885. spurningaþraut: Stórhýsi Jóhannesar Jósefssonar?

885. spurningaþraut: Stórhýsi Jóhannesar Jósefssonar?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að sjá á mynd­inni hér að ofan? Svarið þarf að vera nákvæmt.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða borg ráku Björg­ólfs­feðgar eitt sinn bjór­verk­smiðju við þriðja mann?

2.  Björgólfur Guð­munds­son átti svo um tíma fót­bolta­fé­lag á Englandi. Hvaða félag?

3.  Koh-i-Noor er afar dýr­mætur hlutur, þótt erfitt sé að átta sig á hve dýr­mætur. Hvers konar hlutur er Koh-i-Noor?

4.  Hvaða borg í Þýska­landi varð fyrir gríð­ar­legu tjóni í loft­árásum dag­ana 13.-15. febr­úar 1945?

5.  Hvaða stór­hýsi í miðbæ Reykja­víkur lét Jóhannes Jós­efs­son reisa og var tekið í notkun 1930?

6.  Hvar á land­inu (nokkuð nákvæm­lega) er Djúpavík?

7.  Hvernig fá fugls­unglar í eggi súr­efni? Er það gegnum örlítil göt í eggja­skurn­inni, — eða eru nægar súr­efn­is­birgðir í egg­inu frá upp­hafi, — eða þurfa þeir ekki súr­efni meðan á vist þeirra í egg­inu stendur?

8.  Hver var í und­ar­legu teboði með óðum hatt­ara og fleirum?

9.  Hvað hét sá bróðir Vincents van Goghs sem aðstoð­aði hann mikið gegnum tíð­ina?

10.  Guð­mundur Stein­gríms­son var eitt sinn for­maður stjórn­mála­flokks. Hvaða stjórn­mála­flokks?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan sést hluti af íslensku plötu­umslagi. Hvað nefn­ist platan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  St.Pét­urs­borg.

2.  West Ham.

3.  Demantur.

4.  Dresden.

5.  Hótel Borg.

6.  Á Ströndum. Á Vest­fjörðum er ekki alveg nóg.

7.  Gegnum örlítil göt á skurn­inni.

8.  Lísa í Undra­landi.

9.  Theo.

10.  Bjartrar fram­tíðar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er óperu­húsið í Sydney í Ástralíu. Bæði óperu­hús og Sydney þurfa að vera í svar­inu.

Á neðri mynd­inni er hluti af umslagi plöt­unnar Rokk í Reykja­vík.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár