Ætti ekki að hrósa Bjarna Ben um of

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, telur að ekki ætti að hrósa Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra um of fyrir afsögn morg­uns­ins. „Því að þetta ætti að vera eðli­leg ákvörðun,“ segir Björn Leví.

Björn Leví „Í öllum eðlilegum kringumstæðum í lýðræðisríkjum er þetta tvímælalaust tilefni til afsagnar. Það hefur ekki alveg verið svona venjan hérna á Íslandi,“ segir Björn Leví.

Fjöl­margir hafa stigið fram í dag og hrósað Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála­ráð­herra og for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins í hástert, fyrir afsögn sem hann til­kynnti í morgun. Þing­maður Pírata telur ekki þörf á að hrósa Bjarna um of. 

Bjarni sagði af sér í morgun í kjöl­far birt­ingar álits Umboðs­manns Alþingis sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarni hafi verið van­hæfur til að að selja félagi í eigu föður síns, Bene­dikts Sveins­sonar, hlut í Íslands­banka í lok­uðu útboði sem fram fór í mars í fyrra.

Björn Leví Gunnsegir að afsögnin hafi komið honum „pínu“ á óvart en að álit Umboðs­manns hafi „tví­mæla­laust“ verið efni til afsagnar. 

„Í öllum eðli­legum kring­um­stæðum í lýð­ræð­is­ríkjum er þetta tví­mæla­laust til­efni til afsagnar. Það hefur ekki alveg verið svona venjan hérna á Íslandi,“ segir Björn Leví. „Þetta var ánægju­leg til­breyt­ing en kannski ekki eitt­hvað sem við ættum að hrósa um of því að þetta ætti að vera eðli­leg ákvörðun.“

„Þessi niðurstaða hefði átt að vera komin“ 

Bjarni sagði á blaða­manna­fundi í morgun að álit Umboðs­manns Alþingis hafi komið honum á óvart. Björn Leví aftur á móti segir að nið­ur­staða umboðs­manns­ins hafi ekki komið honum á óvart.

„Það voru allir í rík­is­stjórn­inni, stjórn­ar­þing­menn sem fóru í ákveð­inn varn­ar­kór og gagn­rýndu þær kröfur okkar að við vildum rann­sókn­ar­skýrslu til dæmis frá rann­sókn­ar­nefnd, sögðu að það væri byggt á ein­hverjum sandi,“ segir Björn Leví. „Það eru orð sem þau þurfa að íhuga núna og taka ákveðna ábyrgð á.“

Nú er fjár­mála­ráð­herra búinn að segja af sér, ætti [Íslands­banka­mál­inu] þá ekki bara að vera lokið, er þetta ekki bara komið gott?

„Þetta er fyrsta skrefið. Það er orðið það langt síðan að þessi nið­ur­staða hefði átt að vera komin,“ segir Björn Leví.

Viðtalið við hann í heild má nálg­ast í spil­ar­anum hér að ofan. 

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í ríkisstjórn
FréttirAfsögn Bjarna Ben

Katrín svarar því ekki hvort hún hafi hvatt Bjarna til að sitja áfram í rík­is­stjórn

For­sæt­is­ráð­herra telur langt í land með að hægt verði að ræða frek­ari banka­sölu, ólíkt frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra sem til­tók það sem sér­stakt verk­efni nýs fjár­mála­ráð­herra, á blaða­manna­fundi for­manna stjórn­ar­flokk­anna í morgun. Stjórn­ar­flokk­arnir sömdu um vopna­hlé eftir skæru­s­umar á Þing­völlum í gær.
„Ég ætti í reynd ekki annan valkost en að sitja áfram við ríkisstjórnarborðið“
FréttirAfsögn Bjarna Ben

„Ég ætti í reynd ekki annan val­kost en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið“

Bjarni Bene­dikts­son frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra telur að hann hafi ekki getað annað en að sitja áfram við rík­is­stjórn­ar­borðið, þrátt fyrir að hafa sagt af sér emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. Með því að taka sæti utan­rík­is­ráð­herra seg­ist hann vilja auka póli­tískan stöð­ug­leika, sem sé for­senda þess efna­hags­lega.
Að selja banka í góðri trú og armslengd
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Að selja banka í góðri trú og arms­lengd

Álit umboðs­manns Alþingis, sem sagði Bjarna Bene­dikts­son van­hæfan til að selja föður sínum hlut í Íslands­banka, efast ekki um stað­hæf­ingar Bjarna um „hreina sam­visku“ eða góða trú. Það snýr að því að Bjarni hafi ekki gætt að hæfi sínu með því að leyfa sér að taka áhættu um hvort hann væri að selja föður sínum hlut í banka eða ekki þegar hann kvitt­aði undir söl­una.
Armslengd frá stjórnarkreppu
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár