Köllunarklettur framtíðar

Anna María Boga­dóttir arki­tekt rýnir í end­ur­nýjun húss Kassa­gerðar Reykja­víkur við Köll­un­ar­kletts­veg í von um að arki­tektúr for­tíð­ar­innar verði Köll­un­ar­klettur fram­tíð­ar­innar.

Köllunarklettur framtíðar
Von um fram­tíð „End­ur­nýjun höf­uð­stöðva Kassa­gerðar Reykja­víkur við Köll­un­ar­kletts­veg er því ákall til fram­tíðar. Ákall sem felur í sér von. Von um að fleiri sjá tæki­færin í veðr­uðu hús­næði, hlúi að og veðji á fram­tíð þess.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

Í sér­hverju húsi sem rís býr von. Rétt eins og hvert eitt hús sem jafnað er við jörðu felur í sér glötuð tæki­færi. Mér hefur því fund­ist jafn gleði­legt að fylgj­ast með end­ur­nýjun húss Kassa­gerðar Reykja­víkur við Köll­un­ar­kletts­veg og mér fannst sárt að horfa á nið­ur­rif eldri bygg­ingar Kassa­gerðarinnar á horni Skúla­götu og Vita­stígs fyrir nokkrum árum. Það hús umbreytt­ist í stein­steypuklassík þegar húsa­meist­ar­inn Guð­mundur H. Þor­láks­son teikn­aði fjórar hæðir ofan á ein­lyft iðn­að­ar­hús sem annar tveggja stofn­enda Kassa­gerð­ar­innar hafði teiknað og látið reisa árið 1935. Eftir stækkunina var húsið orðið reisu­legt með láréttum borða­böndum og turni, hús sem daðr­aði við art deco-stíl­inn eins og hús sem Guð­mundur teikn­aði síðar við Hlemm­torg og er nú verið að breyta í íbúðir.

Í fyrr­nefndu húsi Kassa­gerð­ar­innar við Skúla­götu óx starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins uns hún sprengdi það utan af sér og fyr­ir­tækið lét reisa nýjar og nútíma­legar höf­uð­stöðvar austar við sundin blá. Við götu sem var lögð þar sem Köll­un­ar­klettur hafði staðið upp úr haf­inu. Allt þar til stór­virkar vinnu­vélar réð­ust á sjávarklett­inn og efni úr grunnum sem voru teknir undir ný hús í Laug­ar­nes­hverf­inu var sturtað yfir strönd­ina. 

Síðan eru liðin sex­tíu ár. Viðmið og aðferðir sem beitt er við þróun byggðar eru orðin önnur. Verð­mæti sem liggja í nátt­úru­legum strand­lengjum og sjáv­ar­klettum njóta núorðið verndar og hug­myndin um að öll hús megi end­ur­nýja og gefa nýtt líf sækir í sig veðrið. Stein­steypt hús Kassa­gerð­ar­innar við Köll­un­ar­kletts­veg, sem reist var í áföngum á sjötta og sjö­unda ára­tugnum, er gott dæmi um það hvernig mann­virki geta vaxið og þroskast. Umbreyst og fengið ný hlut­verk.

Fysti áfangi bygg­ing­ar­innar var ein­lyft verk­smiðju­hús­næði, reist eftir teikn­ingum Arin­björns Þor­kels­sonar. Síðar hann­aði arki­tekt­inn Gunnar Hansson veg­lega skrif­stofu­álmu og geymslu­hús­næði og loks tengi­bygg­ingu við verk­smiðju­álm­una. Húsið í heild sinni dregur dám af alþjóð­legum módern­isma líkt og fleiri hús sem risu upp úr mið­biki tutt­ug­ustu ald­ar­innar eftir teikn­ingum Gunnars og fleiri arki­tekta víða um borg­ina. Þar á meðal á Heklu­reit. Og nú þegar verið er að henda hús­unum á Heklu­reit eins og einhverju rusli, gengur Kassa­gerð­ar­húsið við Köll­un­ar­kletts­veg gegnum end­ur­nýjun líf­daga. Sú end­ur­nýjun er fagn­að­ar­efni því iðnaðar- og skrif­stofu­hús á borð við hús Kassa­gerðarinnar eru ein­stök.

„End­ur­nýjun höf­uð­stöðva Kassa­gerðar Reykja­víkur við Köll­un­ar­kletts­veg er því ákall til fram­tíðar.“

Þetta eru hús með sögu. Oftast vel byggð og með nota­gildið í fyrr­i­rúmi. Til að rúma pláss­freka iðn­að­ar­starf­semi eru verk­smiðju­sal­irnir opnir, stórir og bjartir. Loft­hæðin ríf­leg. Og hrá­leik­inn ríkir enn í verk­smiðju­álmu Kassa­gerð­ar­innar sem hýsir nú Góða hirðinn. Hér geta gamlir hlutir og hús­gögn öðl­ast nýtt líf, líkt og húsið sjálft. Bygg­inga­pallar hringa sig nú um húsið og unnið er að því að ein­angra stein­steypuna utan­vert með stein­ull og þekja yfir með litaðri álklæðn­ingu. Upp­haf­legir litir og áferð steypunnar víkja þannig fyrir nýjum litum og áferð. Sem breytir ásýnd húss­ins frá upp­haf­legri mynd og viss eft­ir­sjá er í.

Grunn­gerð bygg­ing­ar­innar er óbreytt í meg­in­at­riðum. Skrif­stofu­álman hefur verið hækkuð og er nú jafnhá og upp­haf­legar teikn­ingar gerðu ráð fyrir. Og með því að gera við steypu­skemmdir, ein­angra húsið upp á nýtt og skipta út gluggum og gleri er gam­alt hús að verða eins og nýtt. Gamall arki­tektúr að verða nýr. Endur­nýjun höf­uð­stöðva Kassa­gerðar Reykja­víkur við Köll­un­ar­kletts­veg er því ákall til fram­tíðar. Ákall sem felur í sér von. Von um að fleiri sjái tæki­færin í veðr­uðu hús­næði, hlúi að og veðji á fram­tíð þess. Von um að fleiri fyr­ir­tæki hleypi þar nýju lífi í starf­semi sína. Von um að fleiri arki­tektar beini kröftum sínum í end­ur­hönnun hús­næðis sem þjónar nýjum tímum. Von um að fleiri sveit­ar­fé­lög leiði skipu­lags­gerð þar sem eldra iðn­aðar- og skrif­stofu­hús­næði er ekki gert að víkja heldur öðl­ast nýtt líf. Von um að arki­tektúr for­tíð­ar­innar verði Köll­un­ar­klettur fram­tíð­ar­innar. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Þetta eru hús með sögu. Oftast vel byggð og með notagildið í fyrrirúmi. Til að rúma plássfreka iðnaðarstarfsemi eru verksmiðjusalirnir opnir, stórir og bjartir.

    Ekki beint mín skoðun þó svo ég hafi unnið þar á sínum tíma.

    Ja sei sei... blessuð konan greinilega aldrei unnið í gömlu Kassagerðinni... en jú stórir og opnir en ósköp miklir kumbaldar... og hávaðasamir, troðnir af pappír og pallíettum með afurðum, loftræstingin vissulega til staðar enda nauðsynlegt þegar vaxvélar og pappírsvinnuvélar vinna og fínn sallinn svífur um loftið osf osf. Stórir hráir salir og ekki beint þeir þægilegustu .. klassísk færibandavinna og ekkert þar sem þú tekur börnin með í vinnuna... en er virkilega nauðsynlegt að halda í svoleiðis umhverfi bara af því að einhverjir fræðingar.. þessu tilfelli arkitektar ... halda ekki vatni yfir einhverjum stefnum og straumum í fræðunum þeirra ?

    Það er skortur á íbúðarhúsnæði í Reykjavík... ekki þrælakistum fjöldaframeiðslu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár