„Sérkennileg blanda af hefðarsinna og róttæklingi“

Spænski rit­höf­und­ur­inn Javier Marías lést nú í sept­em­ber. Hann er af mörgum tal­inn vera einn fremsti rit­höf­undur Spánar á síð­ustu ára­tugum. Íslenskir rit­höf­undar eins og Jón Kalman Stef­áns­son, Hermann Stef­áns­son og Eiríkur Guð­munds­son höfðu dálæti á honum og Guð­bergur Bergsson var vinur hans. Íslenskur þýð­andi Marías, Sigrún Á. Eiríks­dóttir, seg­ist ætla að þýða meira eftir hann.

„Sérkennileg blanda af hefðarsinna og róttæklingi“
Er ekki hætt Sigrún Ástríður Eiríks­dóttir, sem þýddi einu bók­ina sem komið hefur út á íslensku eftir Javier Marias, seg­ist ekki vera hætt og að mark­miðið sé að þýða aðra bók eftir hann, þekktasta verk hans Svo hvítt hjarta. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Hann var í raun ein­hver sér­kenni­leg blanda af hefð­ar­sinna og rót­tæk­lingi,“ segir Hermann Stef­áns­son rit­höf­undur, sem kynnt­ist verkum spænska rit­höf­und­ar­ins Javier Marías þegar hann bjó á Spáni fyrir um tveimur ára­tugum síðan. Marías er af mörgum tal­inn einn helsti rit­höf­undur Spánar á síð­ustu ára­tugum. 

Javier Marías lést í Madríd þann 11. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og var minnst á mörgum víg­stöðvum í spænsku sam­fé­lagi. Meðal ann­ars sagði for­sæt­is­ráð­herra Spánar, Pedro Sánchez, um hann á Twitter: „Sorg­ar­dagur fyrir spænskar bók­mennir. Javier Marías, einn stærsti rit­höf­undur okkar tíma, hefur yfir­gefið okkur.“

Marías var oft orð­aður við Nóbels­verð­launin í gegnum árin en fékk þau aldrei. 

Fórn­ar­lamb og snill­ingurGuð­bergur Bergsson rit­höf­undur, sem þekkti Javier Marías, segir að hann hafi verið fórn­ar­lamb og snill­ingur.

Skrifaði vikulega pistla í stærsta blað Spánar

Marías var það sem kall­ast „opin­ber menn­ing­ar­viti“ (e. public intellectual), maður sem tók virkan þátt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár