„Breiðu bökunum er hlíft en heimilunum ekki“

Verð­bólga, hækk­anir á bens­íni, mat­vöru og áfengi og „stór­hættu­leg“ íslensk króna. Þetta voru meðal ann­ars umfjöll­un­ar­efni á þingi í dag en for­maður Við­reisnar spurði for­sæt­is­ráð­herra hvað rík­is­stjórnin ætl­aði að gera til að bregð­ast við efna­hags­á­stand­inu á Íslandi í dag.

„Breiðu bökunum er hlíft en heimilunum ekki“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Þing­mað­ur­inn segir að hækk­anir á bens­íni, mat­vöru og áfengi séu beinar afleið­ingar ákvarð­ana rík­is­stjórn­ar­innar. Mynd: Davíð Þór

„Það eru auð­vitað fyrst og fremst heim­ilin í land­inu sem borga brús­ann,“ sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar þegar hún spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag út í áform rík­is­stjórn­ar­innar varð­andi hækk­andi verð­bólgu á Íslandi. 

For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði að verð­bólgan væri „auð­vitað stærsti óvinur almenn­ings í land­inu“ og eitt stærsta verk­efnið til að takast á við. 

Heimilin í landinu sem borga brúsann

Þor­gerður Katrín sagði í upp­hafi fyr­ir­spurnar sinnar að þvert á spár þá byrj­aði árið á hækkun verð­bólgu. „Hún er komin í tæp­lega 10 pró­sent. Stærstu þætt­irnir sem hækka, bensín, mat­vörur og áfengi, eru bein afleið­ing ákvarð­ana rík­is­stjórn­ar­innar. Neyt­enda­sam­tökin hafa dregið þetta ágæt­lega saman: Hækkanir rík­is­stjórn­ar­innar á bens­íni, búsi og búvörum leiða þessar hækk­anir. 

Allt eru þetta þættir sem rík­is­stjórnin gat haft áhrif á en gerði ekki heldur miklu frekar hitt. Hún kynti undir með því að ríða á vaðið í hækk­unum og veitti þar með talið sveit­ar­fé­lögum og fyr­ir­tækjum ákveðna fjar­vist­ar­sönnun í sínum hækk­unum, eins og við sjáum nú,“ sagði hún. 

Hún spurði hverjir það væru sem borg­uðu fyrir þetta. „Það eru auð­vitað fyrst og fremst heim­ilin í land­inu sem borga brús­ann. Við þessum hækk­unum var hins vegar ítrekað varað af hálfu laun­þega­hreyf­ing­anna, Samtaka atvinnu­lífs­ins og Neyt­enda­sam­tak­anna en á þau var ekk­ert hlustað hér fyrir jól. Á sama tíma þá fellur rík­is­stjórnin frá því að hækka gjöld á fisk­eld­is­fyr­ir­tækin á næsta ári eins og fyr­ir­hugað var.“ 

Þor­gerður Katrín sagði jafn­framt að Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hefði sent „bara eitt bréf“ og mót­mælt – og það hefði dugað fyrir rík­is­stjórn­ina. „Breiðu bök­unum er hlíft en heim­il­unum ekki. Það er auð­vitað ekk­ert sem kemur hér á óvart. Við hljótum því að spyrja hvort rík­is­stjórnin hafi ekki örugg­lega á fundum sínum rætt um þessa stöðu núna á mark­aði, hvað hún geti gert fyrir heim­ilin í land­inu, eitt­hvað sem stemmir stigu til að mynda við síhækk­andi verði á mat­ar­körf­unni, einum stærsta útgjalda­lið íslenskra heim­ila. Við hljótum að spyrja hvað rík­is­stjórnin ætli að gera til að spyrna við verð­bólg­unni og taka um leið á þeim hluta sem rík­is­stjórnin getur raun­veru­lega haft áhrif á.“

Þá spurði hún hver skila­boð rík­is­stjórn­ar­innar til heim­il­anna væru. „SFS sendi eitt bréf á rík­is­stjórn­ina og hún brást við. Hvað þurfa íslensk heim­ili að senda mörg bréf til rík­is­stjórn­ar­innar svo að hún bregð­ist við? Hvert er planið?“

Íslendingar hafi meiri reynslu af því að takast á við verðbólgu en flest nágrannaríkin

Katrín svar­aði og sagði að verð­bólga væri eitt brýn­asta málið sem þau væru að takast á við núna eins og aðrar rík­is­stjórnir á Vest­ur­löndum. „Við erum að glíma við mestu verð­bólgu sem sést hefur um ára­bil víð­ast hvar ann­ars staðar, en við Íslend­ingar höfum kannski meiri reynslu af því að takast á við verð­bólgu en flest nágranna­ríki okkar.“

Ráð­herr­ann sagði að ekki væri hægt að líta fram hjá því að allar þessar stað­reyndir hefðu legið fyrir þegar rík­is­stjórnin gekk frá fjár­lögum og tekju­band­ormi fyrir ára­mót. „Við gerðum okkur algjör­lega grein fyrir því að þetta hefði áhrif á verð­bólgu. Það breytir því ekki að þessir tekju­stofnar hafa rýrnað að raun­virði á und­an­förnum árum vegna þess að við höfum verið að halda hækk­unum á þeim í algeru lág­marki. Við höfum verið mjög hóf­stillt í hækkun þess­ara gjalda og ég tel ekki að það sé rétt­læt­an­legt að þeir rýrni meira við þær aðstæður sem eru uppi.“

Katrín Jak­obs­dóttirFor­sæt­is­ráð­herra segir að hækkun á áfengis- og tóbaks­gjaldi sé ekki eini söku­dólg­inn í auk­inni verð­bólgu – Það sé „væg­ast sagt ein­földun“.

Hún vildi einnig minna Þorgerði Katrínu á að tekjur af skatt­lagn­ingu öku­tækja og elds­neytis hefðu lækkað á und­an­förnum árum sam­hliða breyttri sam­setn­ingu bíla­flot­ans. 

„Það skiptir auð­vitað máli að við horfum til þess til lengri tíma að fleiri bíl­not­endur og bíl­eig­endur taki þátt í að greiða fyrir notkun á vega­kerf­inu. Breyt­ingin á gjald­töku, á krónu­tölu­gjöldum, af áfengi, tóbaki og elds­neyti er ætlað að hafa haft um það bil 0,2 pró­sent áhrif til hækk­unar á vísi­tölu neyslu­verðs. Við megum ekki gleyma að setja þetta í sam­hengi við þá stað­reynd, af því að hér er talað um álögur á almenn­ing, að þessi rík­is­stjórn beitti sér fyrir lækkun tekju­skatts á tekju­lægstu ein­stak­ling­ana sem er eitt­hvað sem munar raun­veru­lega um fyrir þann hóp.

Hvað varðar verð­bólg­una sjálfa þá er hún á breiðum grunni. Eins og ég segi, þetta er eitt stærsta verk­efnið til að takast á við. En það að benda á hækkun á áfengis- og tóbaks­gjaldi sem eina söku­dólg­inn í þessu, það er væg­ast sagt ein­földun,“ sagði ráð­herr­ann. 

Vill setja meiri byrðar á „breiðu bökin“ – á sjávarútveginn og fiskeldið

Þor­gerður Katrín sagði í fram­hald­inu að rík­is­stjórnin hefði kynnt fjár­laga­frum­varpið í haust með því að það yrði við­spyrna gegn verð­bólgu og treysta ætti kaup­mátt­inn. 

„For­sæt­is­ráð­herra kemst ekki hjá því að átta sig á því að hækk­anir rík­is­stjórn­ar­innar á bens­íni, á bús­inu og á búvörum ekki síst hafa leitt til þess að verð­bólgan er núna að hækka en ekki lækka í mán­uði sem hún alla jafna á að lækka. Ef Viðreisn hefði verið í stjórn þá hefðum við ekki verið að hækka gjöldin núna í sam­ræmi við verð­lag. 

Við hefðum sett meiri byrðar á breiðu bökin eins og sjáv­ar­út­veg­inn og fisk­eldið. Við hefðum lækkað toll­ana á nauð­synja­vörur íslenskra heim­ila og hætt við sér­reglur á mjólk­ur­vöru, lagt niður verð­lags­nefnd búvara og við hefðum farið í bein­greiðslur til bænda. Við hefðum nýtt og við hefðum treyst á sam­keppn­ina, treyst á frelsið í bar­átt­unni við verð­bólg­una,“ sagði hún. 

Þá telur Þor­gerður Katrín að auð­vitað hefði strax átt að fara í það ferli að losa „kverka­takið sem íslenska krónan hefur á heim­ilum lands­ins því að ann­ars lenda ekki bara börnin okkar heldur líka barna­börnin og barna­barna­börnin í þessum enda­lausa rús­sí­bana verð­bólgu og okur­vaxta. Mis­réttið í sam­fé­lag­inu mun halda áfram ef við tökum ekki á þessu þar sem heim­ilin á Íslandi eru sett undir það að bera upp íslensku krón­una meðan breiðu bökin og vinir rík­is­stjórn­ar­innar fá að leika sér fyrir utan íslenska krónu­hag­kerfið.“

Spurði hvernig þingmaðurinn ætlaði að útskýra verðbólguna í Evrópu

Katrín svar­aði aftur og sagði það kæmi henni ekki á óvart að þing­mað­ur­inn ræki þetta allt saman til íslensku krón­unnar og þætti henni gaman að fá að eiga sér­staka umræðu um það hvernig Þor­gerður Katrín skýrði þá verð­bólg­una í Evrópu. 

„Verð­bólg­una í lönd­unum í kringum okkur þar sem hún er víð­ast hvar hærri þrátt fyrir að þau lönd séu ekki með hina stór­hættu­legu íslensku krónu. Við getum ekki skellt skuld­inni af verð­bólg­unni á íslensku krón­una. Við verðum líka að átta okkur á því að rík­is­stjórnin var með aðgerðir gegn þenslu í fjár­laga­frum­varp­inu, nákvæm­lega eins og kynnt var og ég þakka hátt­virtum þing­manni fyrir að vekja athygli á því, með ákveðnu aðhaldi og með ákveð­inni tekju­öflun.“ 

Ráð­herr­ann sagði jafn­framt að rík­is­stjórnin hefði gripið til aðgerða til að verja tekju­lægstu hópana fyrir áhrifum verð­bólg­unnar. „Ég þarf ekk­ert að minna hér á hús­næð­is­stuðn­ing­inn, ég þarf ekki að minna á hvernig við gripum strax inn í til að verja kjör þeirra sem fá greiðslur úr almanna­trygg­ingum þannig að það er alveg ljóst að við höfum verið á vakt­inni. Því er núna spáð að verð­bólgan hjaðni á árinu. Það er auð­vitað risa­stórt verk­efni fyrir okkur öll, ekki bara okkur hér heldur líka á vinnu­mark­aði, að allt geti gengið upp til þess að svo megi verða því að verð­bólgan er auð­vitað stærsti óvinur almenn­ings í land­inu.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Siggi Rey skrifaði
    Þetta er ekkert nýtt hjá frúnni þessari! Hagsmunsamtök Heimlana hafa lengi bent á að heimilin borgi ætíð brúðan. Sama hvað1’!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár