Telur þörf á pólitísku samtali um birtingu greinargerðar um Lindarhvol

Samkvæmt Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra væri æski­leg­ast að for­sætis­nefnd næði ein­hvers konar sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu um með­ferð grein­ar­gerðar setts rík­is­end­ur­skoð­anda um Lind­ar­hvol. „Við munum ekki leysa það með birt­ingu lög­fræði­á­lita sem hvert vísar í sína átt­ina.“

Telur þörf á pólitísku samtali um birtingu greinargerðar um Lindarhvol
Katrín segir að almennt sé hún þeirrar skoð­unar að stjórn­völd eigi að birta meira af upp­lýs­ingum en minna. Mynd: RÚV

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að æski­leg­ast sé að for­sætis­nefnd, þar með talið for­seti Alþingis, gæti kom­ist að sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu um með­ferð grein­ar­gerðar setts rík­is­end­ur­skoð­anda Sig­urðar Þórð­ar­sonar um Lind­ar­hvol. „Þarna þarf hrein­lega að eiga, að ég held, póli­tískt sam­tal um þessi mál.“

Þetta kom fram í máli ráð­herr­ans í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata spurði hana hvort birta ætti grein­ar­gerð­ina eða ekki. 

Mikil umræða hefur verið um grein­ar­gerð­ina og birt­ingu hennar und­an­farnar vikur. Snýst deilan um það meðal ann­ars hvort grein­ar­gerðin sé vinnu­skjal eða ekki. Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis hefur ekki viljað birta grein­ar­gerð­ina og hefur stjórn­ar­and­staðan gagn­rýnt það harð­lega. 

Birta eða ekki birta?

Björn Leví hóf mál sitt á þingi í dag á því að rifja upp ræðu for­sæt­is­ráð­herra frá árinu 2016 í umræðum um sölu á eignum sem komu frá slita­búum föllnu bank­anna en þar sagði ráð­herr­ann að í yfir­lýstum mark­miðum lag­anna hefði verið talað um að við umsýslu, fulln­ustu og sölu eigna skyldi félagið leggja áherslu á gagn­sæi, hlut­lægni, jafn­ræði og hag­kvæmni. Hag­kvæmni merkti þar að leitað skyldi hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­ina og í nefnd­ar­á­liti meiri­hlut­ans hefðu þessi sjón­ar­mið verið áréttuð og lögð hefði verið sér­stök áhersla á að ráð­herra myndi árétta í samn­ingum við félagið að stjórn­endur þess og starfs­menn við­hefðu vönduð og fag­leg vinnu­brögð þar sem um væri að ræða opin­berar eignir. Enn fremur að ef tvær leiðir stæðu til boða við ráð­stöfun á eignum skyldi velja þá leið sem væri gagn­særri.

Þing­mað­ur­inn spurði Katrínu út í skoðun hennar á því hvort birta ætti grein­ar­gerð­ina um Lind­ar­hvol eða ekki.

Spurði Björn Leví Katrínu um skoðun og skiln­ing hennar á birt­ingu grein­ar­gerðar setts rík­is­end­ur­skoð­anda vegna Lind­ar­hvols. „Það kemur skýrt fram í gögnum máls­ins að grein­ar­gerðin var send Alþingi, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og rík­is­end­ur­skoð­anda með vinnu­skjölum. Það er að segja: Alþingi var send grein­ar­gerðin, rík­is­end­ur­skoð­andi fékk grein­ar­gerð og vinnu­skjöl. Nú veltir maður því fyrir sér þá hver skoðun ráð­herra er með til­liti til upp­lýs­inga­laga, hvort það eigi að birta þessa grein­ar­gerð eða ekki með til­liti til gagn­sæis?“ spurði hann. 

Stjórnvöld ættu að birta meira af upplýsingum en minna

Katrín svar­aði og sagði að almennt hefði hún verið þeirrar skoð­unar að stjórn­völd, hvort sem um væri að ræða fram­kvæmd­ar­valdið, lög­gjaf­ar­valdið eða dóms­valdið, ættu að birta meira af upp­lýs­ingum en minna. Hún benti á að í upp­lýs­inga­lögum væri ákvæði um frum­kvæð­is­skyldu á stjórn­völd um að birta upp­lýs­ingar og í þeim lögum hefði gild­is­sviðið verið útvíkkað þannig að það næði einnig til stjórn­sýslu Alþingis. „Eins og er svo afmarkað nánar í þing­skap­a­lögum og reglum sem for­sætis­nefnd setur um á grund­velli þess­ara laga og síðar hafa verið settar þessar reglur á grund­velli þess­ara laga.“

Benti hún jafn­framt á að í lög­fræði­á­liti til for­sætis­nefndar sem úrskurðað var af úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál kæmi fram grein­ar­gerðin ætti erindi við almenn­ing. „Þar er kveðið á um sem sagt, eins og ég skil þetta mál, að það sé ekki óheim­ilt að birta þetta gagn. Ég skil alveg þau sjón­ar­mið að það geti verið vill­andi að birta gögn sem eru vinnu­gögn, en þá er vænt­an­lega hægt að útskýra það hvað er þá vill­andi í þeim gögnum þegar þau hafa verið send úr húsi því það er auð­vitað það sem upp­lýs­inga­lögin kveða á um, að þegar slík gögn eru send úr húsi þá í raun fellur niður skil­grein­ingin á því að þetta sé vinnu­gögn og um það skilst mér að deilan hafi meðal ann­ars staðið um. Er þetta vinnu­gagn eða ekki? Og sé þetta vinnu­gagn sem þá kannski mögu­lega hefði ekki átt að sam­þykkt úr húsi, er þá ekki hægt að skýra hvað nákvæm­lega í gagn­rýn­inni er þess eðlis að það sé vill­andi?“ sagði hún. 

Skylt að birta ekki gögnin eða heimilt?

„Gefum okkur að þetta væru vinnu­gögn,“ sagði Björn Leví þegar hann steig aftur í pontu í síð­ari fyr­ir­spurn sinni. Spurði hann að ef svo væri hvort hinu opin­bera, Alþingi eða ráð­herra væri skylt að birta ekki gögnin eða væri ráð­herra ein­fald­lega heim­ilt að birta þau. 

„Það er ákveð­inn munur á sem umboðs­maður var að spyrja um núna mjög nýlega og í þessu lög­fræði­á­liti sem hæst­virtur ráð­herra vís­aði í hér áðan þá var einmitt for­sætis­nefnd sem spurði um nýtt lög­fræði­á­lit varð­andi efni grein­ar­gerð­ar­innar til þess að spyrja um hvað í grein­ar­gerð­inni má ekki birt­ast. Ætti með lögum og reglum í raun­inni að vera einka­hagir eða ætti að sverta út? Og nið­ur­staðan úr því lög­fræði­á­liti var að birta ætti allt, ekki sverta yfir neitt. Þannig að miðað við allar þessar upp­lýs­ingar sem við höfum, miðað við ráð­herra upp­lýs­inga­mála, í hvaða stöðu erum við vissu­lega hérna gagn­vart Alþingi en grein­ar­gerð­irnar voru einnig sendar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra?“ spurði hann. 

Hægt að rökstyðja hvora niðurstöðuna sem er

Katrín svar­aði í annað sinn og sagði til að fara rétt með að gögn gætu talist vinnu­gögn þótt þau hefðu verið send öðrum, sam­kvæmt upp­lýs­inga­lögum. 

„En hver er mun­ur­inn á því að vera skylt að birta gögnin, hvenær manni er skylt að birta þau ekki og hvenær maður hefur heim­ild til að birta gögnin? Það er eig­in­lega spurn­ing hátt­virts þing­manns. Ég held því miður að í þessum efnum sé hægt að rök­styðja hvora nið­ur­stöð­una sem er, lög­fræði­lega. Ég held að það sé hægt og við höfum séð það gert. Þannig að stóra málið auð­vitað snýst um það að það væri æski­leg­ast, að mínu viti, að for­sætis­nefnd gæti bara ein­fald­lega náð ein­hvers konar sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu, þar með talið for­seti þings­ins, um með­ferð þessa gagns því ég held að við munum ekki leysa það með birt­ingu lög­fræði­á­lita sem hvert vísar í sína átt­ina, eins og við höfum séð. Þarna þarf hrein­lega að eiga, að ég held, póli­tískt sam­tal um þessi mál,“ sagði hún. 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TLS
    Tryggvi L. Skjaldarson skrifaði
    Hlýtur að vera æðislegt að fá að vera aðal. Öllum stefnumálum fórnað. Blessun lögð yfir grímulaust sukk og svínarí fyrir það eitt að fá að hanga á stólum. Ekki skrítið þótt VG liðar horfi í aðrar áttir til að finna baráttumálum sínum farveg.
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Forsætisnefnd tók samhljóma ákvörðun fyrir 1-ári síðan að undanskyldum forseta þingsins Birgi Ármannssyni (xD) að birta greinargerð Sigurðar Þórðarsonar þáverandi ríkisendurskoðanda Sigurður hefur lýst undrun sinni opinberlega að greinargerð/skýrsla hans hafi ekki verið birt, enda fer hljóð og mynd ekki saman við niðurstöðu Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisendurskoðanda sem var birt 2020.
    Almannahagsmunir trompa leyndarhyggju/lýgi/spillingu í lýðræðisríki.
    Klakki ehf (Exista) var sölu-rændur samkvæmt verðmati og núna bendir allt til að Lyfja hafi verið sölu-RÆND (4.2-milljarðar) 2016 þegar haft er í huga söluverð Lyfju í dag 8.7-milljarðar. Hengingarólin herðist hratt að hálsi valdníðingana í þingheimi.
    1
  • Siggi Rey skrifaði
    Fyrst núna þegar VG er í dauðateigjunum er Katrín að reyna klóra sig upp úr drullunni! Af hverju var ekki búið að taka þetta pólitíska samtal fyrir löngu! Við vitum öll að þótt þetta pólitíska samtal, jafnvel mörg, verði tekin leiðir það ekki til að að þessi Lindarhvolsglæpur verði upplýstur. Til þess er D flórinn of djúpur og fullur!
    5
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Björn dissaður hressilega. Katrín veit greinilega betur en Björn hvað hann er að spyrja um og blaðrar sig úr málinu án þess að í raun svara. Hún vill "politískt samtal" .
    1
    • Siggi Rey skrifaði
      Fyrst núna þegar VG er í dauðateigjunum er Katrín að reyna klóra sig upp úr drullunni! Af hverju var ekki búið að taka þetta pólitíska samtal fyrir löngu! Við vitum öll að þótt þetta pólitíska samtal, jafnvel mörg, verði tekin leiðir það ekki til að að þessi Lindarhvolsglæpur verði upplýstur. Til þess er D flórinn of djúpur og fullur!
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár