896. spurningaþraut: Hvaðan kemur sá illúðlegi dreki?

896. spurningaþraut: Hvaðan kemur sá illúðlegi dreki?

Auka­spurn­ing:

Í hvaða sjón­varps­s­eríu birt­ist þessi voða­legi dreki?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Prag?

2.  En í hvaða landi er höf­uð­borgin Tblisi?

3.  Hvaða opin­bert tungu­mál í Evr­ópu­ríki er skyld­ast finnsku?

4.  Sá sem keyrir hring­veg­inn í norður frá Borg­ar­nesi keyrir næst gegnum þétt­býl­is­stað ... hvar?

5.  Hvaða tölvu­fyr­ir­tæki stofn­aði Steve Jobs með öðrum?

6.  Í hvaða evr­ópskri stór­borg eru flestir skýja­kljúfar? Er það Berlín — Frank­furt — London — Madrid — eða Moskva? 

7.  Nýtt land­dýr nam land á Íslandi laust upp úr 1930. Dýr af til­tek­inni teg­und var þá ræktað á nokkrum stöðum en ein­hver dýr sluppu úr gæslu og lögð­ust út á fáeinum stöðum. Nú á síð­ustu ára­tugum hefur þessum dýrum fjölgað tölu­vert í nátt­úr­unni, sem og á mannauðum svæðum inni í bæjum, en þar er yfir­leitt um að ræða gælu­dýr sem hafa sloppið úr haldi eða verið sleppt. Hvaða dýr eru þetta? 

8.  Hver var for­sæt­is­ráð­herra á Íslandi alda­móta­árið 2000?

9.  Hversu margar holur eru á golf­velli sam­væmt alþjóðastand­ard?

10.  Hversu lengi er öfl­ugur Formulu 1 kappakst­urs­bíll að fara úr kyrr­stöðu í 200 kíló­metra hraða? Tekur það bíl­inn 3,6 sek­úndur — 6,6 sek­úndur — 9,6 sek­úndur — eða 12,6 sek­úndur?

***

Auka­spurn­ing seinni:

Hver er konan sem tekur hér við Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum 2018?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tékkland.

2.  Georgía.

3.  Eist­neska.

4.  Á Blöndu­ósi.

5.  Apple.

6.  Moskva.

7.  Kanínur.

8.  Davíð Oddsson.

9.  18 holur.

10.  3,6 sek­úndur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Drekinn á efri mynd­inni birt­ist í Game of Thrones.

Konan á neðri mynd­inni er Dísella Lár­us­dóttir.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár