„Mér fannst mig vanta hlátur inn í líf mitt“

Ásta Valdi­mars­dóttir hlát­urjóga­kenn­ari segir mik­il­vægt að hlæja og að það sé hægt að nýta sér hlátur til gagns í hvers­dags­legu lífi. Hlat­urjóga hefur breytt miklu í hennar lífi. Ilmur Krist­jáns­dóttir leik­kona segir það mik­il­vægt að deila gleð­inni með öðru fólki.

„Mér fannst mig vanta hlátur inn í líf mitt“
Að hlæja Léttir á fólki og getur bætt and­lega líðan sam­kvæmt við­mæl­endum sem leggja mikið upp úr því að halda fast í gleð­ina.

Hvenær fórst þú síð­ast að hlæja? Var það áðan, í gær eða kannski í síð­ustu viku? Það er fátt betra en að fá hlát­ur­skast í góðra vina hópi. Alls kyns leiðir eru til að fá bæði sjálfa sig og aðra til að hlæja. Það má til dæmis gera með því að segja góðan brand­ara, rifja upp skemmti­lega minn­ingu eða jafn­vel með hlát­urjóga.

Deilum gleðinni

Ilmur Krist­jáns­dóttir hefur fram­kallað hlátur hjá fjölda­mörgum áhorf­endum í gegnum störf sín sem ein ást­sælasta leik­kona lands­ins.

„Það léttir svo á,“ segir Ilmur aðspurð hvers vegna það skipti hana máli að hlæja sjálf og fá aðra til að hlæja. „Það besta er að fá annað fólk til að hlæja og að hlæja með öðrum líka.“ Hún segir hlátur einnig oft og tíðum geta veitt aðgang inn í hjörtu fólks á erf­iðum tímum. 

Ilmur Krist­jáns­dóttirÍ hlut­verki sínu í geysi­vin­sælu þátt­unum Ófærð.
„Það besta er að fá annað fólk til að hlæja og að hlæja með öðrum líka“
Ilmur Krist­jáns­dóttir

Til að halda í húmor­inn í gegnum hvers­dags­leik­ann telur Ilmur mik­il­vægt að vera í sam­skiptum við annað fólk. „Vera alltaf í stöð­ugum sam­skiptum við fólk, það er eina leiðin.“ 

Það er henni mik­il­vægt að deila gleð­inni með öðru fólki og hún nefnir dæmi um auð­velda leið til að gera það: „Ef maður sér eitt­hvað fyndið, að senda það þá á ein­hvern, alls konar svo­leiðis. Bara að deila gleð­inni.“

Spurð hvernig hún myndi lýsa sínum eigin húmor svarar Ilmur létti­lega: „Ég hlæ til dæmis alltaf að því ef fólk mis­mælir sig, ruglar ein­hverjum orðum eða eitt­hvað svo­leiðis. Þá hlæ ég með sjálfri mér. Svo láta vin­konur mínar mig hlæja óspart með alls konar gríni.“

„Svo láta vin­konur mínar mig hlæja óspart með alls­konar gríni“
Ilmur Krist­jáns­dóttir

Ilmur bætir því einnig við að faðir hennar sé mik­ill húmoristi. Hún rifjar upp atvik sem gerð­ist nýlega. „Ég fór með pabba upp á bráða­mót­töku og lækn­ir­inn tók hann úr sokk­unum. Þá sagði ég, þú þyrftir nú kannski að klippa á þér tánegl­urnar. Pabbi fór að skelli­hlæja og þá fór ég auð­vitað að skelli­hlæja líka. Það þurfti ekki meira.“ Hún tekur þó fram að það sé í góðu lagi með föður sinn en atvikið var dæmi um aðstæður þar sem hlátur létti á ann­ars þungu and­rúms­lofti.

Vantaði hlátur inn í lífið

Ásta Valdi­mars­dóttir hlát­urjóga­kenn­ari segir hlát­urjóga vera aðferð til að bæta líðan fólks bæði and­lega og lík­am­lega. Eftir að hún hóf að iðka hlát­urjóga um alda­mótin finnur hún mikla breyt­ingu á sínu innra lífi.

„Sumir segja að ég hafi verið brosmild hér áður fyrr en mér fannst mig vanta hlátur inn í líf mitt og þess vegna, meðal ann­ars, fór ég í hlát­urjóga og þetta hefur breytt miklu í mínu lífi. Geysi­lega miklu.

Ég er ekki eins áhyggju­full. Ég tel mig vera ekki eins for­dóma­full og ég er sátt­ari við sjálfa mig og annað fólk. Já, mér líður allri betur,“ segir Ásta ánægð. 

„Mér fannst mig vanta hlátur inn í líf mitt og þess vegna, meðal ann­ars, fór ég í hlát­urjóga og þetta hefur breytt miklu í mínu lífi“
Ásta Valdi­mars­dóttir
hlát­urjóga­kenn­ari
Ásta Valdi­mars­dóttirFann mikla breyt­ingu á sinni líðan eftir að hún byrj­aði í hlát­urjóga.

Hlát­urjóga virkar sem slíkt að fólk hlær vegna þess að það ætlar sér að hlæja. „Með því að þá á vissan hátt byrjar lík­am­inn að fram­leiða ýmis góð efni eins og end­or­fín, ser­atónín og önnur efni sem koma manni til að líða betur. Það er svo skrítið að hvort sem maður hlær að ein­skærum ásetn­ingi eða að ein­hverju sem er hlægi­legt að þá bregst lík­am­inn eins við. Síðan ef maður stundar hlát­urjóga þá verður það manni tamt að vera bros­andi og hlæj­andi því það bætir líðan,“ útskýrir Ásta.

Hlát­urjóga var þróað af ind­verskum lækni að nafni dr. Madan Katarina sem stofn­aði fyrsta hlát­ur­klúbb­inn árið 1995. Síðan þá hefur aðferðin orðið útbreidd. Sjálf lærði Ásta hlát­urjóga­kennar­ann fyrst um alda­mótin og hefur leið­beint Íslend­ingum í gegnum námið um áraraðir. „Hlát­urjóga er stundað í fjöl­mörgum löndum og núna var einmitt alþjóð­leg hlát­ur­ráð­stefna í Indlandi sem er haldin árlega.“

Hlát­urjógaÁsta nýtur þess að kenna hlát­urjóga og miðla reynslu sinni áfram.

Um þessar mundir er Ásta komin langt á leið með að kenna hlát­urjóga­nám­skeið. Aðspurð hvernig hefð­bund­inn tími í hlát­urjóga fari fram útskýrir hún að hann bygg­ist fyrst og fremst á öndun, slökun, hug­leiðslu og æfingum. „Það eru æfingar og leikir þar sem við leikum okkur eins og börn og eflum gleð­ina um leið.“

Hún nýtir hlát­urjóga í hvers­dags­lífi sínu til að takast á við nei­kvæðar hugs­anir sem kunna að sækja á hana. „Ég stund­aði slökun áður en ég kynnt­ist hlát­urjóga en hug­leiðslan var úti um allar þúfur hjá mér þannig að það sóttu oft á mig áhyggjur af ein­hverju sem gæti komið fyrir og slíkt. En ég get leitt hug­ann að öðru núna.“

Í gegnum tíð­ina hefur Ásta einnig orðið vitni að því þegar fólk nýtir hlát­urjóga í hreyf­ingu með góðum árangri. Þá hlær það á meðan það hreyfir sig til að fá sem mest út úr æfing­unni. Hún tekur þó skýrt fram að hlát­urjóga komi ekki í stað­inn fyrir lækn­ingar heldur geti það ein­ungis hjálpað í gegnum bata­ferli. 

„Ég stund­aði slökun áður en ég kynnt­ist hlát­urjóga en hug­leiðslan var úti um allar þúfur hjá mér þannig að það sóttu oft á mig áhyggjur af ein­hverju sem gæti komið fyrir og slíkt“
Ásta Valdi­mars­dóttir

Einn af stærri kostum þess að iðka hlát­urjóga er að geta gripið til þess hvenær og hvar sem er að mati Ástu. „Ef maður er á stað þar sem er fullt af fólki þá bara hugsar maður hlát­ur­inn innra með sér. Það er ótrú­legt hvað það hefur góð áhrif.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár