Lítill munur á verði á bankaþjónustu og bankarnir hækka verðið oft í takt

Starfs­hópur leggur til að sett verði upp vef­síða þar sem neyt­endur geti borið saman verð á fjár­mála­þjón­ustu sem bank­arnir bjóða upp á. Sum þjón­ustu­gjöld séu ógagnsæ og ekki sé alltaf ljóst hver kostn­aður banka er við að veita þjón­ust­una sem þeir rukka fyrir. Hún sé enda oft er raf­ræn eða sjálf­virk.

Lítill munur á verði á bankaþjónustu og bankarnir hækka verðið oft í takt

Lítil munur er á því verði sem við­skipta­bank­arnir íslensku: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki rukka fyrir veitta banka­þjón­ustu og þeir hækka verð sín oft í takt. Þá eru sum þjón­ustu­gjöld sem eru inn­heimt ógagnsæ og ekki er alltaf ljóst hvað neyt­endur eru að greiða fyrir. Ekki er alltaf ljóst hver kostn­aður bank­ans er við að veita þjón­ust­una, sem oft er raf­ræn eða sjálf­virk. Á sama tíma rukka íslensku bank­arnir þó ekki sér­stak­lega fyrir stofnun banka­reikn­inga eða aðgang að heima­banka en slík gjald­heimta er algeng á hinum Norð­ur­lönd­unum. 

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu starfs­hóps Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, um grein­ingu á gjald­töku og arð­semi við­skipta­bank­anna sem birt var í dag.

Þar kemur líka fram að verð á banka­þjón­ustu og þjón­ustu­gjöld greiðslu­korta hafi almennt lækkað að raun­virði hjá íslensku við­skipta­bönk­unum þremur. Á tíma­bil­inu 2018 til 2023 lækk­aði verð á banka­þjón­ustu um 15 pró­sent og þjón­ustu­gjald greiðslu­korta um 17 pró­sent að raun­virði. Lækkunin er hins vegar minni ef horft er lengra aftur í tím­ann, nánar til­tekið til 2013. Á síð­ast­liðnum ára­tug hefur banka­þjón­usta lækkað um fjögur pró­sent og þjón­ustu­gjald greiðslu­korta um átta pró­sent. Það bendir til þess að um tíma hafi verðið hækkað umtals­vert, en síðan lækkað aftur.

Gengisálag heimilanna 6,6 milljarðar í fyrra

Skýrslu­höf­undar áætla að heim­ilin hafi greitt bönk­unum um 6,6 millj­arða króna í geng­isá­lag ofan á almennt gengi árið 2022 fyrir það að nota greiðslu­kort sín í erlendum færslum. Óvíst sé hversu stór hluti þessa geng­isá­l­ags renni til erlendu korta­fyr­ir­tækj­anna Visa og Mastercard. Til sam­an­burðar, hefðu þessi við­skipti átt sér stað með reiðufé í stað greiðslu­korta hefði geng­isá­lag bank­anna ofan á almennt gengi numið alls 4,9 millj­örðum króna, eða 1,6 millj­arði króna minna en í til­felli greiðslu­korta­við­skipta. 

Að mati starfs­hóps­ins er geng­isá­l­agið sem bank­arnir leggja á korta­við­skipti í erlendri mynt sé dulin og því sem um ógagn­sæja gjald­töku að ræða. Álagið kemur hvergi fram í gjald­skrám bank­anna og virð­ist vera breyti­legt milli gjald­miðla og frá einum tíma til ann­ars. Þá er reiknuð álagn­ing íslensku bank­anna á korta­gengi í flestum til­fellum tölu­vert hærri en það álag sem hinir nor­rænu bank­arnir rukka fyrir erlenda korta­notkun. 

Hjá dæmi­gerðu ungu pari getur kostn­aður við geng­isá­lag bank­anna numið um 30 pró­sent af heild­ar­kostn­aði við banka­þjón­ustu á ári. 

Föst árgjöld fyrir greiðslu­kort og net­banka hér­lendis eru sögð sam­keppn­is­hæf við það sem gengur og ger­ist hjá nor­rænum bönkum en færslu- og seð­il­gjöld skera sig úr í erlendum sam­an­burði. Þessi kostn­aður er hærri á Íslandi en á hinum Norð­ur­lönd­unum og í Noregi, þar sem hann er lægstur, er hann 39 pró­sent af kostn­að­inum á Íslandi. 

Þrjú til fimm þúsund krónur á mánuði

Heilt yfir vegur banka­kostn­aður, að vaxta­gjöldum und­an­skildum, þó ekki þungt í útgjöldum íslenskra heim­ila sam­kvæmt grein­ing­unni. Í vísi­tölu neyslu­verðs eru áætluð útgjöld vegna banka­þjón­ustu um 0,4 pró­sent af heild­ar­neyslu­út­gjöldum með­al­heim­ilis á Íslandi, án til­lits til vaxta­kostn­aðar, og þjón­ustu­gjöld vegna greiðslu­korta áætluð 0,1 pró­sent af heild­ar­neyslu.

Til sam­an­burðar nema útgjöld vegna matar og drykkj­ar­vara 15,2 pró­sent af heild­ar­neyslu, hús­næði, hita og raf­magns 30,2 pró­sent og ferða og flutn­inga 15,5 pró­sent. Sá fyr­ir­vari er þó gerður í skýrsl­unni að mæl­ingar Hagstofu Íslands, sem ofan­greind grein­ing byggir á, ná ekki til allra þjón­ustu­gjalda bank­anna.

Í grein­ingu starfs­hóps­ins voru búin til tvær til­búnar neyslukörfum til að kanna þetta. Í annarri var dæmi­gert ungt par sem greiddi á bil­inu 72 til 80 þús­und krónur á ári fyrir fjöl­breytta fjár­mála­þjón­ustu, eða 6.000 til 6.700 kr. á mánuð saman. Hvort þeirra var því að borga um þrjú þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali, eða þar um bil. Kostn­aður eldri ein­stak­lings sem nýtir þjón­ustu í úti­búum í meiri mæli var áætl­aður um 60 þús­und krónur á ári eða tæpar fimm þús­und krónur á mán­uði. 

Vilja að sett verði upp vefsíða

Starfs­hóp­ur­inn leggur fram fimm til­lögur til úrbóta í skýrsl­unni, sem er alls 108 blað­síður á lengd. Sú sem vekur mesta athygli er að hóp­ur­inn vill að sett verði á fót sam­an­burð­ar­vefsjá á verði fyrir fjár­mála­þjón­ustu svo neyt­endur geti borið saman kjör milli sam­keppn­is­að­ila. Fyr­ir­mynd af slíkri vef­síðu eru konsu­m­enternas.se í Svíþjóð og fin­an­sporta­len.no í Noregi.

Þar væru „allar helstu upp­lýs­ingar um fjár­mála­þjón­ustu veittar á skýran og aðgengi­legan hátt og sam­an­burður á kjörum fjár­mála­stofn­ana gerður mögu­legur út frá fjár­hags­legum for­sendum hvers og eins.“ Með þessu yrði dregið úr ógagn­sæi og ýtt undir hreyf­an­leika við­skipta­vina á banka­mark­aði sem stuðl­aði að auk­inni sam­keppni. 

Þá vill hóp­ur­inn að gagn­sæi við gjald­töku í greiðslu­miðlun verði aukið og að eðli­legt væri að bank­arnir veittu upp­lýs­ingar um gjald­töku sína vegna notk­unar á greiðslu­kortum í erlendri mynt. „Bönkum verði gert skylt að gera grein fyrir sund­ur­lið­aðri gjald­töku sinni í mán­að­ar­legum eða árs­fjórð­ungs­legum yfir­litum sem birt yrðu við­skipta­vinum.“

Fari svo að núver­andi fyr­ir­komu­lagi, þar sem sér­stakt korta­gengi er til­greint, verði við­haldið vill starfs­hóp­ur­inn að við­skipta­bönk­unum verði gert að birta „sér­stak­lega sam­an­tekt í korta­yf­ir­lit­unum yfir þá upp­hæð sem neyt­endur greiða bönk­unum í formi geng­isá­l­ags ofan á almennt gengi, sund­ur­liðað niður á gjald­miðla.“

Þá vill hóp­ur­inn að hag­rætt verði í inn­lendri greiðslu­miðlun í sam­ræmi við ábend­ingar Seðla­banka Íslands til að draga úr kostn­aði hennar, efla fjár­mála­læsi neyt­enda til að bæta kostn­að­ar­vit­und þeirra gagn­vart fjár­mála­þjón­ustu og að stjórn­völd búi til „ramma og skýrar leik­reglur og fyr­ir­tæki setji fram upp­lýs­ingar og val­mögu­leika á skilj­an­legan hátt.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Sú sem vekur mesta athygli er að hópurinn vill að sett verði á fót samanburðarvefsjá á verði fyrir fjármálaþjónustu"
    Þetta dugar skammt ef fólk er bara í viðskiptum við einn banka eins og er algengast.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár