Spennt að lýsa konunglegri skrautsýningu í beinni

Anna Lilja Þór­is­dóttir, frétta­maður á RÚV, mun lýsa krýn­ingu Karls Breta­kon­ungs í beinni útsend­ingu á RÚV. Þetta er í fyrsta sinn sem hún lýsir kon­ung­legri athöfn og spennustigið er hátt hjá kon­ungs­sinn­anum, sem segir að búast megi við sann­kall­aðri skraut­sýn­ingu.

Spennt að lýsa konunglegri skrautsýningu í beinni
Kon­ungs­sinni Áhugi á kon­ung­legum mál­efnum sam­einar nokkur af helstu áhuga­málum Önnu LIlju Þór­is­dóttir, frétta­manns á RÚV. „Þetta er gríð­ar­lega mikil saga, stjórn­mál, slúður, lífs­stíll og tíska. Þetta er fólk. Þetta er rosa margt í einum pakka.“ Mynd: Heiða Helgadóttir

„Í þessu sam­ein­ast mjög margt. Þetta er gríð­ar­lega mikil saga, stjórn­mál, slúður, lífs­stíll og tíska. Þetta er fólk. Þetta er rosa margt í einum pakka,“ segir Anna Lilja Þór­is­dóttir, frétta­maður á RÚV og einn fremsti kon­ungs­sinni lands­ins, um áhuga sinn á bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni.   

Karl III verður krýndur kon­ungur Bret­lands við hátíð­lega athöfn á morgun, laug­ar­dag, og mun Anna Lilja lýsa athöfn­inni í beinni útsend­ingu í sjón­varpi allra lands­manna. Hún er mjög spennt en þetta er í fyrsta sinn sem hún lýsir kon­ung­legri athöfn. „Þetta er stór­merki­legur við­burður, það er gaman að fá að upp­lifa þetta. Það eru 70 ár frá síð­ustu krýn­ingu.“

„Vissu­lega er þetta gam­all karl, en hann getur líka verið boð­beri nýrra tíma.“

Karl varð kon­ungur um leið og móðir hans, Elísabet II, féll frá í sept­em­ber í fyrra. Anna Lilja segir emb­ætt­is­tíð hans fara vel af stað. „Hann er nátt­úr­lega með ein­dæmum vel und­ir­bú­inn og hefur haft nægan tíma til að ákveða hvernig kóngur hann vill vera, lengri tíma en allir aðrir sem hafa verið á undan honum.“

Karl verður konungur

KonungurStiklað er á stóru um lífs­hlaup Karls III Breta­kon­ungs í hlað­varps­þátt­unum Karl verður kon­ungur.

Anna Lilja hefur hitað upp fyrir krýn­ing­una með þáttum um Karl á Rás 1 síð­ustu föstu­daga, Karl verður kon­ungur, þar sem hún ræðir við fólk úr ýmsum áttum um athöfn­ina, stemn­ing­una og kon­ungs­veldið. Í einum þætt­inum má heyra áhuga­verðar umræður Guðnýjar Óskar Laxdal, sem heldur úti sam­fé­lags­miðl­inum Royal Icelander, og Boga Ágústs­sonar frétta­manns, sem lýsir sér sem and­kon­ungs­sinna. Anna Marsibil Clausen, rit­stjóri hlað­varpa á RÚV, sér um fram­leiðslu þátt­anna, sem eru gæddir lífi með hljóð­brotum og nútíma­legri tón­list í kon­ung­legum bún­ingi. 

Hug­mynd­ina að þátt­unum fékk Anna Lilja þegar hún var í stuttu fríi. „Mér leidd­ist og fékk þessa hug­mynd,“ segir hún og hlær. Hug­myndin féll í góðan jarð­veg og Anna Lilja kann vel við hlað­varps­formið þar sem hún getur kafað dýpra en í hefð­bundnum frétta­flutn­ingi. „Sumir afgreiða kon­ungs­fjöl­skyld­una sem eitt­hvað yfir­borðs­kennt, að ein­hverju leyti er þetta það, en þetta er gríð­ar­lega merki­leg stofnun sem á sér langa sögu.“

Á eftir að  velja krýningarbolla

En Anna Lilja þarf að færa fórnir til að lýsa krýn­ing­unni í beinni. „Ég er í félags­skap sem heitir Kon­ung­legi klúbb­ur­inn, við erum sex konur sem höfum mik­inn áhuga á kon­ung­legum mál­efnum, við verðum með sam­kvæmi sem ég get ekki mætt í.“ Klúbb­ur­inn mun fylgj­ast með Önnu Lilju lýsa krýn­ing­unni og drekka úr kon­ung­legu bollastelli. Sjálf á Anna Lilja eftir að velja hvaða kon­ung­lega bolla hún ætlar að taka með sér í útsend­ing­una. „Það er úr mörgu að velja. Ég á ýmis­legt. Ég á til dæmis nýja bolla sem voru fram­leiddir í til­efni af krýn­ing­unni. Ég á hell­ing af Karls- og Díönu­dóti, Elísa­bet­ar­dóti, bolla með afa Karls og ömmu, langafa hans og langömmu, langa­langafa og langa­langömmu. Ég þarf að velta þessu fyrir mér. Svo á ég ótrú­lega skemmti­legan bolla með mynd af Karli þegar hann kom til Íslands árið 1975.“

Kon­ung­legt safnAnna LIlja hefur sankað að sér ýmsum kon­ung­legum dýr­gripum í gegnum tíð­ina. Einn bolli fær að vera með henni í krýn­ing­unni en valið er vanda­samt.

En við hverju má búast í krýn­ing­ar­at­höfn­inni sjálfri? 

„Krýn­ingin verður tals­vert styttri en hjá mömmu hans, þá var hún fimm tímar, núna er miðað við tvo og hálfan, held ég. Það má búast við skraut­sýn­ingu. Við erum að fara að sjá kór­ónur, veld­is­sprota og gull­vagn­inn sem er bara not­aður við krýn­ingar. Með því að halda svona við­burði eru þau að rétt­læta til­veru sína. Á öllum svona stór­við­burðum aukast vin­sældir þeirra.“ 

Anna Lilja er sömu­leiðis spennt að fylgj­ast með hvernig Karli mun vegna í emb­ætti, starfi sem hann hefur beðið eftir alla sína ævi. „En það má ekki alltaf tengja allt við aldur. Vissu­lega er þetta gam­all karl, en hann getur líka verið boð­beri nýrra tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár