Frá Berlín til Íslands – Útvíkkun á formi, afbygging og póstdramatík

Bára Huld Beck spjall­aði við íslenskt leik­hús­fólk sem hefur starfað á leik­hús­sen­unni í Berlín og flutt stefnur og strauma á milli Berlínar og Reykja­víkur – já, Íslands – og end­ur­nýjað um margt hug­myndir land­ans um leik­hús.

Frá Berlín til Íslands – Útvíkkun á formi, afbygging og póstdramatík
Volks­bühne er frægt m.a. fyrir að vera í fremstu röð varð­andi list­rænt hug­rekki en það hefur þó tekið ýmsum breyt­ingum síð­ustu ár. Arnbjörg segir að áhuga­verð þróun eigi sér nú stað með inn­koma sterkra kven­radda sem komi ekki úr hinni hefð­bundnu leik­hús­senu. Mynd: Bára Huld Beck

Tenging hefur verið á milli þýsks leik­húss og þess íslenska síðan íslenskir lista­menn fóru að venja komur sínar í leik­hús sér­stak­lega í Berlín á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Áhrifin voru áþreif­an­leg í íslensku leik­húsi um og eftir alda­mótin og fram á nýja öld þar sem afbygg­ing var áber­andi – og hrist var upp í við­teknum venjum, normið rifið niður og eitt­hvað nýtt byggt úr rúst­unum.

Breytti lífinu að kynnast þessari leikhúsmenningu

Egill Heiðar„Ef múr­inn gat fallið þá geta hin fag­ur­fræði­legu prinsipp líka fallið – og hefðir.“

Egill Heiðar Anton Pálsson býr nú í Noregi en hefur dvalið lang­dvölum síð­ustu ára­tugi í Berlín – og hefur því mikið verið á ferð­inni um Evrópu. Hann fór fyrst til Berlínar árið 1995 þegar hann var búinn með fyrsta árið í Leik­list­ar­skól­anum. „Þar sá ég í fyrsta sinn leik­list í Berlín og þá þetta fræga leik­hús Volks­bühne.“ Hann segir að sú reynsla hafi breytt lífi sínu. „Af því að ég sá leik­list þarna sem ég hafði aldrei séð áður. Í formi sínu og inni­haldi og leikstíls sem ég hafði aldrei kynnst áður, sem varð til þess að ég hélt áfram í leik­list og lærði leik­stjórn.“

Hann segir að þetta hafi haft gríð­ar­leg áhrif á sig sem lista­mann, þetta þýska leik­hús. „Fyrir mér breytti það lífi mínu að kynn­ast þess­ari borg – þess­ari leik­list­ar­menn­ingu sem er þar.“

Eftir heim­komu í kringum árið 2002 miðl­aði hann reynslu sinni í Lista­há­skól­anum ásamt öðrum sem höfðu verið úti. Hann segir að útgangs­punkt­ur­inn hafi verið: „Breyt­ingin byrjar í mennt­un­inni.“ Þannig hafi áhrif þýsks leik­húss farið beint inn í æðar íslenska leik­húss­ins.

Schaubühne, ásamt Volks­bühne, end­ur­skil­greindi á síð­ustu ára­tugum fyrir og eftir alda­mót hvað leik­hús væri. Egill vann þar um tíma sem aðstoð­ar­leik­stjóri Thomasar Ostermeier. „Þetta hafði gríð­ar­leg áhrif á mig sem lista­mann, þetta þýska leik­hús.“

„Ef múrinn gat fallið þá geta hin fagurfræðilegu prinsipp líka fallið – og hefðir“

Að mati Egils hefur afbygg­ing Franks Castorf, fyrrum leik­hús­stjóra í Volks­bühne og leik­stjóra, haft mikil áhrif á íslenskt leik­hús. Egill útskýrir afbygg­ingu sem svo að hún sé verk­færi póst­módern­ism­ans. „Þú afbyggir sam­fé­lagið til að kom­ast að því hverjar bygg­ing­ar­ein­ing­arnar séu.“ Hann segir að lista­menn hafi notað ýmsar aðferðir til þess, m.a. með því að leika illa, vera þau sjálf, lesa upp sviðs­lýs­ingar – sem sagt ekki gert það sem var ætl­ast til af þeim. Þannig hafi þeir „tekið heim­inn í sundur, rifið hann niður“.

Hann segir að bylt­ingin sem kom í kjöl­far fall Berlín­ar­múrs­ins hafi haft þau áhrif að fólk upp­götv­aði að ekk­ert væri eilíft. „Ef múr­inn gat fallið þá geta hin fag­ur­fræði­legu prinsipp líka fallið – og hefðir.“ Hann segir að í því felist gríð­ar­legt frelsi og mikil orka.

Varðandi íslenskt leik­hús þá segir Egill að við þjá­umst af „hræði­legri minni­mátt­ar­kennd“ en út frá „brjál­uðum egóisma“. „Þetta er svo skemmti­lega ban­væn blanda. Íslensk leik­list býður upp á alla flóru sem þú finnur hvar sem er, í hvaða borg sem er.“

Egill segir þannig vera mikla breidd í íslenskri leik­list. „Mér finnst geggjað að koma heim til Íslands og fylgj­ast með leik­hús­inu þar,“ segir hann og bætir því við að sú menntun sem finna má á Íslandi sé á mjög háu stigi. Hann telur að við eigum að hrósa okkur fyrir það og ekki endi­lega vera góð með okkur – heldur sátt.

Útvíkkun á „hvað er leikhús“

Arnbjörg María„Helsti mun­ur­inn á íslensku sen­un­inni og þeirri þýsku fyrir utan stærð­ina er þessi mikli nún­ingur á milli stofn­ana­leik­húss og frjálsu sen­unnar og ann­arra list­greina.“

Arnbjörg María Dani­el­sen hefur starfað í sviðs­listum erlendis til fjölda ára. Hún segir að þýska leik­húsið hafi upp úr alda­mótum 2000 gengið í gegnum mikla svipt­ingar hvað varðar aðferða­fræði og nálgun. Þarna byrj­aði fólk að skil­greina hið „póst­dramat­íska leik­hús“ til aðgrein­ingar frá hinu hefð­bundna „dramat­íska“ tal­leik­húsi.

„Þó að í praxis hafi það sem er kallað póst­dramat­ískt svo sem alltaf verið til staðar í ýmsum öngum leik­húss­ins í ára­tugi og fræði­menn rann­sakað þessa þróun í lengri tíma. En þetta verður svona meg­in­straumsum­ræða í leik­húsi á þessum tíma. Þessi útvíkkun á „hvað er leik­hús“, aukin teng­ing við gjörn­inga­list, tækni, hljóð­list, star­fræna miðla, end­ur­skoðun á við­fangs­efnið, per­sónur og leik­endur. Við sjáum mikla aukn­ingu á sam­vinnu við ein­stak­linga úr öðrum senum og jað­ar­settum hópum í bland við leik­ara. Og leik­ara sem eru ekki leik­arar. Þar var mikil útvíkkun á form­inu og heill­andi per­sónu­leikar sem drifu þetta áfram, ekki hefð­bundnir leik­stjórar.“

Hún segir að áhuga­vert sé að eitt þekktasta póst­dramat­íska leik­skáldið, Renée Pollesch, sé nú leik­hús­stjóri í Volks­bühne, og stýri þar ásamt öfl­uga tón­list­ar­kúratornum Marlene „Bür­gerkurator“. „Þar er maður að sjá mjög áhuga­verða þróun og það allra áhuga­verð­asta þar er inn­koma mjög sterkra kven­radda sem koma ekki úr hinni hefð­bundnu leik­hús­senu, sem eru að skapa stór­brotin sviðs­verk sem sprengja út formið án mála­miðl­ana.“

Spennandi raddir og tilraunir sem mættu fá meira vægi á Íslandi

Margir hópar í Þýska­landi, óháð Berlín, fá leiða á hinu svo­kall­aða klass­íska tal­leik­húsi og við­fangs­efnum þess, að sögn Arn­bjargar Maríu. Hún segir að sjálf­stæðir hópar fari sínar eigin leiðir, skapi á eigin for­sendum utan stofn­ana­leik­húss­ins og séu þannig með allt aðra nálgun á leik­hús. „En þau eru í dag orðin nokk­urs konar stofnun sjálf,“ bætir hún við.

Þá bendir hún á að í dag lifi hið póst­dramat­íska leik­hús góðu lífi hlið við hlið hins „klass­íska leik­húss“. Margir sem voru í sjálf­stæðu sen­un­inni séu sýni­legir í stóru stofn­unum í dag og fag­ur­fræði og aðferðir víxl­verk­andi. „Helsti mun­ur­inn á íslensku sen­un­inni og þeirri þýsku fyrir utan stærð­ina er þessi mikli nún­ingur á milli stofn­ana­leik­húss og frjálsu sen­unnar og ann­arra list­greina.“ Hún segir að á Íslandi hafi ýmsir í gegnum tíð­ina reynt að hrista upp í íslensku leik­húsi en hún bendir á að það sé frekar hefð­bundið og meg­in­straums í eðli sínu – þó að það séu virki­lega góðar sýn­ingar inn á milli. „En það eru spenn­andi raddir og til­raunir sem mættu fá meira vægi. Eitthvað sem við sjáum miklu meira af í dans­sen­unni, mynd­list­inni og sjálf­stæðu leik­hús­sen­unni, það er miklu betri umgjörð og fjár­mögnun.“

„Gjörbreytti hugmyndum mínum um hvað leikhús gæti verið“

Þor­leifur Örn„Ísland er mikið nær skand­in­av­ískum nat­úr­al­isma en þarna er tæki afbygg­ing­ar­innar komið inn í leik­húsið í Þýska­landi.

Þor­leifur Örn Arn­ars­son hefur gert garð­inn frægan í Berlín og víðar í Þýska­landi en hann hefur sett upp tugi sýn­inga þar í landi. Hann fór til Berlínar í leik­stjóra­nám eftir að hafa útskrif­ast sem leik­ari hér heima.

Hann var alinn upp í ákveð­inni leik­hús­hefð á Íslandi en ákvað, eftir að hafa farið í heim­sókn til Berlínar og séð sýn­ingar þar sem heill­uðu hann upp úr skónum, að breyta til og flytja út. Hann heill­að­ist af aðferða­fræð­inni og frels­inu í bæði formi og hugsun. „Þetta gjör­breytti hug­myndum mínum um hvað leik­hús gæti verið og ég hugs­aði að ef ég ætl­aði mér að forma mitt eigið leik­hús þá yrði ég að kom­ast inn í þennan skóla í Berlín – og ég komst inn. Þá fór mér að skilj­ast að ólíkt Íslandi, sem er með tvö stofn­ana­leik­hús og síðan frjálsa leik­hópa, þá eru 180 stofn­ana­leik­hús í Þýska­landi og hund­ruð leik­hópa. Í þannig umhverfi er nátt­úr­lega fram­þróun, sam­tal og suðu­pottur af nýj­ungum – og af nýrri hugsun,“ bendir hann á.

Leikhús hefur samfélagslegt mikilvægi fyrir Þjóðverja eins og bókmenntir fyrir Íslendinga

Þýska tungu­málið og þjóð­ríkið sem verður til á ofan­verðri 18. öld og byrjun 19. aldar byggir að svo stórum hluta sjálfs­mynd sína á stóru þýsku skáld­unum, að hans sögn. Leikhús hafi sam­fé­lags­legt mik­il­vægi fyrir Þjóð­verja á meðan á Íslandi sé það bók­mennta­arf­ur­inn. „Ísland er mikið nær skand­in­av­ískum nat­úr­al­isma en þarna er tæki afbygg­ing­ar­innar komið inn í leik­húsið í Þýska­landi. Það var búið að frelsa leik­húsið undan höftum hinnar aristótel­ísku frá­sagn­ar­að­ferðar.“

Hann bendir jafn­framt á að leik­stjór­inn hafi gríð­ar­legt vægi sem annar höf­undur í Þýska­landi, enda eru og voru mörg stór skáld þar í landi einnig leik­stjórar. „Í svona sam­hengi eru tak­mörk þess sem hægt er að gera svo miklu víð­ari.“

Þor­leifur er með ýmis verk­efni í vinnslu, bæði hér heima sem og erlendis, en hann flutt­ist frá Berlín til Íslands fyrir nokkrum árum. Hann seg­ist vera spenntur fyrir íslensku leik­húsi um þessar mundir þar sem mikil gróska sé innan þess. „Nú þegar miklar sam­fé­lags­breyt­ingar standa yfir og raddir sem lengi hafa verið þagg­aðar niður fá sviðið, þá getur það ekki annað en haft jákvæð og spenn­andi áhrif á leik­húsið sem sam­fé­lags­lega rann­sókn­ar­stöð.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár