Evrópa ekki „heil á geði“ – og þarfnast björgunar

Bára Huld Beck er frétt­ari menn­ing­ar­innar í Berlín og fletti menn­ing­ar­kálfum þýsku stór­blað­anna til að sjá hvað væri helst að malla í menn­ing­ar­um­ræð­unni.

Evrópa ekki „heil á geði“ – og þarfnast björgunar

„Sérstök aðgerð“ 

Die Zeit: „Spezialopoperation“

Á for­síðu menn­ing­ar­blaðs­ins er stór mynd af dragdrottn­ingu að taka sig til á LGBTQ-festi­vali í Moskvu sem tekin var í októ­ber 2022. Greinin fjallar um hinsegin mál­efni í Rúss­landi og veltir grein­ar­höf­undur því fyrir sér hvað Pútín gangi til í and­stöðu sinni gegn LGBTQ-sam­fé­lag­inu og setur það í sam­hengi við stríðið í Úkraínu. Blaða­maður, sem er rúss­neskur, gefur í skyn að inn­rás Rússa sé ekki ein­ungis upp­hafið að her­ferð hans gegn hinseg­in­leika heldur hluti af stærri hug­myndum um að frelsa Evrópu – þar sem heims­álfan sé „ekki heil á geði“ og þurfi að vera bjargað. 

Inni í blað­inu eru að vanda umfjall­anir af ýmsum toga um bók­menntir, ljós­myndun, tón­list, kvik­myndir og leik­hús. Leik­skáldið Anton Pavlovich Chekhov fær sína umfjöllun, þrátt fyrir að tæp 119 ár séu liðin frá and­láti hans – og telur gagn­rýn­andi blaðs­ins hann eiga fullt erindi við nútím­ann og kannski sér­stak­lega núna. 

Lífræn efni í stað lífvera?

FAZ: Org­a­noide statt Org­an­ismen?

Fyrir utan leik­list­ar­um­fjöllun á for­síð­unni þá er grein um dýra­til­raunir en höf­undur telur að varla sé hægt að fækka þeim – eins og ætti að gera – þegar reglur um lyfja­þróun eru með þeim hætti sem þær eru. Segir í grein­inni að þrátt fyrir laga­breyt­ingar í Banda­ríkj­unum til að sporna við til­raunum á dýrum við þróun lyfja þá muni fram­kvæmdin í reynd ekki breyt­ast mikið á næstu árum og beri að skilja breyt­ing­una sem póli­tíska yfir­lýs­ingu. Þá er bent á að vís­inda­menn þrói nú líf­ræn efni sem hægt er að prufa lyfin á, í stað dýra. Margir segja þó dýrin nauð­syn­leg við slíkar til­raunir og að óábyrgt væri að hverfa frá þeim. Enn sé langt í land að hætt verði slíkum til­raunum og notuð verði líf­ræn efni í stað­inn. 

Einnig er fjallað í blað­inu um svokölluð „búm­er­ang-áhrif“ sem lýsa sér í því hvernig ofbeldi kemur alltaf í bakið á þeim sem beita því. Þá er bent á að frá stofnun Ísra­els­ríkis hafi bar­áttan verið milli hug­mynda um gyð­inga­ríki og lýð­ræð­is­ríki. Nýja rík­is­stjórnin þar í landi sé nú að fara þriðju leið­ina – leið Ung­verja­lands og Rúss­lands. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár