Aftökusundlaugin í Kabúl

Sögur Sigríðar Víðis Jóns­dóttur eru listi­legur vefn­aður per­són­u­sögu, hvers­dags­legra við­burða, blaða­mennsku, sagn­fræði og sagna af fólk­inu sem hún hittir. Bjarma­lönd Vals Gunn­ars­sonar og mynda­sögur Joe Sacco koma upp í hug­ann, en Sigríður fer þó alltaf eigin leiðir í frá­sögn­inni og úr verður leiftr­andi fróð­leg, skemmti­leg og hug­vekj­andi bók sem á alltaf brýnt erindi – en kannski aldrei sem nú

Aftökusundlaugin í Kabúl
Sigríður Víðis Jóns­dóttir Höfundur bók­ar­innar Vegabréf: íslenskt.
Bók

Vegabréf: íslenskt

Frá Afganistan til Bosníu og Búrkína Fasó
Höfundur Sigríður Víðis Jónsdóttir
Mál og menning
Gefðu umsögn

„Hér tóku þeir fólk af lífi. Ýttu því fram af hæsta stökk­brett­inu – niður í tóma laug­ina, um 15 metrum neðar. Eða skutu fólk ein­fald­lega ofan í henni. Menjar um drápin sjást í steyp­unni, för eftir byssu­kúlur. Aftöku­sund­laugin var alræmd.“

Það er nóg af svona sögum í Vegabréf: Íslenskt eftir Sigríði Víðis Jóns­dóttur, en líka nóg af hlátri og gleði, djúpri vin­áttu og von – sem er þó alltof oft kramin.

Þessi aftöku­sund­laug er í Kabúl í Afganistan og þegar hún kemur þangað eru heima­menn að spila fót­bolta í laug­inni. Bókin rekur tíu mis­mun­andi ferða­lög ára­tug­inn 2003-12 til landa sem eiga í stríðs­á­tökum eða eru að ná sér eftir þau, eða eru föst í greipum fátæktar, hung­ursneyðar eða spill­ingar. Oft allt þetta.

Auk Afganistan er komið við í Mjanmar, Katar, Bosníu, Eþíópíu, Rúanda, Suður-Súdan, Sýrlandi, Írak, Palest­ínu, Ísrael og Búrkina Fasó – og loks er stuttur eft­ir­máli …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár