F-16 þotur til Úkraínu: Af hverju vill Zelensky hálfrar aldar gamlar þotur?

F-16 þotur til Úkraínu: Af hverju vill Zelensky hálfrar aldar gamlar þotur?
F-16 á æfinga­flugi.

Banda­ríkja­þing sam­þykkti í gær (fimmtu­dag­inn 17. ágúst) að Dönum og Hol­lend­ingum væri heim­ilt að láta Úkra­ínu­mönnum í té her­þotur af gerð­inni F-16 en þær eru fram­leiddar í Banda­ríkj­unum. Því er fagnað í Úkraínu þótt þar hefðu margir kosið að þessi ákvörðun hefði verið tekin mun fyrr.

Í marga mán­uði hafa Úkra­ínu­menn beðið vest­ræna banda­menn sína um þessar F-16 þotur. Rússar hafa í raun­inni algjöra yfir­burði í lofti yfir Úkraínu þótt þeir yfir­burðir hafi kannski ekki nýst þeim jafn vel og búast hefði mátt við vegna öfl­ugra loft­varna Úkraínu. En nú vilja Úkra­ínu­menn snúa blað­inu við og líta svo á að F-16 sé rétta þotan til þess.

Það merki­lega er að F-16 þot­urnar eru í grunn­inn hálfrar aldar gamlar. Að sjálf­sögðu hafa þot­urnar verið upp­færðar reglu­lega eftir því sem tölvum og tækni hefur fleygt fram og nýj­ustu gerð­irnar eru troð­fullar af hátækni­græjum sem ekki voru til fyrir hálfri öld.

En hönnun þot­unnar er samt fimm ára­tuga gömul. Og hverjar eru þá þessar „gömlu“ þotur sem Zelensky og flug­menn hans óska svo heitt eftir?

Hinar auð­þekkj­an­legu Phantom-þoturhöfðu m.a. aðsetur á Kefla­vík­ur­flug­velli í fjölda ára.

Í Víetnam-stríð­inu hafði sú fræga orr­ustu­þota F-4 Phantom yfir­leitt tryggt Banda­ríkj­unum yfir­burði í lofti, þótt sú sov­éska MiG-21 sem Norður-Víetna­mar not­uðu, veitti banda­rísku draug­unum oft þunga skrá­veifu. Um 1970 voru Banda­ríkja­menn hins vegar farnir að huga að end­ur­nýjun á orr­ustu­þotu­flot­anum, og þá hófst þróun á nokkrum þotum sem gætu tekið við af Phantom.

F-14

Ein þeirra var F-14 Tomcat fram­leidd af Grumman. Fressinn flaug í fyrsta sinn 1970 og var tek­inn í notkun 1974. Þessi þota var fyrst og fremst ætluð til notk­unar á hinum risa­stóru flug­véla­móð­ur­skipum banda­ríska flot­ans og þurfti því að upp­fylla nokkur ólík hlut­verk.

F-14 þot­urnarþekkt­ust af því að þær gátu fært væng­ina fram og til baka.

F-14 þótti reyn­ast afar vel og fram­leiddar voru 712 þotur fram til árs­ins 1991. Flugher Írans hafði fengið 79 F-14 þotur til afnota áður en íslamska bylt­ingin var gerð 1979 og í stríði Írans og Íraks 1980-1988 voru þessar banda­rísku þotur helsta vopn klerka­stjórn­ar­innar.

Í hinni frægu kvik­mynd Top Gun frá 1986 fljúga Tom Cruise og vinir hans F-14 þotum.

Þessar þotur voru teknar úr notkun í banda­ríska flot­anum árið 2006 þegar F-18 Super Hornet var komin í stað þeirra. Í íranska flug­hernum er enn not­ast við F-14 þótt þær þotur séu orðnar mjög fáar vegna skorts á vara­hlutum.

F-15

Um svipað leyti og banda­ríski flot­inn þró­aði Grumman F-14 afréð flug­her­inn að halla sér heldur að nýrri þotu McDonnell Douglas, F-15, sem hafði hlotið nafnið Eagle eða Örninn. Hún flaug í fyrsta sinn 1972 og var tekin í notkun 1976. Þessari þotu var ætlað afmark­aðra hlut­verk en F-14 sem nota mátti bæði til árása á skot­mörk á landi og sjó. F-15 var sem sé fyrst og fremst ætlað að sigra og skjóta niður her­þotur and­stæð­ing­anna og ná þannig yfir­ráðum í lofti yfir átaka­svæðum.

Skemmst er frá því að segja að F-15 þótti og þykir enn afar vel heppnuð tækni­lega. Hún er lang­dræg, mjög hrað­skreið og vel vopnum búin. Þótt þotan sé orðin hálfrar aldar gömul munu fáar ef nokkrar af nýrri þotum stand­ast henni snún­ing á sínu sviði.

F-15,þessi er reyndar af und­ir­týp­unni Strike Eagle.

Alls hafa verið fram­leiddar 1.800 þotur af þess­ari gerð og einni und­ir­sort, sem er fremur ætluð til árása á skot­mörk á landi. Þær eru í notkun í flug­herjum Ísraels, Japans, Suður-Kóreu, Katar, Sádi Arabíu og Síngapúr, auk Banda­ríkj­anna. Nú er á leið­inni „upp­færsla“ á F-15 sem fengið hefur nafnið Eagle II og verður meðal ann­ars seld til Indónesíu.

F-16

Þótt banda­rísku her­skúfarnir væru í upp­hafi átt­unda ára­tugar hæstá­nægðir með frammi­stöðu bæði F-14 og F-15 fannst þeim þó að eitt­hvað vant­aði. Báðar þot­urnar voru stórar og þungar og ekki síst rán­dýrar. Þær eru báðar 20 metrar að lengd og vega meira en 30 tonn full­hlaðnar elds­neyti og skot­færum alls konar.

Því var ákveðið að hefja líka fram­leiðslu á smærri og ódýr­ari þotu og þá kom F-16 þotan til sög­unnar. Fyr­ir­tækið General Dynamics var valið til að þróa hana og fram­leiða og þotan, sem kölluð er Fighting Falcon, flaug í fyrsta sinn 1974. Vélin var svo tekin í notkun 1978 og þótti einkar vel heppnuð til síns brúks. Hún er sýnu styttri og létt­ari en F-15 — 15 metrar löng og nær ekki 20 tonnum full­hlaðin.

F-16þot­urnar þykja snar­ari í snún­ingum sem hinar stóru F-15 þotur.

Hún er og lipr­ari og með­færi­legri en þungu þot­urnar og nota­drý­gri á fleiri sviðum. Til dæmis kemur Orr­ustu­fálk­inn að mun betri notum en Örninn við árásir á skot­mörk á jörðu niðri.

Fyrir Úkra­ínu­menn hefur svo sér­stakt gildi að þeir sjá fyrir sér að vél­ina mætti nota til að skjóta niður stórar eld­flaugar sem stefna á skot­mörk í landi þeirra.

F-16 nær 1.480 kíló­metra hraða á klukku­stund við sjáv­ar­mál en getur þanið sig á 2.180 kíló­metra hraða í háloft­unum þar sem loft­mót­staða er minni. Til sam­an­burðar flýgur F-15 á sama hraða við sjáv­ar­mál en nær hvorki meira né minna en 2.655 kíló­metra hraða hátt á himnum.

F-35,nýjasta græja banda­ríska flug­hers­ins. Hún var tekin í notkun 2006 og þegar hafa verið fram­leiddar tæp­lega 1.000. Úkra­ínu­menn láta sig ekki dreyma um að fá slíkar þotur á næst­unni.

Eigi að síður ætti þota af þess­ari gerð að stand­ast snún­ing öllum Sukhoi-orr­ustu­þotum Rússa í loft­bar­dögum, nema hugs­an­lega þeirri allra nýj­ustu, Su-57, sem Rússar tóku í notkun 2020.

Þær nýju þotur Rússa eru enn afar fáar og rúss­neski flug­her­inn gætir þeirra eins og sjá­ald­urs augna sinna.

Þegar síð­ast frétt­ist höfðu aðeins verið fram­leiddar um 20 Su-57 þotur en fleiri eru á leið­inni.

Su-57er stolt Rússa um þessar mundir.

Þoturnar eru vænt­an­lega ansi skelfi­leg stríðstól en þó vakti athygli fyrir nokkrum árum að Ind­verjar drógu sig út úr sam­starfi við Rússa um fram­leiðslu á Su-57, hrein­lega vegna þess að þeim fannst prufu­ein­tök af þot­unni ekki lofa nógu góðu.

Svo kannski þurfa vænt­an­legir flug­menn úkra­ínskra F-16 þotna ekki að fara á taugum þó þeim sé til­kynnt að Su-57 nálgist.

Þegar síð­ast frétt­ist höfðu 4.600 F-16 verið smíð­aðar og þær hafa verið seldar til 20 ríkja. Flest eru þau NATO-ríki en einnig mörg Arabaríki sem Banda­ríkin líta á sem vin­veitt sér.

Danir eiga til dæmis 30 F-16 vélar en eru búnir að panta sér nýj­ustu þotu Banda­ríkj­anna, F-35, sem á smátt og smátt að koma í stað Orr­ustu­fálkanna. Slík end­ur­nýjun hefur þegar farið fram í Noregi. Norðmenn seldu sínar F-16 þotur fyrir skömmu til Rúmeníu og fengu sér F-35 í stað­inn.

Danir gáfu snemma til kynna að þeir væru til­búnir til að láta Úkra­ínu­menn fá sínar F-16 þotur og það hafa Banda­ríkja­menn nú sam­þykkt — en orr­ustu­þotum, sem þeir selja til ann­arra landa, fylgja ævin­lega þau skil­yrði að þær verði ekki seldar eða lán­aðar til þriðja lands nema með sam­þykki þeirra.

Hinar 24 F-16 þotur Hol­lend­inga munu nú á sama hátt standa Úkra­ínu­mönnum til boða.

Belgar munu og hafa boðað að þeir séu til­búnir til að láta ein­hverjar eða allar af sínum 44 þotum en það mál er skemmra á veg komið, að því er best er vitað.

Á verð­lagi dags­ins í dag kostar ný F-15 þota tæpa 11 millj­arða króna og kostn­aður við hverja F-35 er enn hærri. Ný F-16 þota kostar „aðeins“ 8,6 millj­arða.

F-18,eða Hornet. 1.400 slíkar þotur voru fram­leiddar á árunum 1978-2000 en hafa nú víð­ast verið teknar úr notkun. Úkra­ínu­menn eru í við­ræðum við Ástrali um að fá nokkra tugi þess­ara tóla sem liggja undir skemmdum í Ástralíu. Ekki ber að rugla þess­ari saman við „fram­halds­gerð­ina“ F-18 Super Hornet sem fram­leiðsla hófst á 1995 og er mjög í notkun á amer­ísku flug­véla­móð­ur­skip­unum nú á tímum.

Kostn­aður bara við fram­leiðslu á hinum 4.600 F-16 þotum nemur því — mjög gróf­lega reiknað — 39.560 millj­örðum.

En svo kostar sitt að reka þessi tæki. Rekstur F-15 þotu kostar 3,8 millj­ónir króna ‐ á klukku­tím­ann. Rekstur á F-16 er nokkru lægri en það er þó bita­munur en ekki fjár.

Þessar brjál­æð­is­legu tölur sýna betur en flest annað hve skelfi­lega háum upp­hæðum er eytt í vopn og verjur þótt mann­kynið standi frammi fyrir ótal vanda­málum sem svo sann­ar­lega væri meiri ástæða til að eyða í tíma, orku og pen­ingum.

En meðan málum er enn háttað svo að vold­ugir nágrannar fara með inn­rásum og ofbeldi inn í lönd nágranna sinna, þá mun þetta halda áfram.

(Greinin var upp­færð eftir ákvörðun Banda­ríkja­þings 17. ágúst.)

JAS-39 Gripener full­komin sænsk orr­ustu­þota sem var tekin í notkun 1996. Fram­leiddar hafa verið rúm­lega 300 þotur sem eru í notkun í nokkrum löndum. Sumir, þar á meðal ýmsir í Úkraínu, telja að þessar þotur yrðu jafn­vel betra varn­ar­vopn en F-16. Úkra­ínu­menn hafa þó ekki enn farið form­lega fram á að fá þær og Svíar hafa tekið dræmt í hug­mynd­ina.
Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Takk fyrir þessa grein Illugi, það er mjög lítil umfjöllun um stríðstól Úkraínu stríðins í íslenskum fjölmiðlum þó að þau komi til að skipta gríðarlegu máli með framvindu átakanna.
    Það mætti bæta við að megin munur á F-16 og hinum eldri bandarísku F þotum er að F-16 er með einn þotuhreyfil á meðan hinar þoturnar eru með tvo. Það gerir það að verkum að F-16 getur ekki borið jafn mikið af sprengjum og flugskeytum og hinar þoturnar. Ef F-16 þota verður fyrir bilun eða hnjaski á þotuhreyfli þá er nauðlending óumflýjanleg á meðan hinar þoturnar hafa annan hreyfil að grípa til ef slíkt kemur upp. Af þessum sökum er F-16 þotan meira hugsuð sem þota til loftvarna og til að ná yfirráðum í lofti og til stuðnings á vígvellinum en síður til loftárása langt inn í óvinasvæði. Það að mikið sé af F-16 þotum á lausu og að hún sé minnst ógnandi kosturinn af eldri bandarísku F þotunum fyrir loftárásir á skotmörk langt inni í Rússlandi er ástæðan fyrir því að þetta er talin besti kosturinn fyrir Úkranínu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár