Senuþjófar sumarsins

Fyrir utan hið and­lausa plast­æv­in­týri Barbie eru stóru sum­arsmell­irnir frá Hollywood að venju flestir með karla í aðal­hlut­verkum. En það kemur ekki í veg fyrir að nokkur kjarna­kvendi steli sen­unni.

Senuþjófar sumarsins
Helena Shaw Guð­dóttir Indy.

Fimmta Indiana Jones-myndin reyn­ist til dæmis prýði­leg skemmtun – enda er Phoebe Waller-Bridge stór­skemmti­leg þar sem harð­haus­inn Helena Shaw, guð­dóttir Indy, sem hann kallar ávallt Wombat. Persónan er eins og beint upp úr orð­heppnum screwball-myndum fimmta ára­tug­ar­ins og Waller-Bridge fer ótrú­lega vel að leika ólík­inda­tól og hörku­tól með pass­lega sveigj­an­legan sið­ferð­is­kompás. Svo horfir maður bara á Fleabag-þætt­ina hennar aftur, á meðan maður lætur sig dreyma um að hún fái sína eigin hasar­seríu, enda er myndin í raun ekk­ert síður um hana en Dr. Jones.

Mission: Impossi­ble-mynd­irnar hafa alltaf þurft að reiða sig á öfl­ugar mót­leikkonur til að draga fram alvöru til­finn­ingar úr spýtu­kall­inum Tom Cruise – og tókst það best í þeirri fimmtu, þar sem hin sænska Rebecca Ferguson labbar beint inn úr Casablanca sem hasar­út­gáfan af Ilsu Lund, enda nefnd eftir henni – Ilsa Faust. Hún er því miður lítið í nýj­ustu mynd­inni, en það er mynd­inni til happs að hand­bendi skúrks­ins er Paris, þög­ult morð­kvendi sem Pom Klem­enti­eff leikur og skapar eft­ir­minni­lega per­sónu með lík­ams­tján­ingu, dans­kenndum bar­daga­hreyf­ingum og svip­brigðum – það er nán­ast eins og hún hafi villst úr þög­ulli mynd og stelur þess­ari splunku­nýju tal­mynd með húð og hári.

Kjósa
-3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár