Spurningaþraut Illuga 6. október 2023

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 6. októ­ber.

Spurningaþraut Illuga 6. október 2023
Mynd 1 Hver er karl þessi?

1.  Umræðu­þátt­ur­inn Synir Egils hóf nýlega göngu sína ... á hvaða stöð?

2.  Drottn­ing ein sat við sauma við glugga að vetr­ar­lagi en stakk sig þá á nál svo úr blæddi. Nokkru síðar eign­að­ist hún dóttur sem hún skírði ... hvað?

3.  Hver var þjóð­höfð­ingi Englands þá William Shakespe­are hóf feril sinn?

4.  Hvað heitir þjálf­ari karla­liðs Víkings í fót­bolta?

5.  Hvaða ár stóð eld­gosið í Heimaey?

6.  Margrét Adams­dóttir heitir einn af frétta­mönnum RÚV. Að hvaða leyti var hún braut­ryðj­andi í starfi?

7.  Perlan í Reykja­vík stendur á toppi hvaða hæðar?

8.  Algengt dýr ber lat­neska fræði­heitið Sus domesticus eða jafn­vel Sus scrofa domesticus. Hvað heitir dýrið á íslensku?

9.  Víkingur Heiðar Ólafsson er nú að hefja tón­leika­röð og gefa út plötu þar sem hann leikur á píanó hin svo­nefndu Goldberg-afbrigði eftir ... hvern?

10.  Mohammed Reza Pahlavi hrakt­ist frá æðstu völdum í landi einu árið 1979 og lést ári síðar. Hvaða land var það?

11.  Þriðja fjöl­menn­asta borgin í landi einu heitir Braga. Hvaða land er það?

12.  Í nor­rænni goða­fræði var Bragi aftur á móti ... hvers konar guð?

13.  Hvað er nyrsta kaup­tún Íslands?

14.  Í hvaða bálki kemur Leia prinsessa við sögu?

15.  Jón Atli Bene­dikts­son gegnir mik­ils­verðu starfi í íslensku mennta­kerfi. Hann er ... hvað?

Mynd 2Hvaða jurt má hér sjá? Svarið þarf að vera nákvæmt.
Svör við mynda­spurn­ingum:
Á fyrri mynd­inni er Franklin D. Roosevelt Banda­ríkja­for­seti. Á seinni mynd­inni er vatna­sóley. „Sóley“ dugar ekki.
Svör við öðrum spurn­ingum:
1.  Sam­stöð­inni.  –  2.  Mjall­hvít.  –  3.  Elísabet 1.  –  4.  Arnar Gunn­laugs­son.  –  5.  1973.  –  6.  Fyrsti frétta­mað­ur­inn sem ekki hafði íslensku að móð­ur­máli en Margrét fædd­ist í Póllandi.  –  7.  Öskju­hlíðar.  –  8.  Svín.  –  9.  Bach. –  10.  Íran.  –  11.  Portúgal. –  12.  Skáld­skap­ar­guð.  –  13.  Rauf­ar­höfn.  –  14.  Star Wars.  –  15.  Rektor HÍ.
Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HB
    Hólmgeir Björnsson skrifaði
    Blómið á myndinni er alveg eins og hófsóley. Vatnasóley mun vera annað nafn á lónasóley, en hún er með hvít blóm, og vaxtarlagið er gjörólíkt.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár