Brýnt að ná til karla: Áfengi og þunglyndi er eitruð blanda

Þung­lyndi skeytir engu um stétt, segir Högni Ósk­ars­son geð­læknir. Í störfum sínum hefur hann séð að karlar sækja sér síður aðstoðar og tala minna um til­finn­ingar en konur. Tíðni sjálfs­víga karla hefur ekki lækkað hér á landi, líkt og á Norð­ur­lönd­unum.

Brýnt að ná til karla: Áfengi og þunglyndi er eitruð blanda
Erfitt að missa sjúk­linga Högni segir að hann hafi á þeim fjórum ára­tugum sem hann starf­aði sem geð­læknir sinnt nokkrum fjölda sjúk­linga sem síðan tóku eigið líf. Það hafi verið erfitt að upp­lifa. Mynd: Heiða Helgadóttir

Karlar hafa lítið til­finn­inga­læsi og eru enn þá plag­aðir af ein­hverju hetju­við­horfi, að bjarga sér sjálfir. Ef körlum líður illa fara þeir frekar að berja ein­hverja, eða drekka brenni­vín, frekar en að setj­ast niður og tala um líðan sína. Þetta rekum við okkur á alls staðar.“

Þetta eru orð Högna Ósk­ars­sonar geð­læknis, sem ætti að þekkja vel til, haf­andi sinnt geð­lækn­ingum í á fimmta ára­tug. Tilefnið er að sam­kvæmt nýrri sam­nor­rænni rann­sókn sem Högni vinnur að ásamt öðrum kol­legum er hefur tíðni sjálfs­víga karla, 25 ára og eldri, haft til­hneig­ingu til að aukast hér á landi miðað við hin Norð­ur­löndi, og í yngsta ald­urs­hópnum, undir 25 ára, er hún hvað hæst. Ekki nóg með það heldur hefur sjálfs­vígum karla fækkað á hinum Norð­ur­lönd­unum, frá síð­ustu alda­mótum, á meðan slíku er ekki að heilsa hér á landi. Þvert á móti hefur sjálfs­vígum karla, eldri en 25 ára, fjölgað hér á landi frá alda­mótum.

Sjálfs­víg eru alltaf harm­leikur sem snertir marga. Þau snerta fjöl­skyldu, stór­fjöl­skyldu, vina­hópa, skóla­hópa og vinnu­hópa, heil sam­fé­lög jafn­vel. Þau eru sam­fé­lag­inu þannig mjög dýr, á mörgum sviðum. „Ef við horfum til dæmis til ungra karla þá er mjög dýrt fyrir sam­fé­lagið að missa þá, hvort sem er vegna sjálfs­víga eða alvar­legra veik­inda, á aldr­inum 25, 30, 40 ára. Það er búið að fjár­festa mjög mikið í mann­eskj­unni, í gegnum mennta­kerfið og heil­brigð­is­kerfið að ein­hverju leyti líka. Þetta eru glötuð verð­mæti. Þetta er kald­rana­leg nálgun til að lýsa þessu en það þarf að reikna þetta í efna­hags­legu til­liti líka,“ segir Högni og setur þessa nálgun í sam­hengi við að ekki hafa verið settir fjár­munir í for­varnir gegn sjálfs­vígum, að hans mati, svo vel sé. Hið sama megi segja um geð­heil­brigð­is­kerfið. „Fyrir sam­fé­lagið er mik­il­vægt að ná betur utan um þetta, bæði efna­hags­lega, út frá lýð­fræði­legum sjón­ar­miðum og út frá ham­ingju­stuðli sam­fé­lags­ins, og ekki síst til að vernda okkur fyrir þeim áföllum sem fylgja í kjöl­far þess að ein­hver tekur þá ákvörðun af svipta sig lífi.“

Auðveldara að ná til kvenna

Högni segir að nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar sem nefnd er hér að framan hafi stungið, sú stað­reynd að hér á landi, ólíkt Evrópu og raunar heim­inum öllum, hefði sjálfs­vígum karla ekki fækkað að eninu marki und­an­farna tvo ára­tugi. Hann telur nauð­syn­legt að hefj­ast handa af fullu afli við for­varn­ar­vinnu gegn sjálfs­vígum, sem muni mið­ast að körlum, til að bregð­ast við. „Þetta hljómar ekki vel, svona kynja­fræði­lega, en að mínu mati er mjög mik­il­vægt að leggja áherslu á karl­ana. Það er auð­veld­ara að ná til kvenn­anna, þær hafa meira stuðn­ings­net í kringum sig, eru opn­ari fyrir því að ræða málin við vin­konur sínar eða fjöl­skyldu og eru dug­legri að leita sér hjálpar. Það er bara stað­reynd að konur leita sér frekar lækn­inga. Það sá ég mjög vel meðan ég praktíser­aði sjálfur, þó það hafi breyst nokkuð með árunum.“

„Ef körlum líður illa fara þeir frekar að berja ein­hverja, eða drekka brenni­vín, frekar en að setj­ast niður og tala um líðan sína“

Spurður hvort hann hafi greint ein­hverja breyt­ingu þarna á, ein­hverja við­horfs­breyt­ingu á þeim ára­tugum sem hann praktíser­aði geð­lækn­ingar, ját­aði hann því. „Vissu­lega hefur það orðið og það eru í dag miklu minni for­dómar gagn­vart geð­rösk­unum en var. Menn eru til­bún­ari til að leita sér aðstoðar en það vantar samt herslumun­inn á til að karlar stígi fram og segi: Heyrðu, ég er þung­lyndur og ég þarf ein­hverja aðstoð.“

Forvarnarverkefni fjaraði út eftir hrunið

Um alda­mótin komu fram nokkrir árgangar karl­manna þar sem sjálfs­vígs­tíðni var mjög há. Högni segir að engar skýr­ingar hafi fund­ist á því hví svo hafi verið. Bylgja sjálfs­víga hafi farið yfir Aust­firði um 1990 en það sem gerð­ist um alda­mótin hafi verið með öðrum hætti og ekki fund­ist skýr­ing á. Þetta sést vel á ógn­væn­legum fjölda sjálfs­víga karl­manna árið 2000 en það ár sviptu 42 karlar sig lífi, flestir á aldr­inum 18 til 29 ára, 18 tals­ins.

Staðan þá hafi orðið til þess að Land­lækn­is­emb­ættið setti árið 2003 af stað for­varn­ar­verk­efni gegn þung­lyndi og sjálfs­vígum, sem Högni tók að sér að stýra og hlaut það nafnið Þjóð gegn þung­lyndi. Högni segir að þetta hafi verið við­bragð við hinum mikla fjölda sjálfs­víga áranna á undan. Aflað hafi verið fjár­muna frá einka­að­ilum og sveit­ar­fé­lögum sem hafi skilað sér í því að hægt var að koma verk­efn­inu vel úr hlaði. Einblínt var á þung­lyndi, enda það und­ir­rót flestra sjálfs­víga að því talið er. Högni segir verk­efnið hafa rúllað ágæt­lega, eins og hann kallar það, en svo hafi fjár­mála­hrunið orðið 2008. Við það hafi pen­ing­arnir horfið og fjarað undan verk­efn­inu. Síðan, segir Högni, hafi lítið verið að ger­ast í mála­flokknum en nú sé vilji til að láta til sín taka.

„Mein­ingin er að setja af stað verk­efni sem er á svip­uðum nótum og Þjóð gegn þung­lyndi var. Þótt tíðni sjálfs­víga hafi lækkað lít­il­lega hér á landi þá erum við enn þá á eftir Norð­ur­lönd­unum og þurfum að gera miklu meira í þessum málum. Í Finn­landi og Danmörku til að mynda var sjálfs­vígs­tíðni mjög há fyrir alda­mótin en þar hefur hún lækkað lang­mest síðan þá. Það hafa verið for­varn­ar­verk­efni í gangi á öllum Norð­ur­lönd­unum  en það sem hamlar okkur Íslend­ingum í þessu er að við erum svo lítil þjóð, okkar stofn­anir eru svo mann­fáar, hvað sem stjórn­ar­and­staðan eða aðrir segja í þessu efni. Ég var til að mynda á nor­rænum sér­fræð­inga­fundi í júní síð­ast­liðnum og mætti þar einn héðan en ann­ars staðar voru teymi fólks og þannig er mun­ur­inn. For­varnir gegn sjálfs­vígum eru hér á landi kannski á ábyrgð einnar mann­eskju hjá Land­lækn­is­emb­ætt­inu, sem er síðan kannski ekki nema í hálfu starfi við það verk­efni.“

Sem fyrr segir vill Högni að umrætt for­varn­ar­verk­efni bein­ist að körlum. Hlut­fallið milli kynj­anna hafi enda verið þannig að á móti hverri einni konu séu það 3,2 karlar sem svipti sig lífi. Þannig hafi það verið mjög lengi, þó hlut­föllin sveiflist aðeins. Sjá má á tölum Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, þegar horft er á tíu ára með­al­fjölda, að á ára­bil­inu 2002 til 2011 var hlut­fallið 1 á móti 3,1 og á ára­bil­inu 2012 til 2021 var hlut­fallið 1 á móti 3,4.

Íslendingar ekki öðruvísi en aðrir

Eins og áður er nefnt er talið að stærstan hluta sjálfs­víga megi rekja til þess að fólk hafi áður þjáðst af þung­lyndi. Högni segir að tölur þar um séu þó nokkuð á reiki. „Því miður höfum við ekki gert neinar inn­lendar rann­sóknir á þessu, það þarf að ger­ast til að hægt sé að skil­greina áhættu­hópana. En það er alveg ljóst að meiri­hlut­inn er þung­lyndur, og áfengi og þung­lyndi saman er eitur þegar menn eru í upp­námi. Stundum kemur þetta þó eins og þruma úr heið­skíru lofti. Við þurfum því að ná að greina íslensku áhættu­hópana, það er ekki nóg að fara í erlendar rann­sóknir og yfir­færa þær.“

„Þung­lyndi skeytir engu um stétta­skipt­ingu“

Þegar blaða­maður tekur undir mik­il­vægi þessa og nefnir að ýmis­legt hér á landi sé öðru­vísi en ann­ars staðar, þar á meðal að vetur hér séu bæði langir og harðir og talað hafi verið um að það hafi áhrif til auk­ins þung­lyndis, glottir Högni og svarar: „Já, en það er nú bara ekki þannig. Jú, auð­vitað geta erf­iðir vetur lagst á fólk. En við erum alveg sam­bæri­leg við hin Norð­ur­löndin. Það er sama þjóð­fé­lags­kerfi, svipuð póli­tík, heil­brigð­is­kerfi og mennta­kerfi eru sam­bæri­leg. Tölu­verður hluti ann­arra Norð­ur­landa­búa býr á svip­uðum slóðum og Íslend­ingar, í Norður-Noregi, Norður-Svíþjóð og Finn­landi. Við getum því alveg nýtt þeirra reynslu, og gerum það, en við þurfum líka að gera okkar rann­sóknir til að segja okkur hvernig við getum best gripið inn í. Þær rann­sóknir vantar að mestu leyti. Þetta kallar á pen­inga og ein­hvern sem getur helgað sig þessu að fullu.“

Þrátt fyrir að rann­sóknir vanti segir Högni þó að almennir áhættu­þættir er varða sjálfs­víg séu þekktir. „Það er fyrst og fremst þung­lyndi sem þar er undir. Þung­lyndi fer ekki í mann­grein­ar­á­lit, það er algjör­lega óháð menntun, vinnu, búsetu, kyni eða öðru. Þung­lyndi skeytir engu um stétta­skipt­ingu, það getur lagst á alla. Við þekkjum þessa almenna áhættu­þætti, þung­lyndi, áfeng­is­neyslu ef hún er sam­fara þung­lyndi, skap­gerð­ar­bresti, hvat­vísi, lélega reiði­stjórnun. Búi karl­menn einir á miðjum aldri eru þeir mögu­lega frekar útsettir fyrir van­líðan. Svo eru það auð­vitað áföll, dauðs­föll í fjöl­skyld­unni, maka­missir, atvinnu­missir, allt getur það haft áhrif.“

Verður að gera sálfræðiþjónustu aðgengilegri

Hvenær tekst að koma mið­stöð for­varna gegn sjálfs­vígum á lagg­irnar er enn ekki alveg ljóst en Högni ásamt öðrum, þar á meðal verk­efn­is­stjóra Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, vinna hörðum höndum að und­ir­bún­ingnum. Horft er til þess að ná til yngri karl­manna í skól­unum og þeirra sem eldri eru á vinnu­stöðum en þar fyrir utan yrði allt fræðslu- og for­varn­ar­efni raf­rænt og hægt að nálg­ast það með ýmsum hætti. Þá sé mjög mik­il­vægt að takast megi að ná utan um það sem þegar er verið að gera og styðja þar við. Högni nefnir sam­starfs­verk­efni heilsu­gæsl­unnar og Land­spít­ala sem felst í að greina þung­lyndi og sjálfs­vígs­hættu. Hann leggur einnig áherslu á að fleiri komi að verk­efn­inu, til að mynda Píeta-sam­tökin, Bergið, Sorg­ar­mið­stöð, Geðhjálp og Hjálp­ar­sími Rauða kross­ins 1717.

Einn vand­inn sem takast verði á við sé að þegar tekst að hleypa verk­efn­inu af stokk­unum verði jafn­framt að verða búið að tryggja það að menn sem náist til, sem sjái fræðslu­efni og leiti í fram­hald­inu hjálpar, hafi tryggan stað að leita á. „Það þarf að und­ir­búa það alveg sér­stak­lega vel vegna þess að ef fólk hringir í geð­lækni á stofu þá fær fólk alla jafna þau skila­boð að það sé hálfs árs bið, eða þaðan af meira. Bráða­mót­taka geð­deildar Land­spít­ala gerir sitt besta en það þarf mun meira til. Sértæka mót­töku sem tryggir að öllum beiðnum verði strax svarað og vel skipu­lögð eft­ir­fygld tryggð. Það er ekk­ert gagn að þessu öðru­vísi,“ segir Högni. Hann tekur þá undir ákall þess efnis að þjón­usta sál­fræð­inga verði gerð fólki mun aðgengi­legri og hún verði nið­ur­greidd. Und­ar­legt sé að af því hafi enn ekki orðið, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar stjórn­mála­manna þar um sem ná ára­tug eða ára­tugi aftur í tím­ann. „Það er alveg ljóst að það þarf að ger­ast,“ segir Högni með miklum þunga.

Högni hætti eigin lækna­stofu­rekstri í febr­úar á síð­asta ári, þá 77 ára gam­all. Sér­fræði­lækn­ingar hóf hann að stunda árið 1980 og því var hann starf­andi geð­læknir, sinnti sjúk­lingum, í fjöru­tíu ár. Spurður hvort hann hafi á þeim ára­tugum sinnt mörgum sjúk­lingum sem sviptu sig lífi svarar hann: „Já, það gerð­ist vissu­lega hjá mér eins og öðrum. Ekki oft en það gerð­ist. Það er alltaf erfitt fyrir okkur lækna, sál­fræð­inga, heil­brigð­is­starfs­fólk, að takast á við slíkt. Það þarf að taka því alvar­lega og setj­ast niður, fara yfir hvað gerð­ist. Af hverju misstum við? Hvað getum við gert öðru­vísi? Við þurfum að spyrja hvernig fólki líður því það situr oft eftir með sjálfs­á­sak­anir og sekt­ar­kennd. Stundum kom þetta mér full­kom­lega á óvart og þá þurfti líka að meta það.“

Spurður hversu lengi hann sjái fyrir sér að helga krafta sína þessum störfum segir Högni að hann hafi, eftir að hann hætti eigin rekstri, ákveðið að nýta tíma sinn og orku í verk­efnið. Hann sé vel í sveit settur til þess, hafi þekk­ingu, reynslu, sam­bönd bæði innan- og utan­lands auk þess sem hann sé mark­þjálfi og komi því að verk­efni sem þessu með breitt svið. „Ég geri þetta, ég segi ekki fram í and­látið, en svo lengi að ég geti fylgt þessu vel úr hlaði.“


Ef þú eða ein­hver sem þú þekkir glímir við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og net­spjall Rauða kross­ins 1717.is, sem opin eru allan sól­ar­hring­inn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráð­gjöf í síma 552-2218, allan sól­ar­hring­inn. Net­spjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkr­un­ar­fræð­ingur er líka opið frá kl. 8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi má fá stuðn­ing í sorg hjá Sorg­ar­mið­stöð og hjá Píeta-sam­tök­unum.
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár