898. spurningaþraut: Akrafjall, Skarðsheiðin eða Esjan?

898. spurningaþraut: Akrafjall, Skarðsheiðin eða Esjan?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir karl­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Nokkurn veg­inn hversu margir búa í Evr­ópu­sam­bands­lönd­unum? Eru tæp­lega 500 millj­ónir, tæp­lega 1.000 millj­ónir, tæp­lega 1.500 eða tæp­lega 2.000 millj­ónir?

2.  Hvað hét sýslu­maður sá í Húna­vatns­sýslu sem lét fram­kvæma síð­ustu aftöku á Íslandi?

3.  Og hvenær var það? Var það 1780 — 1800 — 1830 — 1860 — eða 1890?

4.  En hvað er fjöl­menn­asta ríkið af þeim sem við köllum Arabalönd? — Þar er Íran vel að merkja ekki talið með.

5.  Í hvaða landi er dag­blaðið Guardian gefið út?

6.  Í hvaða fjall­lendi er Téténía?

7.  Fyrir norðan Reykja­vík blasa við Akra­fjall, Skarðs­heiðin og Esjan. Hvert af þessum fjöllum er hæst?

8.  Hvar var fyrsti bisk­ups­stóll á Íslandi stofn­aður?

9.  Hvað hét myntin í Frakk­landi áður en evran kom til sög­unnar?

10.  Hver lék Hörpu Sjöfn Her­mund­ar­dóttur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dýr má sjá hér? Þið þurfið að þekkja það með nafni.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tæplega 500 millj­ónir.

2.  Björn Blöndal.

3.  1830.

4.  Egifta­land. Það búa reyndar tölu­vert fleiri í Egifta­landi en Íran.

5.  Bret­landi.

6.  Kákasus-fjöllum.

7.  Skarðs­heiði er 1.058 metrar, Esjan 914 og Akra­fjall mun lægra.

8.  Í Skál­holti.

9.  Franki.

10.  Ragn­hildur Gísla­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Andropov leið­togi Sov­ét­ríkj­anna 1982-1983.

Á neðri mynd­inni er Sleipnir, hestur Óðins úr nor­rænu goða­fræð­inni.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Gaman. 10 réttir af 10 og 2 af 2 aukaspurningum. (Kemur því miður sjaldan fyrir.)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár