Borgin þarf tíma til að svara hver örlög séra Friðriks og drengsins verða

Í kjöl­far upp­ljóstrana um meint kyn­ferð­is­brot séra Friðriks Frið­riks­sonar sem um er fjallað í bók Guð­mundar Magn­ús­sonar sagn­fræð­ings um ævi og störf manns­ins sem stofn­aði Val, Hauka og KFUM á Íslandi, hafa vaknað spurn­ingar um styttu af Friðriki með dreng sér við hlið sem stendur við Lækj­ar­götu.

Borgin þarf tíma til að svara hver örlög séra Friðriks og drengsins verða
Sérann og dreng­ur­inn Styttan af Friðriki og drengnum stendur í miðbæ Reykja­víkur. Mynd: Shutterstock

Friðrik og drengirnir hans er nýút­komin bók eftir Guðmund Magn­ús­son sagn­fræð­ing og blaða­mann. Í bók­inni er fjallað um ævi og störf séra Friðriks Frið­riks­sonar, sem hylltur hefur verið sem einn mesti æsku­lýðs­leið­togi Íslands, m.a. vegna aðkomu sinnar að stofnun Vals og Hauka og KFUM á Íslandi á fyrri hluta síð­ustu aldar.

Guð­mundur greindi hins vegar frá því í við­tali í sjón­varps­þætt­inum Kiljunni í gær að Friðrik hafi beitt ungan dreng kyn­ferð­is­legu ofbeldi, leitað á og káfað á honum. Maðurinn leit­aði til Stíga­móta árið 2018 þegar afmælis Friðriks var minnst með pompi og prakt.

Dreng­ur­inn sem um ræðir er nú karl­maður um átt­rætt sem hafði sam­band við Guðmund er hann var að vinna að ævi­sögu séra Friðriks. Guð­mundur leit­aði marg­vís­legra heim­ilda við bók­ar­skrifin, m.a. í bréf séra Friðriks og sjálfsævi­sögu hans. „Ég var svo hissa á því af hverju þær hefðu ekki vakið meiri umræðu – af hverju engin þeirra hefði orðið til opin­berrar umræðu; um það hvernig hann til dæmis talar um dreng­ina sína, og drengi [almennt],“ sagði Guð­mundur í Kiljunni í gær.

Á horni Amt­manns­stígs og Lækj­ar­götu stendur stytta sem ber nafnið „Séra Friðrik og dreng­ur­inn“. Styttan er eftir Sigurjón Ólafsson mynd­höggv­ara sem nam í æsku krist­in­fræði hjá Friðriki og var hlýtt til hans, líkt og segir á vef Lista­safns Reykja­víkur.

Á stríðs­ár­unum voru þeir báðir inn­lyksa í Danmörku þar sem Sigurjón gerði höf­uð­mynd af sr. Friðriki árið 1943 „áður en það yrði um seinan“ eins og hann komst að orði. Höf­uð­myndin var til sýnis meðal ann­arra manna­mynda Sig­ur­jóns í List­vina­salnum 1952. „Vaknaði þá áhugi meðal gam­alla nem­enda sr. Friðriks á að láta reisa hinum aldna æsku­lýðs­leið­toga verð­ugt minn­is­merki og var Sigurjón sjálf­kjör­inn til verks­ins,“ segir á vef Lista­safns­ins. Valtýr Stef­áns­son, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, tók að sér fjár­söfnun vegna minn­is­merk­is­ins og samdi við yfir­völd, ríki og borg, um stað­setn­ingu þess.

Friðrik hóf að sitja fyrir hjá Sig­ur­jóni vorið 1952 og varð þá til 60 sentí­metra há for­mynd úr leir sem lista­mað­ur­inn stækk­aði til muna í Kaup­manna­höfn þá um sum­arið. „Fyr­ir­mynd drengs­ins sem stendur við hlið sr. Friðriks var ann­ars vegar tré­stytta af dreng eftir Tove, konu Sig­ur­jóns, hins vegar ungur sonur sam­starfs­manns hans,“ segir í umfjöllun um stytt­una.

Hlið við hlið

„Stelling sr. Friðriks og upp­bygg­ing verks­ins ræðst ekki ein­göngu af aldri hans og dvín­andi þrótti, heldur birt­ist í þeim næmur skiln­ingur á per­sónu og lífs­starfi kenni­manns­ins,“ segir þar enn­fremur og er svo vitnað í orð Björns Th. Björns­sonar: Með því að stilla þeim hlið við hlið, prest­inum og drengnum, og tengja þá saman með ein­faldri skipan hand­anna, tekst Sig­ur­jóni að gefa til kynna „hvílandi, góð­látan virðu­leika“ séra Friðriks og „inni­legt sam­band hans við „dreng­inn, sem eru allir drengir“,“ líkt og segir í ævi­sögu Sig­ur­jóns og vitnað er til á vef lista­safns­ins.

„Að auki er sjálft höfuð sr. Friðriks frá­bær mann­lýs­ing, þar sem allir fletir and­lits­ins bregð­ast við minnstu breyt­ingu birtunnar,“ segir á vef lista­safns­ins.

En skuggi hefur hins vegar fallið á mann­inn og stytt­una frá því að við­talið við Guðmund sagn­fræð­ing birt­ist í gær. Og margir hafa velt fyrir sér hvað gera eigi við styttu af meintum barn­a­níð­ingi og dreng sem stendur á besta stað í borg­inni.

Heim­ildin beindi fyr­ir­spurn um þetta mál til borg­ar­yf­ir­valda og fékk þau svör að málið sé nýupp­komið, að margir starfs­menn séu í fríi vegna vetr­ar­leyfa í skólum. „Við þurfum því meiri tíma til að geta svarað,“ sagði í skrif­legu svari frá upp­lýs­inga­full­trúa hjá borg­inni.

Stytta af Sevile fjarlægð

Ekki er óþekkt að styttur af mönnum sem taldir voru skara fram úr en reynd­ust níð­ingar séu felldar. Það var m.a. gert við risa­stóra styttu af sjón­varps­mann­inum Jimmy Savile. Styttan sú stóð í lysti­garði í mið­borg Glasgow en eftir að upp komst um ótelj­andi kyn­ferð­is­brot manns­ins sem taldi fólki trú um að hann væri barna­vinur mesti ákváðu for­svars­menn garðs­ins að láta fjar­lægja stytt­una. Ýmis önnur minn­is­merki um Savile voru skemmd af almennum borg­urum með ýmsum hætti áður en yfir­völd ákváðu að taka þau niður.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár