Harmurinn undir textanum

Ljóð­mæl­and­inn er örverpið sem bókin er kennd við. Yngsta barnið í þess­ari fjöl­skyldu sem þarf að laga sig að breyttum veru­leika. Í ákaf­lega fáum orðum eru tjáðar stórar og miklar til­finn­ingar. Örvænt­ingin er vand­lega tempruð og tamin, hvers­dags­mynd­irnar látnar tala sínu máli og harm­ur­inn skil­inn eftir undir text­anum, fyrir les­and­ann að finna.

Harmurinn undir textanum
Bók

Örverpi

Höfundur Birna Stefánsdóttir
Benedikt bókaútgáfa
93 blaðsíður
Niðurstaða:

Birna Stefánsdóttir kann þá list að segja margt og mikið í fáum orðum. Örverpi er tregablandið og fallegt verk. Stíll höfundar er ákaflega knappur, hver síða er nánast eins og minnismiði, um minni sem er að glatast.

Gefðu umsögn

Í þessu afar stutta verki er sagt frá fjöl­skyldu sem stendur frammi fyrir heila­bilun heim­il­is­föð­ur­ins. Með hvers­dags­legum setn­ingum er brugðið upp myndum af því hvernig mað­ur­inn smám saman glatar færn­inni til þess að sinna dag­legu lífi og hvernig það hefur áhrif á fólkið hans. 

Örverpi eftir Birnu Stef­áns­dóttur hlaut Bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar fyrr á þessu ári. Á inn­an­verðri kápu má sjá rök­stuðn­ing dóm­nefndar, en þar segir meðal ann­ars að Örverpi hafi verið „val­inn stíll sem er um leið mynd af sjálfu við­fangs­efn­inu, hverf­ist um gloppur og eyður og hvernig við fyllum í þær með eigin til­veru og hug­myndum“.

Það eru einmitt þessar eyður og gloppur sem gera Örverpi heill­andi. Aldrei er vikið að því orði að ástandið sé erfitt, sorg­legt eða átak­an­legt. Fjarvera til­finn­inga­sem­innar er helsta ein­kenni verks­ins. 

Ljóð­mæl­and­inn er örverpið sem bókin er kennd við. Yngsta barnið í þess­ari fjöl­skyldu sem þarf að laga sig að …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár