Jólasóun: Gámarnir fullir af „góðu stöffi“

Íslend­ingar kaupa sér og sóa í leið­inni sífellt meira á sama tíma og lofts­lags­váin knýr fastar að dyrum. Gámagrams­arar reyna að vinna gegn sóun með því að sækja mat ofan í ruslagáma utan við stór­mark­aði, bak­arí og heild­sölur. Hjá Rauða kross­inum og Góða hirð­inum fyllist allt af því sem land­inn hafði síð­ast æði fyrir; nú síð­ast til að rýma fyrir jóla­góss­inu.

Jólasóun: Gámarnir fullir af „góðu stöffi“
Rýmt fyrir nýjum vörum Mikið er að gera fyrir og eftir jól hjá fólki sem vinnur við að taka á móti not­uðum hús­gögnum, raf­tækjum og fatn­aði. Miklu magni af æti­legum mat er einnig hent í ruslið á þessu tíma­bili. Mynd: Heiða Helgadóttir

Nytjagámar troð­fyll­ast fyrir og eftir jól þegar fólk er að rýma fyrir nýjum vörum heima hjá sér. Þetta á við um fatnað og alls kyns hús­búnað. Einka­neysla var „kröftug“ fyrir jól, að sögn Rann­sókn­ar­set­urs versl­un­ar­innar. Aukin neysla almenn­ings veldur meiri sóun á ýmiss konar vörum, þar á meðal mat.  

Um þessar mundir ber vel í veiði hjá fólki sem sækir mat í gáma fyrir utan mat­vöru­versl­anir, „met­upp­skera í jan­úar“ segir kona sem hefur sótt mat í ruslagáma. Heim­ildin slóst í för með gámagrams­ara á dög­unum.

Meira en milljarði tonna af mat sóað árlega

Ríflega þriðj­ungur þess matar sem fram­leiddur er fyrir Íslend­inga endar í rusl­inu, líkt og hjá öðrum vel­meg­andi þjóðum. Um 14 pró­sentum mat­væla er hent áður en þau koma til neyt­and­ans og um 17 pró­sent mat­væla endar í rusl­inu fyrir utan versl­anir og á heim­ilum fólks sem býr við allsnægtir. Um 1,3 millj­örðum tonna af mat er sóað …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðrún Bjarnadóttir skrifaði
    Misskilningur varðandi föt í nytjagáma. Allur textíll, líka götóttir sokkar, á að fara í endurvinnslugáma Rauða krossins
    2
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Ég held að það sé við hæfi að reyna að finna siðsamlegra orð en "gámagramsarar". Þarna er fólk sem á í hlut, ekki mávar.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár