Reggí í nafni móðurinnar

Sinead O‘Connor lést í lok júlí og hún var sann­ar­lega ekk­ert eins smells undur, en því er ekki að neita að eitt ákveðið lag, Nothing Compares 2U, gnæfir dálítið yfir ferl­inum. En þá er bara að grafa dýpra til að finna meiri snilld.

Reggí í nafni móðurinnar
Sinead O‘Connor Rödd Sinead var þekkt um allan heim

Sjálfur hafði ég ekki heyrt Sinead lengi þegar ég heyrði fyrir til­viljun und­ur­fal­legt og skrítið lag á óræðu ensku­skotnu tungu­máli á kaffi­húsi – og upp­götv­aði með hjálp galdra­tæk­is­ins Shazam að þetta væri fyrsta lag Throw Down Your Arms, sem er betur þekkt sem reggí­plata Sinead.

Þar syngur hún klass­ísk rótar-reggílög, en sú und­ir­grein reggís­ins blandar saman trú­ar­stefjum við mann­rétt­inda­bar­áttu – eitt­hvað sem er sömu­leiðis stef á ferli og lífi söng­kon­unnar sjálfrar. Þetta lag heitir Jah Nu Dead og blandar saman ensku og rastafarí-slangri, Jah þýðir til dæmis Guð á rastafari. Það var upp­haf­lega sungið af Burning Spear 1978 og rétt eins og Prince má Burning Spear þola það að ábreiða Sinead er umtals­vert betri en org­inal­inn.

Þá við­ur­kenndi Bono að söng­konan hefði rænt hjarta hans þegar hún flutti lag hans, You Made Me The Thief Of Your Heart, fyrir mynd­ina In the Name of the Father. Það kom aldrei annað til greina en að láta Sinead syngja lagið, eða eins og Jim Sheridan, leik­stjóri mynd­ar­innar, orð­aði það: „Þótt myndin heiti Í nafni föð­ur­ins, þá snýst þetta allt um móð­ur­ina. Karl­maður getur ekki sungið þetta lag. Móðir Írland þarf kven­rödd.“

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár