Héldu brúðkaup í skugga náttúruhamfara

„Það var mjög skrítið. Þetta fór allt öðru­vísi en við ætl­uðum,“ segir Elín Ósk Ein­ars­dóttir frá Grinda­vík sem gifti sig og sló upp veislu á laug­ar­dag, dag­inn eftir að þeim hjónum var gert að yfir­gefa heim­ilið sitt.

Héldu brúðkaup í skugga náttúruhamfara
Nýbökuð hjón Nýbökuð brúð­hjón hjálp­ast að við flytja nauð­synjar frá Grinda­vík. Hér réttir Elín eig­in­manni sínum kassa. Mynd: Golli

Elín Ósk Ein­ars­dóttir og Róbert Leó Guð­jóns­son giftu sig á laug­ar­dag, dag­inn eftir að heima­bær þeirra var rýmdur sökum jarð­skjálfta og eld­gosa­hættu. 

Þrír mán­uðir eru síðan Elín Ósk Ein­ars­dóttir og Róbert Leó Guð­jóns­son tóku ákvörðun um að ganga í hjóna­band. Dagurinn var festur niður, laug­ar­dag­inn 11. nóv­em­ber. Þau gátu hins vegar ekki séð fyrir að þennan laug­ar­dag­inn yrði búið að rýma heima­bæ­inn þeirra vegna nátt­úru­ham­fara. 

Elín Ósk var sam­ferða ljós­mynd­ara Heim­ild­ar­innar í björg­un­ar­sveit­ar­bíl á leið inn í Grinda­vík, þangað sem hún var að sækja helstu nauð­synjar og sjó­galla eig­in­manns­ins, sem er sjó­maður hjá Gjögri, sem gerir út frá Grenivík en landar í Grinda­vík. Það var skrítin til­finn­ing að koma aftur inn í bæinn, nú þegar allt er ein­hvern veg­inn breytt. 

„Á föstu­dag ætl­uðum við að und­ir­búa mat fyrir veisl­una í Grinda­vík en út af skjálft­unum færðum við okkur yfir til Kefla­víkur og gerðum það þar. Við komum …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár