Reitir og Eik horfa til þess að byggja mikið á milli Hilton og Ármúla

Fast­eigna­fé­lögin Eik og Reitir standa saman að til­lögu um upp­bygg­ingu fjölda íbúða í fjöl­býl­is­húsum á svæði sem er í dag risa­stórt mal­bikað bíla­stæði á bak við Hilton Nordica-hót­elið við Suð­ur­lands­braut. Skipu­lags­full­trú­inn í Reykja­vík hefur tekið jákvætt í frum­drög að upp­bygg­ingu á svæð­inu.

Reitir og Eik horfa til þess að byggja mikið á milli Hilton og Ármúla
Upp­bygg­ing­ar­hug­mynd Hug­myndir Eikar og Reita ganga út á að breyta svæði sem í dag er að mestu lagt undir mal­bikað bíla­stæði í reit undir bland­aða byggð. Mynd: Arkþing-Nordic

Fast­eigna­fé­lögin Eik og Reitir fengu undir lok júlí jákvæðar und­ir­tektir frá skipu­lags­full­trú­anum í Reykja­vík varð­andi til­lögu að fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu á svæð­inu á bak­við Hilton Nordica-hót­elið við Suð­ur­lands­braut. Tillaga arki­tekta­stof­unnar Arkþing-Nordic fyrir hönd fast­eigna­fé­lag­anna tveggja gerir ráð fyrir að þar geti risið all­mörg ný fjöl­býl­is­hús með þjón­ustu á jarð­hæðum.

Frum­drögin gera ráð fyrir heild­ar­bygg­ing­ar­magni upp á 21.500 fer­metra auk 7.700 fer­metra bíla­kjall­ara. Þar af yrðu u.þ.b. 18.900 fer­metrar hugs­aðir undir íbúð­ar­hús­næði og 2.600 fer­metrar undir verslun og þjón­ustu. 

Í umsögn skipu­lags­full­trúa, sem sam­þykkt var á afgreiðslu­fundi emb­ætt­is­ins 27. júlí, segir að til­lagan sýni „áhuga­verðar hug­myndir að torgum og göngu­götum sem jafn­framt eru íbúð­ar­götum“ og jafn­framt „áhuga­verða hug­mynd að grænum inn­garði til suð­urs með djúpum jarð­vegi svo tré fái þrif­ist“. Þá sé áhersla „lögð á góð úti­rými og góðar göngu­leiðir sem tengja Ármúla við stoppi­stöðvar Borg­ar­línu við Suð­ur­lands­braut“.

Sjö til níu hæðir kannski full hátt

Skipu­lags­full­trúi seg­ist taka jákvætt í fyr­ir­liggj­andi frum­drög að upp­bygg­ingu og segir í umsögn emb­ætt­is­ins að hug­myndir um bland­aða byggð og íbúð­ar­götu­rými séu „áhuga­verðar og vel útfærðar“. 

LoftmyndFjöldi nýrra húsa mun rísa á þessu svæði er fram líða stundir, ef áform fast­eigna­fé­laga verða að veru­leika.

Hins vegar vakni spurn­ingar um bygg­ing­ar­magn og hæðir húsa, en skipu­lags­full­trúi segir að þær telj­ist „full háar“, sér­stak­lega á horni Suð­ur­lands­brautar og Lágmúla, en teikn­ing úr til­lög­unni sýnir þar 9 hæða hátt hús, og við Hall­ar­múla, þar sem 7 hæða hús er sýnt á teikn­ingu. Einnig segir skipu­lags­full­trúi að spurn­ingar vakni um „afstöðu fjöl­býl­is­húss á austasta hluta lóðar til atvinnu­hús­næðis að Hall­ar­múla 2“.

Í umsögn skipu­lags­full­trúa segir að vinna þurfi grein­ingu á kolefn­is­spori upp­byg­ing­ar­innar sam­hliða hönnun, ásamt grein­ingu á dags­birtu íbúða. Þá þurfi að vinna sam­göngu­mat fyrir upp­bygg­ingu, sem skuli leggja til grund­vallar ákvörð­unar um fjölda bíla- og hjóla­stæða á svæð­inu ásamt bíla- og hjóla­stæða­stefnu Reykja­vík­ur­borgar. Einnig kemur fram að sam­þætta þurfi hug­myndir að upp­bygg­ingu á þessu svæði við þró­un­ar­á­ætlun fyrir Múla, sem sögð er á loka­stigi.

Fast­eigna­fé­lögin Eik og Reitir eiga sinn hvorn hlut­ann af svæð­inu sem um ræðir. Reitir eiga hús­næði Nordica-hót­els­ins og einnig atvinnu­hús­næðið við Hall­ar­múla 2, en Eik á fast­eign­ina við Ármúla 3, sem meðal ann­ars hýsir höf­uð­stöðvar trygg­inga­fé­lags­ins VÍS.

Reitir hafa áður kynnt að félagið hafi áform um upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis á þessu svæði fyrir aftan Hilton-hót­elið og kynnti full­trúi félags­ins þær hug­myndir meðal ann­ars á opnum fundi um sam­göngu- og skipu­lags­mál sem Reykja­vík­ur­borg stóð fyrir vorið 2021. Í glæru­kynn­ingu full­trúa Reita á þeim fundi kom fram að hægt yrði að koma fyrir allt að 120 íbúðum og 1.300 fer­metrum af atvinnu­hús­næði á svæð­inu, í sex fjöl­býl­is­húsum.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár