Ofbeldi feðraveldisins og bjargráð

Sigríður Jóns­dóttir brá sér í Tjarn­ar­bíó og rýnir í verkið Stelpur og strákar ...

Ofbeldi feðraveldisins og bjargráð
Björk Guð­munds­dóttir að leika.
Leikhús

Stelpur og strákar

Höfundur Dennis Kelly
Leikstjórn Annalísa Hermannsdóttir
Leikarar Björk Guðmundsdóttir

Aðstoðarleikstjórn Melkorka Gunborg Briansdóttir og Ásta Rún Ingvadóttir

Hljóðmynd Andrés Þór Þorvarðarson

Ljósahönnun Magnús Thorlacius

Þýðing Matthías Tryggvi Haraldsson og Melkorka Gunborg Briansdóttir

Tjarnarbíó í samvinnu við sviðslistahópinn Fullorðið fólk
Gefðu umsögn

Ofbeld­is­verk eru ekki ný af nál­inni í leik­rit­un­ar­sög­unni enda er ofbeldi eitt af höf­uð­ein­kennum mann­kyns­ins. Engin önnur dýra­teg­und beitir jafn fjöl­breyttu, grófu og yfir­grips­miklu ofbeldi eins og mann­dýrið. Menn­irnir drepa ekki ein­göngu ímynd­aða óvini sína í stórum stíl á erlendri grund heldur einnig sitt nán­asta fólk heima fyrir.

Stelpur og strákar eftir Dennis Kelly skoðar náið sam­band tveggja ein­stak­linga út frá ofan­greindum hug­myndum um kerf­is­lægt ofbeldi. Tvær mann­eskjur hitt­ast óvænt á flug­velli, verða tryll­ings­lega ást­fangin, stofna til heim­ilis sem verður að lokum rústir einar. Upp­færslan hefur verið á leik­ferð um landið og lendir nú í Tjarn­ar­bíó í örstuttan tíma.

Samhliða fram­vindu verks­ins, sem snýr að umræddu sam­bandi, hleður leik­skáldið ofbeld­is­fullum mynd­lík­ingum inn í text­ann, orð­færi sem ein­kennir stundum mann­leg sam­skipti. Við tölum um að vilja drepa ein­hvern, grín­umst með ofbeld­is­fulla hegðun og sláum á létta strengi með aðstoð blóð­ugra sam­lík­inga. En eins og með margt annað í upp­bygg­ingu text­ans er stefið ofnotað í bland við klunna­legt stíl­bragð á köflum og aug­ljósum dæmum úr sam­tím­anum. Fram­vindan er langt og strembið ferða­lag að hinu aug­ljósa, blóð­ugum enda­lokum og tættu sál­ar­tetri.

Leik­konan Björk Guð­munds­dóttir útskrif­að­ist frá Lista­há­skóla Íslands árið 2021 og setur mark­miðið hátt í þessu hlut­verki, sem er virð­ing­ar­vert. Teng­ingin á milli Bjarkar og áhorf­enda er sömu­leiðis góð, hún spilar inn á nánd­ina af öryggi. Mikið mæðir á Björk enda stendur hún ein á svið­inu í tæpa tvo klukku­tíma. En oft og tíðum er of mikil áhersla lögð á texta­flutn­ing frekar en leiktúlkun. Til­finn­inga­leg fjar­lægð getur verið bjarg­ráð eftir áföll en er ekki spenn­andi til áhorfs eitt og sér.

Textinn gefur til kynna að ónefnda konan sé af verka­stétt, stað­reynd sem skiptir máli en tap­ast bæði í leik og þýð­ingu. Þýðendur eru Matthías Tryggvi Har­alds­son og Melkorka Gunborg Bri­ans­dóttir sem leysa verk­efnið til­tölu­lega vel en sum smá­at­riði missa marks. Sem dæmi má nefna hryssu­legu yfir­stétt­ar­kon­urnar og for­rétt­indapé­s­ana sem aðal­per­sónan nefnir, ein­stak­lingar geta treyst á aðstoð for­eldra sinna til að finna frama, og eru ráð­andi afl í enskri stétt­ar­menn­ingu. Þannig eru áhorf­endur staddir í félags­legu tóma­rými sem dregur úr krafti leik­sýn­ing­ar­innar.

Annalísa Her­manns­dóttir, leik­stjóri og leik­mynda­hönn­uður sýn­ing­ar­innar, útskrif­að­ist einnig frá LHÍ árið 2021 sem sviðs­höf­undur. Leik­myndin er byggð úr plasti; leik­tjöld og leik­munir eru eins og vett­vangur glæps eða slát­ur­húss í bland við barna­leik­föng. Þegar hin ónefnda kona talar við áhorf­endur stendur hún fyrir framan plast­t­jald en þegar hún talar við börnin sín er hún bak við sama tjald. Annalísa dregur þannig upp afmark­aða mynd af heimi leik­rits­ins, eins og þessir tveir heimar séu ótengdir. Þessar ákvarð­anir ýta undir fjar­lægð­ar­til­finn­ing­una og dregur úr teng­ingu við aðal­per­són­una.

Ekki getur verið til­viljun að sjón­varps­þátt­ur­inn Broadchurch sé nefndur sér­stak­lega í text­anum. Undir lok fyrstu þáttar­að­ar­innar er atriði sem inni­heldur per­sónu­leg átök, þegar maki möl­brýtur traust, sem svipa til svipt­ing­anna í leik­sýn­ing­unni. Texti og texta­flutn­ingur sem margir hafa reynt að end­ur­skapa síð­asta ára­tug­inn en fáum tek­ist.

Sumir afkimar sam­fé­lags­ins eru svo gegn­sósa af eitr­aðri karl­mennsku að við verðum samdauna ofbeld­inu. Eins og Kelly setur fram í leik­verk­inu: Er sam­fé­lagið smíðað þannig að karl­menn blóm­stri eða er til­gang­ur­inn með skipu­lag­inu að stoppa þá af? Full­orðið fólk er metn­að­ar­fullur nýr leik­hópur sem spenn­andi verður að fylgj­ast með, en þrátt fyrir fína frammi­stöðu Bjarkar grefur til­finn­inga­lega fjar­lægðin undan slag­krafti text­ans.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár