Þessi grein birtist fyrir meira en 2 árum.

Spurningaþraut Illuga 6. október 2023

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 6. októ­ber.

Spurningaþraut Illuga 6. október 2023
Mynd 1 Hver er karl þessi?

1.  Umræðuþátturinn Synir Egils hóf nýlega göngu sína ... á hvaða stöð?

2.  Drottning ein sat við sauma við glugga að vetrarlagi en stakk sig þá á nál svo úr blæddi. Nokkru síðar eignaðist hún dóttur sem hún skírði ... hvað?

3.  Hver var þjóðhöfðingi Englands þá William Shakespeare hóf feril sinn?

4.  Hvað heitir þjálfari karlaliðs Víkings í fótbolta?

5.  Hvaða ár stóð eldgosið í Heimaey?

6.  Margrét Adamsdóttir heitir einn af fréttamönnum RÚV. Að hvaða leyti var hún brautryðjandi í starfi?

7.  Perlan í Reykjavík stendur á toppi hvaða hæðar?

8.  Algengt dýr ber latneska fræðiheitið Sus domesticus eða jafnvel Sus scrofa domesticus. Hvað heitir dýrið á íslensku?

9.  Víkingur Heiðar Ólafsson er nú að hefja tónleikaröð og gefa út plötu þar sem hann leikur á píanó hin svonefndu Goldberg-afbrigði eftir ... hvern?

10.  Mohammed Reza Pahlavi hraktist frá æðstu völdum í landi einu árið 1979 og lést ári síðar. Hvaða land var það?

11.  Þriðja fjölmennasta borgin í landi einu heitir Braga. Hvaða land er það?

12.  Í norrænni goðafræði var Bragi aftur á móti ... hvers konar guð?

13.  Hvað er nyrsta kauptún Íslands?

14.  Í hvaða bálki kemur Leia prinsessa við sögu?

15.  Jón Atli Benediktsson gegnir mikilsverðu starfi í íslensku menntakerfi. Hann er ... hvað?

Mynd 2Hvaða jurt má hér sjá? Svarið þarf að vera nákvæmt.
Svör við myndaspurningum:
Á fyrri myndinni er Franklin D. Roosevelt Bandaríkjaforseti. Á seinni myndinni er vatnasóley. „Sóley“ dugar ekki.
Svör við öðrum spurningum:
1.  Samstöðinni.  –  2.  Mjallhvít.  –  3.  Elísabet 1.  –  4.  Arnar Gunnlaugsson.  –  5.  1973.  –  6.  Fyrsti fréttamaðurinn sem ekki hafði íslensku að móðurmáli en Margrét fæddist í Póllandi.  –  7.  Öskjuhlíðar.  –  8.  Svín.  –  9.  Bach. –  10.  Íran.  –  11.  Portúgal. –  12.  Skáldskaparguð.  –  13.  Raufarhöfn.  –  14.  Star Wars.  –  15.  Rektor HÍ.
Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HB
    Hólmgeir Björnsson skrifaði
    Blómið á myndinni er alveg eins og hófsóley. Vatnasóley mun vera annað nafn á lónasóley, en hún er með hvít blóm, og vaxtarlagið er gjörólíkt.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Ég var lifandi dauð“
1
Viðtal

„Ég var lif­andi dauð“

Lína Birgitta Sig­urð­ar­dótt­ir hlú­ir vel að heils­unni. Hún er 34 ára í dag og seg­ist ætla að vera í sínu besta formi fer­tug, and­lega og lík­am­lega. Á sinni ævi hef­ur hún þurft að tak­ast á við marg­vís­leg áföll, en fað­ir henn­ar sat í fang­elsi og hún glímdi með­al ann­ars við ofsa­hræðslu, þrá­hyggju og bú­lemíu. Fyrsta fyr­ir­tæk­ið fór í gjald­þrot en nú horf­ir hún björt­um aug­um fram á veg­inn og stefn­ir á er­lend­an mark­að.
Fleiri listamenn við níu götur í Reykjavík fá laun en á allri landsbyggðinni
6
GreiningListamannalaun

Fleiri lista­menn við níu göt­ur í Reykja­vík fá laun en á allri lands­byggð­inni

Tölu­vert ójafn­vægi er á út­hlut­un lista­manna­launa, séu þau skoð­uð eft­ir bú­setu laun­þega. Laun­in, sem eru tölu­vert lægri en reglu­leg laun full­vinn­andi fólks, renna í flest­um til­vik­um til íbúa í Vest­ur­bæ og mið­bæ Reykja­vík­ur. Menn­ing­ar­mála­ráð­herra seg­ir nið­ur­stöð­una ekki óvænta þó hún slái hann ekki vel.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég var lifandi dauð“
2
Viðtal

„Ég var lif­andi dauð“

Lína Birgitta Sig­urð­ar­dótt­ir hlú­ir vel að heils­unni. Hún er 34 ára í dag og seg­ist ætla að vera í sínu besta formi fer­tug, and­lega og lík­am­lega. Á sinni ævi hef­ur hún þurft að tak­ast á við marg­vís­leg áföll, en fað­ir henn­ar sat í fang­elsi og hún glímdi með­al ann­ars við ofsa­hræðslu, þrá­hyggju og bú­lemíu. Fyrsta fyr­ir­tæk­ið fór í gjald­þrot en nú horf­ir hún björt­um aug­um fram á veg­inn og stefn­ir á er­lend­an mark­að.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár