„Maður veit ekkert hvað maður á eftir að eiga eftir þetta“

Snædís Ósk Guð­jóns­dóttir yfir­gaf heim­ili sitt í Grinda­vík í gær með börnin, hund­inn og eina ferða­tösku. Hún ætl­aði bara í bíltúr en veit nú ekk­ert hvenær hún getur snúið aftur heim. Hvort það verði eitt­hvað „heim“ að snúa til.

„Maður veit ekkert hvað maður á eftir að eiga eftir þetta“
Fjöl­skyldan Snædís Ósk Guð­jóns­dóttir og Bogi Adolfs­son ásamt börn­unum sínum þremur: Selmu Líf, Guðjóni Darra og Margréti Jöru. Mynd: Úr einkasafni

„Ég stóð fyrir utan húsið og það voru ægi­leg læti. Þetta var bara við­bjóður, hrist­ist allt og skalf og smellir í öllu. Óhugn­an­legt. Svo ég hugs­aði: Þetta er ekki að gera sig. Ég er farin.“

Þannig lýsir Snædís Ósk Guð­jóns­dóttir, þriggja barna móðir sem býr í Grinda­vík, því þegar hún ákvað í gær­kvöldi að yfir­gefa heim­ili sitt. Hún ætl­aði reyndar bara í bíltúr en hefur ekki farið heim síðan. Núna er hún stödd í sum­ar­bú­stað vin­konu sinnar í Gríms­nesi ásamt tveimur yngri börn­unum. Eig­in­mað­ur­inn, Bogi Adolfs­son, er að vinna. Hann er for­maður björg­un­ar­sveit­ar­innar Þor­bjarnar. Elsta dóttirin er í Vatna­skógi.

Hún seg­ist inni­lega þakk­lát vin­konu sinni sem hafi boðið henni skjól. „Ég verð klökk að sjá þetta,“ segir hún um við­brögð lands­manna við rým­ing­unum í Grinda­vík. „Fólk er bara til­búið að opna heim­ili sín fyrir blá­ó­kunn­ugu fólki. Þetta er svo geggjað.“

Skjálftar á nóttunni

Snædís er fædd og upp­alin í Grinda­vík. Heimili fjöl­skyld­unnar er í Norð­ur­hópi, ofar­lega í nýju hverfi í bænum. „Þetta hafa verið miklu stærri og óþægi­legri skjálftar,“ segir hún um jarð­skjálfta­hr­inu síð­ustu daga sam­an­borið við þær sem urðu í aðdrag­anda eld­gos­anna við Fagra­dals­fjall. „Þeir hafa líka oft verið á nótt­unni.“

Hún talar um „ógeðisnótt­ina“ –  aðfara­nótt síð­asta fimmtu­dags þar sem mikil virkni hófst upp úr mið­nætti og stöðugir skjálftar tóku við. Sú nótt hafi í einu orði sagt verið skelfi­leg. „Þá var ég alltaf að hugsa: Á hvaða tíma­punkti á ég að fara? Er ég kæru­laus? Ég sá að það voru engir að fara svo ég ákvað að vera.“

En henni leið ekki vel. Lítið sem ekk­ert var sofið þá nótt. Og ekki tók betra við síð­degis í gær, föstu­dag, þegar öflug og stöðug hrina hófst með enn frek­ari óvissu þar sem skjálft­arnir átt upp­tök sín víðar og nær Grinda­vík.

Smellir í öllu

Um klukkan 18 í gær tók Snædís börnin og hund­inn og fór út í bíl. „Ég þorði ekki að vera inni í hús­inu lengur. Treysti mér ekki til þess. Ég stóð fyrir utan húsið og það voru ægi­leg læti. Þetta var bara við­bjóður, hrist­ist allt og skalf og smellir í öllu. Óhugn­an­legt. Svo ég hugs­aði: Þetta er ekki að gera sig. Ég er farin. Ég ætl­aði bara að fara á smá rúnt. En áður en ég vissi af var ég stödd á Suð­ur­stranda­veg­inum og á leið til Reykja­víkur.“

Hún hafði fátt með­ferðis, aðeins eina tösku sem hún hafði pakkað niður í nokkrum dögum áður og geymt í bílnum. Í henni er aðal­lega að finna föt til skipt­anna.

Veskislaus

Snædís er að vinna á sam­býli í Grinda­vík og þannig vildi til að hún átti að fara á næt­ur­vakt í gær­kvöldi. Þegar hún var á Reykja­nes­braut­inni á leið til vinnu, eftir að hafa komið börnum og hundi fyrir í pössun, var sam­býlið hins vegar rýmt. Allur bær­inn var svo rýmdur og orð­inn mann­laus snemma nætur. Snædís snéri við á Reykja­nes­braut­inni og brun­aði aftur til barn­anna. „Ég er ekki með veskið mitt. Engin lyf, engin úti­föt á börnin eða neitt,“ útskýrir hún. Enda hafði hún aðeins ætlað í bíltúr.

Hún veit ekki enn hvort og þá hvenær hún getur snúið aftur á heim­ili fjöl­skyld­unnar til að sækja það sem þau vantar. Bogi maður hennar verður hins vegar á ferð­inni vegna starfa fyrir björg­un­ar­sveit­ina og gæti mögu­lega sótt eitt­hvað, segir hún von­góð. „Maður veit ekk­ert hvað maður á eftir að eiga eftir þetta,“ segir hún um heim­ilið og allt það sem þar er að finna. Búslóð, myndir, jóla­gjafir sem hún var búin að kaupa og þar fram eftir göt­unum. „Maður veit eig­in­lega ekki neitt.“

Gengur á adrenalíni

Í augna­blik­inu seg­ist Snædís vera að ganga á „ein­hverjum adrena­lín­birgðum. „Svo er spurn­ing hvað ger­ist þegar þær eru búnar. Hvort að maður krassi bara. Ég veit það ekki.“ Á sama tíma og hún búi við alla þessa óvissu reyni hún að halda and­lit­inu gagn­vart börn­unum til að valda þeim ekki óþarfa ótta.

„Ég veit ekki hvort eða hvenær ég á að mæta aftur í vinn­una. Það eru alveg ótelj­andi spurn­ingar sem sækja á mann.“

Yngri dóttir Snædísar og Boga er 9 ára og hún hefur verið mjög hrædd, „hún stirðnar bara upp í skjálft­unum“. Sonur þeirra, 11 ára, virð­ist litlar áhyggjur hafa og eldri dóttirin sem er sautján er vel upp­lýst og með­vituð um aðstæður.

„Ég veit eig­in­lega ekki hvernig manni á að líða,“ heldur Snædís áfram. „Ég er auð­vitað orðin alveg frétta­sjúk, les allt sem ég get. Það eru engin tak­mörk á skjá­tíma núna.“

Hvað svo?

Bogi náði að hvíla sig í nótt að sögn Snædísar, fékk gist­ingu hjá vini sínum í Njarðvík. En hann var vakn­aður snemma og mættur á fund í slökkvi­stöð­inni í Keflavík. Þetta er ekki óþekkt staða í fjöl­skyld­unni, Snædís seg­ist hafa verið grasekkja vikum saman í fyrsta gos­inu við Fagra­dals­fjall. „Þá var hann aldrei heima,“ rifjar hún upp. Hún seg­ist auð­vitað hafa haft fullan skiln­ing á því. „Og ætli þetta verði ekki eitt­hvað svipað.“

Spurð hvort hún hafi áhyggjur af eig­in­mann­inum ofan á allt saman seg­ist hún í sjálfu sér ekki hafa þær. „Ég veit vel að ef ein­hverjir fara var­lega þá er það björg­un­ar­sveit­ar­fólk.“

Hvað tekur við hjá Snædísi og börn­unum er álíka óvíst í dag og það var í gær. „Ég veit ekki hvort eða hvenær ég á að mæta aftur í vinn­una. Það eru alveg ótelj­andi spurn­ingar sem sækja á mann. Kannski verð ég kölluð til vinnu í fjölda­hjálp­ar­stöð, þar sem íbúar af sam­býl­inu voru fluttir í gær. Ég bara veit það ekki.“

Að fá skjól í sum­ar­bú­stað vin­kon­unnar reynd­ist mikið lán fyrir Snædísi sem gat loks sofið. „Ég hrein­lega vissi ekki af mér frá því ég sofn­aði um þrjú í nótt og þar til klukkan níu í morgun,“ segir hún. „En um leið og ég opn­aði augun þá hrökk ég upp og stökk á fætur, greip sím­ann og fór að fletta í gegnum fréttir og skila­boð.“

Þegar Snædís heyrði af því að rýma ætti allan bæinn seg­ist hún hafa verið fegin. „Mér var ekk­ert farið að lít­ast á þetta. Ég var stöðugt að hugsa til fólks­ins á elli­heim­il­inu og á sam­býl­inu, hvernig því liði, hvers það ætti eig­in­lega að gjalda að þurfa að þola þetta. Þess vegna varð ég bara fegin að heyra af rým­ing­unni. Að fólkið hefði verið flutt úr þessum aðstæðum og væri ekki í hættu.“

Sprunga hafi t.d. mynd­ast í hús­næði elli­heim­il­is­ins, nán­ast klofið húsið í tvennt. Móðir Snædísar var þar á vakt í gær­kvöldi er sem mest gekk á. „Og þetta var svaka­legt.“

Eins og í bíómynd

Þrátt fyrir að hafa þurft að skilja allt sitt eftir í Grinda­vík er sú stað­reynd ekki efst í huga Snædísar. „Þetta eru allt dauðir hlutir. Það skiptir öllu máli að fólkið sé heilt.“ Hún við­ur­kennir þó að gott væri að fá ýmsa hluti af heim­il­inu, ekki síst það sem börn­unum til­heyri.

Rétt áður en sam­tali Snædísar við blaða­mann lauk var komið að upp­lýs­inga­fundi almanna­varna sem hún ætl­aði vissu­lega að horfa á. „Ég held að maður sé ekki ennþá búinn að átta sig á því hvað er að ger­ast. Þetta er bara eins og í ein­hverri bíó­mynd.“

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næturlangt í Grindavík þótt lögreglan mæli ekki með því
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
Tímabært að verja Reykjanesbraut
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár