Hver var Jósefína?

Napóleon Bónap­arte elskaði hana og hún leikur stórt hlut­verk í kvik­mynd Ridley Scotts um Frakka­keisar­ann umdeilda. En Jósefína, eða Rose Tascher, var ekki síður umdeild sjálf.

Ég skemmi áreið­an­lega ekk­ert fyrir þeim sem eiga eftir að sjá stór­mynd Ridley Scotts um Napóleon þótt ég upp­lýsi hér og nú að í mynd­inni er fyrri kona Kor­síku­manns­ins knáa, hin fræga Jósefína, látin spila heil­mikla rullu, ekki aðeins í einka­lífi hans heldur virð­ist Scott á því að hún hafi einnig skipt sköpum um feril hans og fram­gang allan. Í mynd­inni eru bæði Jósefína og Napóleon látin segja að hann, sem lagði undir sig nær alla Evrópu, hafi verið „ekk­ert“ án hennar og hún vildi gjarnan fá að ráða meiru en ein­ungis á heima­velli og í svefn­her­berg­inu.

Í lok mynd­ar­innar virð­ist Jósefína meira að segja þeirrar skoð­unar að hún hefði staðið sig betur við land­stjórn­ina en Napóleon þegar hún segir að „næst“ skuli þau skipta um hlut­verk – og hún fái þá að ráða.

…

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár