Spurningaþraut Illuga 29. september 2023

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 29. sept­em­ber.

Spurningaþraut Illuga 29. september 2023
Mynd 1 Hér heldur maður á stærstu krabba­teg­und heims. Tegundin heitir kóngu­ló­ar­krabbi en er líka kennd við land eitt í Asíu en þessi risakrabbi býr aðeins út af ströndum þess. Hvaða ríki er það?

1.  Við hvað fæst Max Ver­stappen?

2.  Þrír hæstu fossar Evrópu eru allir í sama land­inu. Hvaða landi?

3.  Flestir Nóbels­höf­undar í bók­menntum hafa skrifað á ensku. Þar á eftir hafa flestir skrifað á frönsku. En hvaða tungu­mál er í þriðja sæti?

4.  Í hvaða vin­sælu sjón­varps­þátta­röð kom per­sónan Carrie Bradshaw við sögu?

5.  1873 voru tvær borgir í Evrópu sam­ein­aðar form­lega. Hin nýja borg er nú höf­uð­borg. Hvað heitir hún?

6.  Í hvaða núver­andi ríki ríktu Astekar?

7.  Hvað er merki­legt við Proxima Centauri?

8.  Hvað er Gunnar Lárus Hjálm­ars­son yfir­leitt kall­aður?

9.  Hvað er eina sveit­ar­fé­lagið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem ekki er mennta­skóli/fram­halds­skóli?

10.  Í goða­fræði hvaða ríkis hét veiði­gyðjan Artemis?

11.  Hver skor­aði sig­ur­mark Íslands gegn Veils í kvenna­bolt­anum um dag­inn?

12.  Hvaða fót­bolta­fé­lag hefur tryggt sér Íslands­meist­ara­titil í karla­bolt­anum?

13.  Við hvaða list­grein fékkst Frida Kahlo? 

14.  Davíð kon­ungur Gyðinga var frægur fyrir hljóð­færa­leik áður en hann sneri sér að póli­tík og her­mennsku. Hvaða hljóð­færi spil­aði hann á?

15.  Kári Egilsson tón­list­ar­maður hefur vakið mikla athygli að und­an­förnu. Hvað er hans aðal­hljóð­færi?

Mynd 2Hún er nú farin að nálg­ast sjö­tugt og ekki mikið í sviðs­ljós­inu en fyrir 30–40 árum var hún sann­kallað súper­módel og alltaf í tísku­blöð­unum. Undir hvaða nafni er hún þekkt?
Svör við mynda­spurn­ingum:
Krabbinn er kenndur við Japan. Ofur­fyr­ir­sætan nefn­ist Iman.
Svör við almennum spurn­ingum:
1.  Kappakstur.  –  2.  Noregi.  –  3.  Þýska.  – 4.  Sex and the City.  –  5.  Búdapest.  –  6.  Mexíkó.  –  7.  Hún er nálæg­asta sól­stjarnan.  –  8.  Dr. Gunni.  –  9.  Sel­tjarn­ar­nes.  – 10.  Grikk­lands.  –  11.  Glódís Perla.  –  12.  Víkingur.  –  13.  Mál­ara­list. –  14.  Hörpu.  – 15.  Píanó.
Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár