Willum opnar á meiri einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu: „Þannig aukum við skilvirkni“
Sjálf­stæði Sjúkra­trygg­inga Íslands Stað­hæf­ingar Willums Þórs Þórs­sonar heil­brigð­is­ráð­herra um sjálf­stæði Sjúkra­trygg­inga Íslands frá ráðu­neyt­inu fara gegn heim­ildum sem benda til hins gagn­stæða: Að ráðu­neytið stýri ákvarð­ana­töku stofn­un­ar­innar oft og tíðum. Sigurður Helgason, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands, er hér með ráð­herr­anum að skrifa undir samn­ing.

Willum opnar á meiri einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu: „Þannig aukum við skilvirkni“

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra svarar spurn­ingum um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Klíníkin hefur í auknum mæli fengið til sín aðgerðir sem áður voru bara fram­kvæmdar á rík­is­reknum sjúkra­húsum. Skriður hefur kom­ist á þessa einka­rekstr­ar­væð­ingu eftir að Willum Þór tók við emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra.

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra segir að það komi til greina að semja um að fleiri aðgerða­teg­undir, eins og til dæmis efna­skipta­að­gerðir við offitu, verði gerðar utan Land­spít­ala – háskóla­sjúkra­húss og greiddar af íslenska rík­inu. Eina einka­fyr­ir­tækið sem gerir slíkar efna­skipta­að­gerðir, maga­ermar og hjá­veitu­að­gerðir, er Klíníkin í Ármúla. Þetta kemur fram í svörum sem aðstoð­ar­maður Willums Þórs sendi til Heim­ild­ar­innar fyrir hans hönd.  

Hann segir þó að ekki hafi verið tekin ákvörðun um að útvista þessum aðgerðum en að það sé mögu­legt. „Í til­vitn­uðu við­tali [við­tali sem birt­ist í Lækna­blað­inu í nóv­em­ber] segir ráð­herra að það kæmi til greina, að semja um kaup á lýð­heilsu­tengdum aðgerðum. Þ.e.a.s. lið­skipta­að­gerðir, aðgerðir á auga­steinum, kven­að­gerðir og hrygg­að­gerðir og efna­skipta­að­gerðir. Sú ákvörðun liggur ekki fyrir en yrði tekin í góðu sam­ráði og sam­tali við stjórn­endur Land­spít­ala“, segir í svör­unum frá Willum Þór. 

Samkvæmt heil­brigð­is­ráð­herra getur frek­ari útvistun á lækn­is­að­gerðum til einka­fyr­ir­tækja aukið skil­virkni …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkratryggingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eftirlitsmál gegn Klíníkinni
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eft­ir­lits­mál gegn Klíník­inni

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands hefur ekki svarað spurn­ingum sem Heim­ildin sendi henni fyrir tveimur mán­uðum síðan. Engin svör hafa borist um af hverju spurn­ing­unum hefur ekki verið svarað. Meðal spurn­inga er hvort Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafi opnað eft­ir­lits­mál gegn einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni líkt og Heim­ildir herma.
Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Framlengja umdeildan samning við Klíníkina á grundvelli aðgerðareynslu
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­væð­ing í heil­brigð­is­kerf­inu: Fram­lengja umdeildan samn­ing við Klíník­ina á grund­velli aðgerð­a­r­eynslu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands ætla að fram­lengja samn­ing um lið­skipta­að­gerðir sem gerður var í mars við Klíník­ina og Cosan. Samn­ing­ur­inn mun byggja á því hversu margar aðgerðir þessi fyr­ir­tæki náðu að gera á þessu ári. Klíníkin gerði langstærstan hluta þeirra 700 aðgerða sem gerðar voru með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands og munu því fá stærstan hluta af þessum aðgerðum.
Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu og tengsl rikisstjórnarinnar og Klíníkurinnar
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Nýsköpun í heil­brigð­is­kerf­inu og tengsl rikis­stjórn­ar­innar og Klíník­ur­innar

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir nýsköp­un­ar­ráð­herra tala með sam­bæri­legum hætti um mik­il­vægi nýsköp­unar fyrir heil­brigð­is­kerfið. Á sama tíma liggur fyrir að fram­kvæmda­stjóri Klíník­ur­innar, Sigurður Ingi­bergur Björns­son, er að taka við rekstri dótt­ur­fé­lags hjá Klíník­inni sem mun sér­hæfa sig í nýsköpun í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár