Farsóttarhús

Nú kann les­anda að þykja smá­muna­semi ráða skrifum, en þá er til þess að líta að hér er á ferð­inni frá­bært rit um ein­stakt efni unnið af alúð og góðri yfir­sýn. Ekki verður aftur gefin út bók af þessu tagi. Hér verður því að gera ítr­ustu kröfur til útgef­anda en þær stenst höf­undur að nær öllu leyti, skrifar Páll Baldvin um bók­ina Farsótt.

Farsóttarhús
Bók

Farsótt

Hundrað ár í Þingholtsstræti 25
Höfundur Kristín Svava Tómasdóttir
Sögufélag
350 blaðsíður
Gefðu umsögn

Bók um Farsótt gefur Sögu­fé­lagið út með styrk Starfs­launa­sjóðs fræði­manna, Reykja­vík­ur­borgar og Mið­stöðvar íslenskra bók­mennta. Grip­ur­inn er glæsi­legur útlits, rétt 350 síður í 17,5 x 23,5 sm broti, bókin er að hluta lit­prentuð, með ríf­lega hund­rað myndum, einu inn­skots­blaði, heim­ilda- og mynda­skrá, enskum útdrætti og nafna­skrá. Neð­an­máls­greinar bæta upp­lýs­ingum við til­vitn­anir og heim­ildir. Verkið er sem­sagt eins vandað og það getur orðið, efnið er nýstár­legur sam­setn­ingur sam­fé­lags­lýs­ingar og per­són­u­sögu með Far­sótt­ar­húsið við Þing­holts­stræti sem ramma á hund­rað ára tíma­bili frá 1884 til 1984 en á því tíma­bili gegndi húsið fjöl­þættu hlut­verki í heil­brigð­is­þjón­ustu lands­manna.

Höfundur þessa verks er Kristín Svava Tóm­as­dóttir, sagn­fræð­ingur og skáld, og er sómi að verki hennar. Far­sóttin var þegar ég flutt­ist í Þing­holtin orðin að hæli fyrir heim­il­is­lausa drykkju­menn. Þeir sáust lítið í efri hluta Þing­holt­anna, dróg­ust upp úr Kvosinni er líða tók að opnun og áttu þar vísa næt­ur­gist­ingu. Þeirra saga er fjórði hluti …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár