Hlutur Vísis-systkinanna í Síldarvinnslunni 18 milljarða virði

Þegar greint var frá kaupum Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi í fyrra­sumar kom fram að sá hluti kaup­verðs­ins sem greiddur yrði með hluta­bréfum væri 14 millj­arðar króna. Síðan þá hefur hlut­ur­inn hækkað um fjóra millj­arða króna. Verð­mætasta eignin sem Síld­ar­vinnslan keypti var 3,54 pró­sent hlut­deild af úthlut­uðum fisk­veiði­kvóta.

Hlutur Vísis-systkinanna í Síldarvinnslunni 18 milljarða virði

Í júlí var greint frá því að systk­inin sex sem áttu útgerð­ar­fyr­ir­tækið Vísi í Grinda­vík hefðu ákveðð að selja það til Síld­ar­vinnsl­unnar. Sölu­verðið var sagt 31 millj­arður króna, að með­töldu yfir­töku skulda upp á ell­efu millj­arða króna. Sex millj­arðar króna áttu að greið­ast í reiðufé svo hægt yrði að gera upp skatt­greiðslur vegna kaupanna. 

Systk­inin sex; Pétur, Páll, Svanhvít, Margrét, Kristín og Sólný Pálsbörn, fengu auk þess rétt um átta pró­sent hlut í Síld­ar­vinnsl­unni við söl­una. Mest fékk Pétur, sem er for­stjóri Vísis, eða um 1,6 pró­sent hlut. Hin systk­inin fengu 1,3 pró­sent hvert. Í til­felli Páls skipt­ist sá hlutur milli hans og eig­in­konu hans, Guðmundu Krist­jáns­dóttur. 

Þegar salan var til­kynnt, með fyr­ir­vara um sam­þykki hlut­hafa­fundar og Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sagði að virði þess hlutar sem systk­inin myndu fá í sinn hlut yrði 14 millj­arðar króna.

Síðan þá hefur virði Síld­ar­vinnsl­unnar hækkað umtals­vert, og mark­aðsvirðið er nú um 226 millj­arðar króna. Vísis-systk­inin fengu hluti sína í Síld­ar­vinnsl­unni 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Sam­eig­in­legt virði þeirra er nú rétt yfir 18 millj­arðar króna. Hlut­ur­inn sem þau eiga, og geta nú selt fyrir reiðufé á virkum hluta­bréfa­mark­aði kjósi þau svo, hefur hækkað um fjóra millj­arða króna á hálfu ári. 

Kvótinn langverðmætasta eignin

Vísir hagn­að­ist um 797 millj­ónir króna á árinu 2021 og virði fasta­fjár­muna (fast­eign­ir, skip, vélar og tæki) var 5,3 millj­arða króna í lok þess árs, sam­kvæmt árs­reikn­ingi. Ljóst er að það var eitt­hvað annað sem Síld­ar­vinnslan var að borga á fjórða tug millj­arða króna fyrir en rekstur, skip og tæki.

Helstu bók­færðu eignir Vísis utan fasta­fjár­muna voru afla­heim­ildir sem metnar voru á 90,9 millj­­ónir evra, alls um 13,4 millj­­arða króna á árs­loka­­gengi árs­ins 2021. Afla­heim­ildir eru nær und­an­­tekn­ing­­ar­­laust van­­metnar í reikn­ingum sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja, en fyrir við­­skiptin var heild­­ar­­upp­­­lausn­­ar­virði úthlut­aðs kvóta á Íslandi áætlað um 1.200 millj­­arðar króna, miðað við kaup Síld­­ar­vinnsl­unnar á útgerð­inni Bergi Hug­in árið 2021. Kaupin á Vísi voru langt undir því verð­i. 

Alls heldur Vísir á 3,54 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta sam­kvæmt nýbirtum tölum Fiski­stofu um sam­þjöppun í sjáv­ar­út­vegi. 

Blokk með næstum fjórðung alls kvóta

Eftir að kaupin á Síld­ar­vinnsl­unni gengu í gegn var til stærsta útgerð á Íslandi, ef miðað er við úthlut­aðan kvóta í afla­marks­kerf­inu. Síld­ar­vinnslan átti fyrir tvö dótt­ur­fé­lög í útgerð, Berg-Hug­in og Berg ehf. Sam­an­lögð afla­hlut­deild þess­ara fjög­urra útgerða er 12,11 pró­sent og rétt yfir lög­bundnu tólf pró­sent hámarki sem tengdir aðilar mega eiga. 

Stærstu eig­endur Síld­­­­­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji og félagið Kjálka­­­­­nes, sem er í eigu sömu ein­stak­l­inga og eiga útgerð­ina Gjögur frá Gren­i­vík. Þar er meðal ann­­­­­ars um að ræða Björgólf Jóhanns­­­­­son, sem var um tíma annar for­­­­­stjóri Sam­herja, og fólk sem teng­ist honum fjöl­­­­skyld­u­­­­bönd­um, meðal ann­­­ars syst­k­ini hans. Auk þess á Kald­bak­­­­­­­ur, félag í eigu Sam­herja, 15 pró­­­­­­­sent hlut í öðru félagi, Eign­­­­­ar­halds­­­­­­­­­fé­lag­inu Snæfugli, sem á hlut í Síld­­­­­­­ar­vinnsl­unni. Á meðal ann­­­­­arra hlut­hafa í Snæfugli er Björgólf­­­­­ur. Samtals eiga þessir aðilar 49,7 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni eftir hluta­fjár­aukn­ing­una sem fram­kvæmd var í fyr­ir­tæk­inu til að greiða Vísis-systkin­unum.

For­stjóri Samherja, sem á dótt­ur­fyr­ir­tækin Samherja Ísland og Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­inga, er Þor­steinn Már Bald­vins­son, stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar. 

Þegar talin er saman afla­hlut­deild Sam­herja Ísland, Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga, Síld­ar­vinnsl­unn­ar, Vís­is, Gjög­urs og Bergs-Hug­ins og Bergs (sem eru báðar dótt­ur­fé­lög Síld­ar­vinnsl­unn­ar) þá heldur sú blokk á 23,39 pró­sent úthlut­aðra afla­heim­ilda. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár