11 mín. lestur

FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­væð­ing í heil­brigð­is­kerf­inu: Fram­lengja umdeildan samn­ing við Klíník­ina á grund­velli aðgerð­a­r­eynslu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands ætla að fram­lengja samn­ing um lið­skipta­að­gerðir sem gerður var í mars við Klíník­ina og Cosan. Samn­ing­ur­inn mun byggja á því hversu margar aðgerðir þessi fyr­ir­tæki náðu að gera á þessu ári. Klíníkin gerði langstærstan hluta þeirra 700 aðgerða sem gerðar voru með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands og munu því fá stærstan hluta af þessum aðgerðum.
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Nýsköpun í heil­brigð­is­kerf­inu og tengsl rikis­stjórn­ar­innar og Klíník­ur­innar

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir nýsköp­un­ar­ráð­herra tala með sam­bæri­legum hætti um mik­il­vægi nýsköp­unar fyrir heil­brigð­is­kerfið. Á sama tíma liggur fyrir að fram­kvæmda­stjóri Klíník­ur­innar, Sigurður Ingi­bergur Björns­son, er að taka við rekstri dótt­ur­fé­lags hjá Klíník­inni sem mun sér­hæfa sig í nýsköpun í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár