Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar slysasleppingar Arctic Fish

Mat­væla­stofnun vísar slysa­slepp­ingum Arctic Fish til lög­regl­unnar. Tvö göt komu á sjó­kví hjá Arctic Fish nú í sumar. Eld­is­laxar úr kvínni hafa verið að veið­ast í ám víða um landið síð­ustu vik­urnar. Um er að ræða fyrstu slíku rann­sókn­ina á Íslandi.

Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar slysasleppingar Arctic Fish
Rannsókn hafin Lög­reglan á Vest­fjörðum hefur hafið rann­sókn á slysa­slepp­ingum Arctic Fish. Stein Ove Tveiten er fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Lög­reglan á Vest­fjörðum hefur hafið rann­sókn á slysa­slepp­ingum sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish í Pat­reks­firði. Þetta er gert að beiðni Mat­væla­stofn­unar. Greint er frá rann­sókn­inni í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni. Um er að ræða fyrstu slíku rann­sókn­ina sem farið er í á eld­is­fyr­ir­tæki hér á landi. 

Í henni segir orð­rétt: „Mat­væla­stofnun hefur farið fram á opin­bera rann­sókn vegna meintra brota Arctic Sea Farm ehf. á lögum nr. 71/2008 um fisk­eldi en í ágúst sl. til­kynnti fyr­ir­tækið um tvö göt á kví við Kvíg­ind­is­dal í Pat­reks­firði. Samkvæmt 22. gr lag­anna varðar það stjórn­ar­mönnum og fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar­leyf­is­hafa sektum eða fang­elsi allt að tveimur árum, ef sakir eru miklar, ef eld­is­fiskur sleppur úr fisk­eld­is­stöð þar sem umbún­aði við fisk­eldið hefur verið áfátt vegna athafna eða athafna­leysis þeirra sem framið hefur verið af ásetn­ingi eða gáleysi. Lög­reglan á Vest­fjörðum hefur málið til með­ferðar og veitir Mat­væla­stofnun ekki frek­ari upp­lýs­ingar um málið að sinni.“

Greint var frá því í ágúst í sumar að göt hefðu komið á kví hjá Arctic Fish í Pat­reks­firði. Um 73 þús­und laxar, sem voru um 6 til 7 kíló, voru í kvínni sem götin fund­ust á. Síðan þá hafa veiðst fjöl­margir stórir eld­is­laxar víða um landið, aðal­lega á Vest­fjörðum og á Norð­ur­landi. Mat­væla­stofnun hefur greint nokkra af eld­is­löx­unum sem veiðst hafa og hefur nið­ur­staðan verið sú að í flestum til­fellum sé um að ræða laxa frá Arctic Sea Farm í Pat­reks­firði. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Hvað þarf eiginlega að gerast til að laxelsisfyrirtæki missi starfsleyfið?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár