Íslenskar skáldsagnapersónur með ljósmyndadellu

Ásgeir H. Ing­ólfs­son mælir með menn­ing­ar­efni þar sem filmu­vélar eru íslenskum skáldum skyndi­lega óvenju hug­leiknar, í bíó sem og bókum.

Íslenskar skáldsagnapersónur með ljósmyndadellu
Ljós­mynda­della Volaða land ger­ist á 19. öld þegar ungur danskur prestur ferð­ast til Íslands með það að mark­miði að reisa kirkju og ljós­mynda íbúa eyj­unnar á för sinni.

Volaða land

Danskur prestur með ljós­mynda­dellu tekur blaut­plötu­myndir á Íslandi nítj­ándu aldar. Þessar myndir verða hluti af sög­unni og ekki síður hluti af fag­ur­fræði mynd­ar­innar sjálfrar, það er stundum eins og mest­öll myndin sé tekin með þess­ari tækni.

Kóperníka

„Þetta var ný upp­finn­ing frá Kodak, amer­ísku firma, sem gerði fólki kleift að bera mynda­vél í hand­tösku.“ Stúlka nokkur í Kaup­manna­höfn nítj­ándu aldar fær nýmóð­ins mynda­vél í afmæl­is­gjöf, en bókin er um margt óður til tíma þar sem við erum á brún nútím­ans og mynda­vélar fyrir almenn­ing og grammó­fónar enn þá nýlegar upp­finn­ingar.

Á ferð með mömmu

Jón (Þröstur Leó) býr einn með móður sinni á afskekktum Vest­fjörðum, en ferð suður á land reyn­ist honum kær­komið tæki­færi til að huga að ljós­mynda­dell­unni og fanga heim fullan af fólki, alla­vega miðað við hið afskekkta býli sem hann var að yfir­gefa.

Kákasus­ger­ill­inn

Á ferð með mömmu ger­ist árið 1980, og meira en ára­tug síðar fær Eiríkur, önnur aðal­per­sóna Kákasus­ger­ils­ins, „mynda­vél, merkt Ólymp­íu­leik­unum í Sov­ét­ríkj­unum 1980.“ Eiríkur er týnd sál, en hann finnur sig þó helst með mynda­vél­ina, það er bara með hjálp hennar sem hann nær að skilja heim­inn almenni­lega.

Auðlesin

Í Auðlesin eru filmu­vél­arnar orðnar tæki nostal­g­í­unnar, sam­an­ber þessi orð: „Mynda­vélin bar nafnið Praktíka. Afi hans hafði keypt hana í Austur-Berlín árið 1972 og hún var flagg­skip sov­ésku fjöl­skyldu­mynda­vél­anna. Ef mynd var tekin í brúð­kaupi í Prag eða stúd­ents­veislu í Varsjá fyrir fall múrs­ins voru yfir­gnæf­andi líkur á því að myndin hefði verið tekin á Praktík­una.“

Snjó­flyksur á næt­ur­himni

Flytjum okkur svo yfir í fræðin, en Sigrún Alba Sig­urð­ar­dóttir veltir fyrir sér ljós­myndun á ljóð­rænum og heim­speki­legum nótum í Snjó­flygsum á næt­ur­himni. „Ljós­mynd­irnar verða þá eins og minn­is­varðar um þessi tíma­bil. Þær veita okkur aðgang að til­finn­ingum og minn­ingum sem hafa búið um sig djúpt í lík­am­anum.“

The Saddest Music in the World

Bregðum okkur svo í lokin frá ljós­mynd­unum og yfir í nauð­syn­legt mótefni gegn ofur­hress­leik­anum í Eurovision, um söng­keppni þar sem þjóðir heims­ins keppa um að semja sorg­leg­ustu tón­list í heimi í kjöl­far krepp­unnar miklu. Vestur-íslenski leik­stjór­inn Guy Madden er samt ekki síður að yrkja sinn óð til expressjón­ism­ans og árdaga kvik­mynd­anna.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár