Óbærilegt æðruleysi dauðans

„Fjöldi við­mæl­enda og það hve stutt við­tölin eru reyn­ist líka vanda­mál, þau eru flest of stutt til að kom­ast virki­lega á dýpt­ina og eru end­ur­tekn­inga­söm, dauð­inn er tölu­vert fjöl­breytt­ari en hann birt­ist okkur hér,“ segir m.a. í rit­dómi um Dauðann eftir Björn Þor­láks­son.

Óbærilegt æðruleysi dauðans
Björn Þor­láks­son Fyrsta bók Björns er smá­sagna­safnið Við sem kom út árið 2001. Mynd: Pétur Fjeldsted Einarsson
Bók

Dauðinn

Höfundur Björn Þorláksson
Tindur
272 blaðsíður
Niðurstaða:

Þessi bók er eins og loforð um hólmgöngu sem fer aldrei almennilega fram. Dauðinn er enn í skugganum, þótt hann sé í titlinum. En í Mývatnssveit lifnar bókin við.

Gefðu umsögn

Blaða­maður liggur slas­aður og óvinnu­fær og fer að hug­leiða enda­lokin. Fer að lesa sér til og dettur niður á hug­leið­ingar þýska heim­spek­ings­ins Michaels Theun­is­sens um dauð­ann. Maður fer að skynja hálf­gerða ess­eyju­bók blaða­manns bland­aða við­tölum og heim­ilda­vinnu, sem hljómar eins og áhuga­vert form – og kveikjan, þessi þýski heim­spek­ingur, virkar áhuga­verður, segir „að í hans eigin dauða upp­lifi hann einnig dauða ann­arra og í dauða ann­arra upp­lifi hann eigin dauða“.

En svo er eins og hann týni þessum þræði Theun­is­sens og fari á öllu mein­laus­ari slóðir. Fjöldi við­mæl­enda og það hve stutt við­tölin eru reyn­ist líka vanda­mál, þau eru flest of stutt til að kom­ast virki­lega á dýpt­ina og eru end­ur­tekn­inga­söm, dauð­inn er tölu­vert fjöl­breytt­ari en hann birt­ist okkur hér.

Aðallega fannst mér samt vanta meiri Dylan Thomas í bók­ina. Þið þekkið þessar línur von­andi, um að ganga ekki auð­sveipur inn í nótt­ina löngu og „berj­ast, berj­ast gegn dauða ljóss­ins“ – já, eða Tolstoj, sem skrif­aði um Dauða Ivan Ilyich, magn­aða bók um hina löngu ang­ist­arnótt sál­ar­innar and­spænis dauð­anum, eins og hún birt­ist í einu ákveðnu dauða­stríði.

„Dauðinn er tölu­vert fjöl­breytt­ari en hann birt­ist okkur hér“

Nú er ég ekki bók­staf­lega að biðja um Tolstoj eða Thomas, en ég sakna þess að þessi lyk­il­þemu í glímunni við dauð­ann séu jafn lítið áber­andi og raun ber vitni, þessi ang­ist­arnótt sál­ar­innar gagn­vart enda­lok­unum, þessi örvænt­ing­ar­fulla bar­átta gegn honum. Öll eft­ir­sjáin, öll sorgin.

En í þess­ari bók birt­ist okkur fyrst og fremst enda­laust æðru­leysi Íslend­inga gagn­vart dauð­anum. Hrein­lega bug­andi æðru­leysi þegar á líður og við­tölin fara að end­ur­óma hvert annað og mig fer að gruna að þetta sé oftar en ekki æðru­leysi sem varn­ar­við­brögð, ný teg­und af þagn­ar­hjúp um dauð­ann. Ekki fara í kvik­una, tala frekar í kringum hann.

Æðru­leysi getur vissu­lega verið ein­lægt, margir fara saddir líf­daga og hafa náð sátt við guð og menn – en sem almenn regla þegar fólk stendur and­spænis dauð­anum, nei, þá eru sorgin og dauða­beyg­ur­inn ekki síður algeng – og satt best að segja mun áhuga­verð­ara við­fangs­efni. Æðru­leysi er sjaldn­ast sér­lega áhuga­vert aflestrar.

Þá eru prestar alltof fyr­ir­ferð­ar­miklir í við­mæl­enda­hópnum – og það án þess að þeir líti nokkru sinni af alvöru inn á við þegar kemur að minnk­andi vægi trú­ar­innar í sam­tím­anum. Og í bók­ina vantar alveg þá spurn­ingu hvort það sé ekki dálítið skakkt að prestar hafi enn þetta stórt hlut­verk þegar kemur að dauð­anum hjá þjóð sem verður sífellt trú­laus­ari?

Lang­bestu kaflar bók­ar­innar fjalla hins vegar ekki bein­línis um dauð­ann. Kaflar um æsku höf­undar í Mývatns­sveit, afskap­lega fornri Mývatns­sveit, um eldsum­brot og háska Kröflu­eld­anna. Þessir kaflar eiga þó á ein­kenni­legan hátt vel heima í bók um dauð­ann, því í dauð­anum spegl­ast upp­hafið og margir velta þá fyrir sér hvar þeir hafi beygt af leið eða kom­ist á réttu braut­ina – og það er heil bók þarna und­ir­liggj­andi sem væri gaman að lesa. En enda­lokin sem þessi kafli á að spegla nær sjaldn­ast raun­veru­legu flugi, til þess er æðru­leysið og presta­fjöld­inn of yfir­þyrm­andi.

„Það var erfitt að takast á við dauð­ann með sorg­ina í felum,“ stendur í miðri bók – og það reyn­ast for­spá orð, dauð­inn nær merki­lega vel að fela sig á þessum síðum þótt hann sé í titl­inum.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár