897. spurningaþraut: Hér er spurt um mýs á Íslandi, sannið til

897. spurningaþraut: Hér er spurt um mýs á Íslandi, sannið til

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða þjóð­fáni er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er Cornwall-skagi?

2.  Hver skrif­aði bók­ina Oliver Twist?

3.  En hver gaf út bók­ina Hús and­anna (eins og hún heitir í íslenskri þýð­ingu) árið 1982?

4.  Hversu margar músa­teg­undir lifa villtar á Íslandi? Athugið að þótt rottur séu náskyldar músum er hér aðeins spurt um litlu mýsnar.

5.  Hvað er huðna?

6.  Sahara er langstærsta eyði­mörk heims­ins. Heitið Sahara er komið frá arab­íska nafn­orð­inu ṣaḥrāʾ. Hvað þýðir það?

7.  Hver orti: „Stekkja­staur kom fyrstur, stinnur eins og tré. Hann laum­að­ist í fjár­húsin og lék á bónd­ans fé.“

8.  Árið 1928 fengu konur í fyrsta sinn að keppa í frjálsum íþróttum og fim­leikum á Ólymp­íu­leikum, en áður höfðu þær aðeins keppt í greinum eins og tennis, reið­mennsku, golfi, sigl­ingum og krokkett. Margir innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar mót­mæltu þessu og einnig komu harð­orð mót­mæli frá ákveðnu sjálf­stæðu ríki í Evrópu, sem aldrei hefur þó sjálft sent kepp­endur á ólymp­íu­leika. Hvaða ríki var svona á móti því að konur fengju að keppa?

9.  Annars þykja þessir ólymp­íu­leikar m.a. minn­is­stæðir fyrir þá sök að þar vann banda­rískur sund­kappi tvö gull­verð­laun en hafði áður unnið þrjú á fyrri ólymp­íu­leikum. Hann var einnig fræg­asti íþrótta­maður heims en tók nú að hasla sér völl í kvik­myndum?

Svo fæst ólymp­íu­stig fyrir að vita, HVAR voru ólymp­íu­leik­ar­arnir haldir árið 1928?

10.  Íslenskur tón­list­ar­maður og tón­skáld gaf út fyrstu sóló­plötu sína 2008. Platan hét Mount A og tón­skáldið spil­aði, trúi ég, á öll hljóð­færi. Tón­listin þótti mögnuð og svo­lítið drunga­leg, selló var þarna gjarnan í aðal­hlut­verki. Síðan hefur tón­skáldið haslað sér ræki­lega völl. Hvað heitir tón­skáldið?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bret­landi.

2.  Dickens.

3.  Isabel Allende.

4.  Tvær. 

5.  Kvendýr geitar.

6.  Eyðimörk.

7.  Jóhannes úr Kötlum.

8.  Vatíkanið.

9.  Johnny Weissmuller. Og ólymp­íu­leik­ar­arnir voru í Amster­dam í Hollandi.

10.  Hildur Guðna­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fáni Nepals.

Á neðri mynd­inni er tenn­is­stjarnan Serena Williams.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Halldór Jónsson skrifaði
    Vatikanið varð ekki sjálfstætt ríki fyrr en 1929 með samningum við Ítalíu sem kenndur er við Lateran höllina.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár