Þessi grein birtist fyrir rúmlega 8 mánuðum.

Lýsir Klíníkinni sem verksmiðju: „Ekki verið að hugsa um manneskjuna heldur peninginn“

Geir­þrúð­ur Gunn­hild­ar­dótt­ir, 48 ára göm­ul kona sem greind­ist með krabba­mein ár­ið 2021, fór í maga­ermis­að­gerð á Klíník­inni. Hún seg­ist ekki hafa hitt neinn starfs­mann Klíník­ur­inn­ar fyr­ir að­gerð­ina og ekki feng­ið neina eft­ir­með­ferð. Geir­þrúð­ur þurfti að nýta þjón­ustu rík­is­rekna Sjúkra­hót­els­ins og leita til Land­spít­al­ans eft­ir að­gerð­ina af því hún var svo veik.

Lýsir Klíníkinni sem verksmiðju: „Ekki verið að hugsa um manneskjuna heldur peninginn“
Ætlar að leita til Landlæknis Geirþrúður Gunnhildardóttir ætlar að leita til embættis Landlæknis út af meðferðinni sem hún fékk á Klíníkinni þegar hún fór í magaermi þar í ársbyrjun 2021. Mynd: Aníta Eldjárn Kristjánsdóttir

Geirþrúður Gunnhildardóttir, 48 ára gömul fjögurra barna móðir sem býr á Akureyri, fór í magaermisaðgerð hjá Aðalsteini Arnarsyni, skurðlækni á Klíníkinni, í ársbyrjun 2021, þremur dögum eftir að hafa fengið að vita að hún væri með 3. stigs brjóstakrabbamein. Hún fór svo í skurðaðgerð á Landspítalanum vegna krabbameinsins rúmum mánuði eftir að hafa farið í magaermina. Þá hafði hún verið hundveik og þurft að fá heilbrigðisþjónustu á Sjúkrahóteli Landspítalans og á sjúkrahúsinu sjálfu eftir aðgerðina. „Ég fór í brjóstnám vegna krabbameinsins þann 10. mars. Ég var enn þá að jafna mig eftir magaermisaðgerðina þarna og í kjölfarið á krabbameinsaðgerðinni gat ég ekki borðað í meira en fjóra mánuði og þurfti að nota sondu til að nærast, segir Geirþrúður í viðtali við Heimildina. 

„Mér leið bara eins og ég væri í einhverri verksmiðju“
Geirþrúður Gunnhildardóttir,
48 ára krabbameinssjúk kona um aðgerðina sem hún fór í á Klíníkinni

Geirþrúður segir að …

Kjósa
50
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkratryggingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eftirlitsmál gegn Klíníkinni
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands svara ekki hvort opn­uð hafi ver­ið eft­ir­lits­mál gegn Klíník­inni

Rík­is­stofn­un­in Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands hef­ur ekki svar­að spurn­ing­um sem Heim­ild­in sendi henni fyr­ir tveim­ur mán­uð­um síð­an. Eng­in svör hafa borist um af hverju spurn­ing­un­um hef­ur ekki ver­ið svar­að. Með­al spurn­inga er hvort Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands hafi opn­að eft­ir­lits­mál gegn einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni líkt og Heim­ild­ir herma.
Willum opnar á meiri einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu: „Þannig aukum við skilvirkni“
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Will­um opn­ar á meiri einka­væð­ingu í heil­brigðis­kerf­inu: „Þannig auk­um við skil­virkni“

Will­um Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra svar­ar spurn­ing­um um einka­væð­ingu í heil­brigðis­kerf­inu með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­ið Klíník­in hef­ur í aukn­um mæli feng­ið til sín að­gerð­ir sem áð­ur voru bara fram­kvæmd­ar á rík­is­rekn­um sjúkra­hús­um. Skrið­ur hef­ur kom­ist á þessa einka­rekstr­ar­væð­ingu eft­ir að Will­um Þór tók við embætti heil­brigð­is­ráð­herra.
Mánaðarlöng þögn ráðuneytisins og Sjúkratrygginga
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Mán­að­ar­löng þögn ráðu­neyt­is­ins og Sjúkra­trygg­inga

Heil­brigð­is­ráðu­neyti Will­ums Þórs Þórs­son­ar og Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands hafa lát­ið ógert að svara spurn­ing­um um einka­væð­ingu lið­skipta­að­gerða í einn mán­uð. Nú stend­ur fyr­ir dyr­um að fram­lengja samn­ing­inn um lið­skipta­að­gerð­irn­ar fyr­ir lok þessa árs og fá sér­staka fjár­veit­ingu til þess.
Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Framlengja umdeildan samning við Klíníkina á grundvelli aðgerðareynslu
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­væð­ing í heil­brigðis­kerf­inu: Fram­lengja um­deild­an samn­ing við Klíník­ina á grund­velli að­gerðareynslu

Sjúkra­trygg­ing­ar Ís­lands ætla að fram­lengja samn­ing um lið­skipta­að­gerð­ir sem gerð­ur var í mars við Klíník­ina og Cos­an. Samn­ing­ur­inn mun byggja á því hversu marg­ar að­gerð­ir þessi fyr­ir­tæki náðu að gera á þessu ári. Klíník­in gerði lang­stærst­an hluta þeirra 700 að­gerða sem gerð­ar voru með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Ís­lands og munu því fá stærst­an hluta af þess­um að­gerð­um.
Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu og tengsl rikisstjórnarinnar og Klíníkurinnar
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Ný­sköp­un í heil­brigðis­kerf­inu og tengsl rikis­stjórn­ar­inn­ar og Klíník­ur­inn­ar

Will­um Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir ný­sköp­un­ar­ráð­herra tala með sam­bæri­leg­um hætti um mik­il­vægi ný­sköp­un­ar fyr­ir heil­brigðis­kerf­ið. Á sama tíma ligg­ur fyr­ir að fram­kvæmda­stjóri Klíník­ur­inn­ar, Sig­urð­ur Ingi­berg­ur Björns­son, er að taka við rekstri dótt­ur­fé­lags hjá Klíník­inni sem mun sér­hæfa sig í ný­sköp­un í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár