Þið munið hann Milan

Rit­höf­und­ur­inn Milan Kundera er allur, 94 ára gam­all. Allar skáld­sögur hans og nokkur rit­gerða­söfn hafa komið út á íslensku í þýð­ingu Friðriks Rafns­sonar.

Þið munið hann Milan
Mil­an Kund­era Mynd: Louis MONIER

Nú er Milan Kundera allur, 94 ára gam­all. En hvernig orti hann sjálfur um dauð­ann? Til dæmis svona, í Bókinni um hlátur og gleymsku, sem kost­aði hann tékkóslóvakíska rík­is­borg­ara­rétt­inn: „Við hugsum um óend­an­leika stjarn­anna en skeytum engu um óend­an­leik­ann sem er fólg­inn í feðrum okkar.“

Fyrsta skáld­saga hans var Brand­ar­inn, en kvik­mynda­út­gáfa hennar kom út skömmu síðar og var lyk­il­mynd vors­ins í Prag, þótt hún hafi verið frum­sýnd stuttu eftir að það var yfir­staðið. Og aðal­leik­ari mynd­ar­innar, stór­leik­ar­inn Josef Somr, var fimm árum yngri en Kundera og fylgir honum út í eilífð­ina, lést síð­asta vetur.

Í List skáld­sög­unnar fjallar hann um bók­menntir og tón­list, sem og blaða­mennsku. „Það er nóg að fletta banda­rískum eða evr­ópskum stjórn­mála­tíma­ritum, sama hvort þau eru til hægri eða vinstri, allt frá Time tíl Spiegel: Þau hafa öll sama lífs­við­horf sem end­ur­spegl­ast í sama efn­is­yf­ir­liti, sömu föstu lið­unum, sams konar blaða­mennsku, sama orða­forða og stíl, sama listasmekk og sama gild­is­mati.“

Fyrsta þýð­ingin á Svaninum eftir Guðberg var á tékk­nesku og Vera, eft­ir­lif­andi eig­in­kona Kundera, las bók­ina og mælti með. Milan elskaði bók­ina líka og kom því til leiðar að hún yrði þýdd á frönsku – og skrif­aði m.a. þetta um hana: „Níu ára: mörk æsku og ung­lings­ára. Aldrei hef ég séð eins skýru ljósi varpað á þau mörk og í þess­ari skáld­sögu.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár