Myndin af mömmu

Sakn­að­arilmur er bók skrifuð af hug­rekki og inni­legri löngun til þess að skýra og skil­greina flókið mæðgna­sam­band. Helstu höf­und­ar­ein­kenni Elísa­betar Jök­uls­dóttur eru nán­ast bernsk ein­lægni, fyndni og svo­lít­ill óhemju­skapur í stílnum.

Myndin af mömmu
Elísabet Jök­uls­dóttir Höfundur bók­ar­innar Sakn­að­arilmur. Mynd: Heiða Helgadóttir
Bók

Sakn­að­arilmur

Höfundur Elísabet Jökulsdóttir
Mál og menning
Gefðu umsögn

Í upp­hafi Sakn­að­arilms segir sögu­konan Elísabet frá því þegar hún býður móður sinni í sunnu­dagslæri, en mat­ar­boðið endar með ósköpum. Kvöldið áður hefur dóttirin verið í sjón­varps­við­tali og móð­irin gagn­rýnir hana fyrir að hafa ekki talað rétta íslensku. Henni finnst hún líka hafa sagt of mikið, sagt rangt frá og hún er ósátt við hvaða orð hún valdi að nota. Þessar sam­ræður mæðgn­anna um það sem sagt er, hvaða orð eru notuð og ekki notuð enda með því að krabba­meins­sjúk móð­irin rýkur grát­andi á dyr.

*

Í hvers konar sjálfs­vinnu er fólki ráð­lagt að „setja orð á til­finn­ingar sínar“. Þá er víst auð­veld­ara að bera kennsl á þær, greina á milli þeirra og fást við þær. Elísabet Jök­uls­dóttir er líka mjög upp­tekin af orð­unum. Hvaða orð eru sögð, ósögð og hvernig fólk notar orðin. Bókin Hvaða ferða­lag er á þér? (2019) er flæði orða og orða­til­tækja sem móðir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár