Tæplega 73 þúsund þrettán punda laxar voru í kvínni sem göt komu á

Mat­væla­stofnun og Fiski­stofa rann­saka göt sem komu á lax­eld­is­kví hjá Arctic Fish í Pat­reks­firði. Leitað er að strok­fiski og reynt að kom­ast að því hvað gerð­ist. Mat­væla­stofnun getur sektað lax­eld­is­fyr­ir­tæki fyrir slysa­slepp­ingar.

Tæplega 73 þúsund þrettán punda laxar voru í kvínni sem göt komu á
Óljóst með fjölda eld­is­laxa Óljóst er hversu margir eld­is­laxar sluppu úr kví Arctic Fish á Pat­reks­firði. Daníel Jak­obs­son hefur svarað fyrir málið hjá Arctic Fish.

Mat­væla­stofnun (MAST) hefur óskað eftir því við lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arctic Fish að það klári að slátra eld­is­lax­inum sem er í kví fyr­ir­tæk­is­ins í Pat­reks­firði sem göt komu á. Fjöl­miðlar greindu frá göt­unum í gær.

Þetta segir Karl Steinar Ósk­ars­son, deild­ar­stjóri fisk­eldis hjá Mat­væla­stofnun sem nú rann­sakar málið ásamt Fiski­stofu. Hann segir að Fiski­stofa hafi lagt net í gær til að reyna að veiða eld­is­laxa sem kunna að hafa sloppið úr kvínni. „Fiski­stofa ætlar líka að leita að strok­fiski með drónum í nær­liggj­andi ám.“

Um er að ræða eld­is­lax sem lík­lega er ekki orð­inn kyn­þroska, segir Karl Steinar. Þar að leið­andi eru meiri líkur á því að lax­inn haldi sig í firð­inum og fari ekki upp í nær­liggj­andi ár. 

Nýlega skil­aði Haf­rann­sókn­ar­stofnun gagn­rýnni skýrslu um erfða­blöndun eld­is­laxa og villtra laxa hér á landi.

„Vonandi verður þetta innan tveggja vikna.“
Karl Steinar Ósk­ars­son,
deild­ar­stjóri fisk­eldis hjá MAST

Bið eftir niðurstöðu um sleppingar

Karl Steinar segir að klára þurfi að slátra löx­unum úr kvínni til að átta sig á því hvort og þá hversu margir laxar kunna að hafa sloppið. „Við erum að rann­saka málið út frá því hvernig þessi göt mynd­uð­ust. Við erum að fara yfir verk­ferla þar, kalla eftir gögnum og annað slíkt til að reyna að koma í veg fyrir að þetta end­ur­taki sig. Við erum að fara yfir þetta skref fyrir skref. Við fengum bara upp­lýs­ingar um þetta í gær. [...] Ég óskaði svo eftir því við fyr­ir­tækið að þeir myndu slátra upp úr þess­ari kví sem fyrst. Við vitum hvað það fór mikið af fiski í kvínna, við vitum hvað það er búið að drep­ast mikið og hvað það er búið að slátra miklu. Við leggjum þetta svo saman og sjáum þá hversu mikið af fiski vantar,“ segir Karl Steinar. 

Tæplega 73 þús­und laxar voru í kvínni og er með­al­þyngd þeirra sex kíló eða rúm­lega 13 pund, segir Karl Steinar. Umræddur fiskur hefur verið tæp­lega tvö ár í sjó í Pat­reks­firði. Heild­ar­magnið í kvínni var um 500 tonn segir Karl Steinar. Á þess­ari stundu liggur ekki fyrir hversu margir eld­is­laxar eru eftir í kvínni, líkt og Karl Steinar segir. Þá liggur heldur ekki fyrir hversu lengi götin voru á kvínni áður en þau upp­götv­uð­ust. Lax­eld­is­fyr­ir­tækin sem reka sjó­kví­arnar kafa reglu­lega við kví­arnar til að kanna hvort göt hafi mynd­ast. 

Karl Steinar segir að Arctic Fish geti slátrað um 60 tonnum af eld­is­laxi á dag og því muni alltaf taka nokkra daga að klára hana. „Við verðum að bíða eftir þess­ari nið­ur­stöðu. Vonandi verður þetta innan tveggja vikna.“

Stærsta slysasleppingin átti sér stað nýlega

Þó um sé að ræða marga fiska þá getur umfang þess­arar slysa­slepp­ingar aldrei orðið eins mikið og þegar tæp­lega 82 þús­und eld­is­laxar fund­ust ekki í kví sem gat hafði komið á hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi í Arn­ar­firði. Mat­væla­stofnun sektaði Arnarlax um 120 millj­ónir króna vegna þessar slysa­slepp­ingar og rangrar upp­lýs­inga­gjafar um hana í fyrra. Um var að ræða fyrsta skiptið sem slík sekt var lögð á lax­eld­is­fyr­ir­tæki hér á landi. Þessi slysa­slepp­ing var sú stærsta í Íslands­sög­unni. 

Karl Steinar segir að rann­sóknin á göt­unum á kví Arctic Fish sé á frum­stigi um þessar mundir. Stofn­unin hefur hins vegar heim­ildir til að sekta fyrir slysa­slepp­ingar ef svo ber undir, líkt og sekt Arnarlax sýnir. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

4
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár