Hinar góðu mæður gegn mafíunni

Nafn kala­brísku mafí­unnar 'Ndrang­heta þýðir um það bil Samtök hinna heið­virðu og hug­rökku karla. Í magn­aðri nýrri sjón­varps­s­eríu, The Good Mothers, er hins vegar fjallað um bar­áttu heið­virðra og hug­rakkra kvenna gegn glæpa­mönn­unum, sem oft eru eig­in­menn þeirra og feður.

Hinar góðu mæður gegn mafíunni

Nú fyrir örfáum dögum birt­ust í Evrópu fréttir sem náðu ekki hingað til lands en vöktu athygli víða. Þúsundir lög­reglu­manna tóku þátt í sam­ræmdum aðgerðum í mörgum löndum og hand­tóku á annað hund­rað glæpa­manna sem grun­aðir eru um aðild að ítölsku glæpaklíkunni ‘Ndrang­heta. Einnig birt­ust fréttir um að lög­reglan í Genúa á Ítalíu hefði hand­tekið mið­aldra karl­mann sem var að koma úr dóm­kirkju borg­ar­innar og þar hefði reynst vera á ferð einn æðsti yfir­maður ‘Ndrang­heta, Pasquale Bonavota, sem lög­reglan hafði verið á hött­unum eftir árum saman.

Meiri háttar sigur unn­inn gegn glæpa­lýðnum, til­kynnti lög­reglan stolt.

Og vissu­lega var þetta ágætur árangur. Öll sem þekkja til ‘Ndrang­heta vita þó að þótt einn haus sé af þessum grimmu sam­tökum höggv­inn, þá spretta fljót­lega fram tveir nýir í stað­inn.

‘Ndrang­heta-maf­ían er upp­runnin og hefur enn aðal­bæki­stöðvar sínar í hér­að­inu Kalabríu, yst á „tánni“ á Ítal­íu­skaga. Hún kom fram á sjón­ar­sviðið á 18. öld og saga hennar er svipuð og saga hinnar eig­in­legu Mafíu á Sikiley og Camorra í Napólí. Lengi vel lét ‘Ndrang­heta þó lítið að sér kveða utan hins fátæka land­bún­að­ar­hér­aðs Kalabríu en það tók að breyt­ast á efsta hluta 20. aldar og sér í lagi síð­ustu 30 árin.

Ísbílar þvætta eiturlyfjagróða

‘Ndrang­heta mun nú ráða að mestu kóka­ín­mark­aðnum í Evrópu í sam­vinnu við Suður-Amer­íku­menn og er farin að teygja sig ótrú­lega víða, enda leggur hún sér­staka áherslu á að kaupa sig inn í venju­leg fyr­ir­tæki, bæði stór og smá. Pylsu­vagnar og ísbílar á Ítalíu munu til dæmis ótrú­lega oft borga „skatt“ til ‘Ndrang­heta eða taka þátt í að þvætta gróð­ann af eit­ur­lyfjum, man­sali, vændi, okur­lánum og öðru því sem sam­tökin fást við. Þau vinna oft með albönsku mafí­unni og ýmsum rúss­neskum mafíum sem sumar eru taldar hafa furðu náin tengsl við rúss­nesk yfir­völd.

‘Ndrang­heta mun vera enn harðsvíraðri og lok­aðri en aðrar ítalskar mafíur og siða­reglur strang­ari. Og ofbeldið jafn­vel hrotta­legra ef eitt­hvað er. Nánast engir fá inn­göngu í ‘Ndrang­heta nema þeir sem eru fæddir inn í þær ættir sem þar ráða ríkjum. Piltar eru aldir upp frá blautu barns­beini til að taka við glæpa­verkum feðra sinna.

Þegja, hlýða og þjóna

Stúlkur eru hins vegar aldar upp til að þegja, hlýða og þjóna og það er athygl­is­vert að einmitt nú, þegar þessi (lík­lega tíma­bundni) sigur hefur unn­ist á ‘Ndrang­heta, þá skuli vera á ferð á streym­isveitum ný og mögnuð sjón­varps­s­ería sem fjallar um til­raunir kvenna til að brjót­ast úr hlekkjum feðra­veldis ‘Ndrang­heta með sam­vinnu við yfir­völd. Serían heitir upp á ensku The Good Mothers og er til sýnis bæði á Disney + og Hulu, ef mér skjöplast ekki, og óhætt er að mæla mjög ein­dregið með henni.

Serían er gerð eftir „non-fiction“ bók banda­ríska blaða­manns­ins Alex Perrys sem kom út 2018 og greindi frá öðrum áfanga í enda­lausri bar­áttu ítal­skra yfir­valda gegn ‘Ndrang­heta. Þar er athygl­inni einkum beint að þremur konum sem yfir­völdin von­ast til að fá til sam­vinnu við sig, en þar er við ramman reip að draga. Konurnar þurfa að yfir­vinna alda­gömul við­horf, hörku­legt upp­eldi og stöðuga kúgun áður en þær fást til að íhuga einu sinni sam­vinnu við yfir­völdin, sam­vinnu sem þær vita full­vel að setur þær í mikla og beina lífs­hættu.

Og börn­unum óhikað beitt sem vopnum gegn mæðrum sínum.

Illskeytt systir

Leik­stjórar eru tveir, gam­al­reyndur Breti að nafni Julian Jarrold, og hin ítalska Elisa Amoruso, sem gefur honum ekk­ert eftir í þeirri drunga­legu og nærri titr­andi spennu sem ein­kennir þætt­ina. Leikarar eru hver öðrum betri. Þekkt­astir þeirra eru lík­lega þær Barbara Chichiarelli, sem lék syst­ur­ina ill­skeyttu í ser­í­unum Suburra (þar sem aldeilis annar póll er tek­inn á mafí­una en í þess­ari seríu) en er hér full­trúi þrautseigra yfir­vald­anna, og svo Gaia Girace, sem lék Lílu í Fram­úr­skar­andi vin­konu.

Það er svo nýj­ast að fyr­ir­mynd einnar per­són­unnar í ser­í­unni (Guisepp­inu Pesci, leikin eft­ir­minni­lega af Val­ent­inu Bellè) hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún full­yrðir að þótt sögu­þráð­ur­inn hvað hana varðar sé í stórum dráttum réttur, þá sé farið alltof frjáls­lega með annað. Pabbi hennar, sem í þátt­unum er ruddi og hrotti, sé til dæmis voða elsku­legur kall í raun­inni! Stúlkur verða vita­skuld að gæta þess að ekki falli blettur á pabba, hvað sem á gengur, það vitum við.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár