Ríkið úthlutaði fyrirtækjum norsks eldisrisa kvóta þvert á lög

Byggða­stofnun gerði samn­ing um úthlutun 800 tonna byggða­kvóta á ári í sex ár í því skyni að treysta byggð á Djúpa­vogi. Þetta gerði Byggða­stofnun þrátt fyrir að fyr­ir­tækin sem hún samdi við séu í meiri­huta­eigu norskra lax­eld­is­risa og að íslensk lög banni slíkt eign­ar­hald í íslenskri útgerð.

Ríkið úthlutaði fyrirtækjum norsks eldisrisa kvóta þvert á lög
Samn­ing­ur­inn skilar sínu Samkvæmt svörum frá Byggða­stofnun á kvót­inn þátt í því að skapa um 50 störf á Djúpa­vogi. Janes Garðar Helgason, fram­kvæmda­stjóri Laxa, segir að samn­ing­ur­inn hafi sann­ar­lega skilað sínu fyrir bæinn. Mynd: Laxar

Byggða­stofnun hefur í fjögur ár úthlutað kvóta að verð­mæti rúm­lega 300 millj­ónir króna árlega til fyr­ir­tækja í meiri­hluta­eigu norsks lax­eld­is­fyr­ir­tækis. Um er að ræða svo­kall­aðan byggða­kvóta, sem er úthlutað end­ur­gjalds­laust, og er til­gang­ur­inn að styrkja byggð á Djúpa­vogi. Slík úthlutun er þvert á lög um fjár­fest­ingu erlendra aðila í íslenskum sjáv­ar­út­vegi.

Í svari Byggða­stofn­unar til Stund­ar­innar kemur fram að eign­ar­hald fyr­ir­tækj­anna hafi ekki verið kannað árið 2018 þegar gerður var samn­ingur um úthlutun kvót­ans til sex ára. Stofn­unin hafi ekki áttað sig á því fyrr en í sumar að fyr­ir­tækin væru í meiri­hluta­eigu erlendra aðila.  

Áætlað virði kvót­ans er um 320 millj­ónir króna á ári, miðað við leigu­verð á afla­heim­ildum á mark­aði nú um stundir. Þar sem samn­ingur Byggða­stofn­unar við fyr­ir­tækin er til sex ára, frá 2018 til 2024, má áætla að heild­ar­verð­mæti byggða­kvót­ans á samn­ings­tím­anum nemi rúmum 1.900 …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kvótaúthlutanir Byggðastofnunar

SkýringKvótaúthlutanir Byggðastofnunar

Áralangt karp um byggða­kvót­ann: Alþingi sam­þykkir gerð skýrslu

Beiðni um að Rík­is­end­ur­skoðun geri skýrslu um úthlutun Byggða­kvóta var sam­þykkt á Alþingi í síð­ustu viku. Sigurjón Þórð­ar­son, vara­maður í stjórn Byggða­stofn­unar, segir að Byggða­stofnun sé að fram­fylgja póli­tískum vilja Fram­sókn­ar­flokks­ins við úthlutun byggða­kvóta. For­stjóri Byggða­stofn­unar, Arnar Elíasson, segir gagn­rýn­ina byggða á mis­skiln­ingi.
FréttirKvótaúthlutanir Byggðastofnunar

Segir óráðsíu og eft­ir­lits­leysi ríkja í úthlutun á millj­arða króna byggða­kvóta

Tæplega tveggja millj­arða byggða­kvóta er úthlutað árlega frá íslenska rík­inu. Úthlutun á rúm­lega 300 millj­óna byggða­kvóta til fyr­ir­tækja á Djúpa­vogi sem eru í meiri­hluta­eigu norskra lax­eld­is­fyr­ir­tækja var brot á lögum. Byggða­stofnun hefur breytt verk­lagi sínu vegna þessa máls. Sigurjón Þórð­ar­son, vara­maður í stjórn Byggða­stofn­unar, segir óverj­andi hvernig byggða­kvót­anum er úthlutað.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár