Með strætó um Reykjanes: Farþegar hjálpast að

Morg­un­blaðið birti á þriðju­dag erindi frá eig­anda Bus4u í Reykja­nesbæ „vegna neyð­ar­á­stands í almenn­ings­sam­göngum í Reykja­nesbæ“. Var því lýst að „ákveðnir hópar“ væru ágengir, og frekir. Daginn eftir fór blaða­maður um Reykja­nesið með strætó, en þá var frið­sælt ástand í vögn­unum.

Með strætó um Reykjanes: Farþegar hjálpast að
Stræt­is­vagn Flytur far­þega um Reykja­nesið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Við Miðstöð í Reykja­nesbæ er margt fólk á leið­inni í og úr strætó um hádeg­is­bil þann 21. júní. Sumir íslenskir, aðrir ekki. Í stræt­is­vagn­inum R3 eru í kringum 30 manns og fæstir segja neitt. Barn hlær og ung­lings­stúlka af íslenskum upp­runa spilar TikTok mynd­bönd aft­ast í vagn­inum sem lið­ast áfram um Ásbrú, sam­fé­lag frum­kvöðla, fræða og atvinnu­lífs.

Versti vagninn

Daginn áður, þann 20. júní, birt­ist grein á mbl.is þar sem greint var frá neyð­ar­á­standi og slæmum vinnu­skil­yrðum strætó­bif­reiða­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins Bus4u sökum erf­iðra far­þega sem til­heyra „ákveðnum hópi“ sam­fé­lags­ins. Þá er stræt­is­vagn­inn R3 sem ferð­ast Ásbrú­ar­leið tal­inn ein­stak­lega slæmur vegna of margra far­þega og stingur eig­andi Bus4u upp á því að þau strætókort sem fólk á flótta fær verði ekki gild í stræt­is­vagn­ana lengur. 

Blaða­maður ákvað að fara með stræt­is­vögnum Bus4u þessa leið og átti von á ófremd­ar­á­standi. En kannski var það til­viljun, tíma­setn­ingin eða eitt­hvað annað sem réði því að …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár