Kannast ekki við óreglu uppljóstrara og vísar fullyrðingum um slíkt til Samherja

Allur vitn­is­burður um óreglu Jóhann­esar Stef­áns­sonar, upp­ljóstr­ara Sam­herj­a­skjal­anna, er kom­inn frá starfs­fólki Samherja; þeim hinum sömu og lögðu á ráðin um að koma í veg fyrir vitn­is­burð hans í Namibíu. Þetta full­yrti einn sak­born­ing­anna, Tamson Hatuikulipi , fyrir dómi.

Kannast ekki við óreglu uppljóstrara og vísar fullyrðingum um slíkt til Samherja
Á Íslandi Eitt af því sem til umræðu var fyrir dómi voru boðs­ferðir Samherja til handa Tamson og frænda hans James Hatuikulipi, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar Fishcor, og Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóm­st­mála­ráð­herra í Namibíu, til Íslands. Þeir eru allir grun­aðir um að hafa þegið mútur frá Samherja í skiptum fyrir fisk­veiði­kvóta fyrir Samherja að veiða.

Einn aðal­sak­born­ing­ur­inn í Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu seg­ist ekki kann­ast við óreglu í líf­erni upp­ljóstr­ar­ans Jóhann­esar Stef­áns­sonar á meðan þeir voru í reglu­legum sam­skiptum. Tamson Hatuikulipi, tengda­sonur fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, sat fyrir svörum fyrir dómi 30. ágúst síð­ast­lið­inn vegna kröfu sinnar um að vera leystur úr varð­haldi gegn trygg­ingu. Hann hefur mátt dúsa í fang­elsi allar götur frá því að málið var afhjúpað í sam­starfi Kveiks, Stund­ar­innar og Wikileaks árið 2019. 

„Ég hef aldrei séð hann nota kókaín,“ sagði Tamson áður en hann svar­aði spurn­ingum um hversu mikið hann ferð­að­ist með Jóhann­esi og hversu náið unnið með honum. Allt hefði gengið smurt í rekstr­inum og Tamson sagð­ist aldrei hafa orðið áskynja ann­ars en að Jóhannes væri áreið­an­legur. Tamson sagð­ist aldrei hafa gert neinar athuga­semdir við starf­sem­ina undir stjórn Jóhann­esar, óstjórn né nokkuð annað í hans …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örvar Geirsson skrifaði
    ef fólk notar ólögleg fíkefni er þá bara ekkert að marka það sem það segir ? alveg sama þótt það hafi nó af sönnunum fyrir sínu máli ? er þá sönnunargögn ómarktæk ! Kannast við það pg þekki til ! þú hefur ekki mannréttindi heldur ef þú notar ólögleg hugbreytandi efni ! og nýttur ekki verndar stjórnarskránar! þú er afmannskaður og það er það sem þeir sem þessu kast fram sér til málastuðings treysta á því þanning er með fólk farið sem hægt er að tengja við neyslu ólöglegra vímuefna !
    0
  • Sigrún Torfadóttir skrifaði
    Hver skyldi tilgangur bloggistans og þráhyggju mannsins Páls Vilhjálmssonar vera. Dag eftir dag og mánuð eftir mánuð tönnlast hann og reynir að koma sök á Jóhannes, RÚV, Kjarnann og Stundina. Gæti verið að hann sé á launum hjá Samherja? Ég bara spyr.
    7
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Er ekki spurningin frekar þessi:
    Á hvaða efnum er skæruliðasveitin Á?
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár