884. spurningaþraut: Hvað hét maður Megöru?

884. spurningaþraut: Hvað hét maður Megöru?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  App eitt er upp­runa­lega kín­verskt og útgáfa þess þar heitir Douyin. Á Vest­ur­löndum og víðar um heim hefur það náð mik­illi útbreiðslu og ekki síst meðal unga fólks­ins. Þar er það kallað ... hvað?

2.  Hver náði ein­ræð­is­völdum í Íran árið 1979?

3.  Hvar er eyjan Jersey?

4.  Hver semur og syngur svo: „Ó hve ég er orð­inn einn / en fel það fyrir þér / hljótt harm minn ber / veit hvað gerir mér gott en illa get / hætt við göt­unnar seið ...“

5.  Hvaða safn fær flesta gesti árlega?

6.  Í hvaða landi er lengsta brú heims, 168 kíló­metra löng?

7.  Megara hét kona ein. Hún er úr goð­sagna­heimum í landi einu. Megara gekk að eiga karl nokkurn og áttu þau tvö börn en í brjál­sem­iskasti varð hann konu sinni og börnum að bana og varð að leysa ýmsar þrautir í refs­ing­ar­skyni. Hvað hét eig­in­maður Megöru?

8.  Krummi Björg­vins­son heitir tón­list­ar­maður einn. Á árunum um og upp úr 2000 var hann söngv­ari í harð­kjarn­arokk­hljóm­sveit. Hvað nefnd­ist hún?

9.  Annað for­eldri Krumma er einnig tón­list­ar­maður, sem heitir ... hvað?

10.  Í hvaða borg spilar fót­bolta­fé­lagið Juventus? — það er að segja kunn­asta félagið með því nafni.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver heldur hér á boga? Þið megið vel svara hvað hinn heitir, sem stýrir boga­skot­inu, en fáið ekki sér­stakt stig fyrir það!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  TikTok.

2.  Khomeini.

3.  Í Ermar­sundi.

4.  Valdimar. Sjá þennan hlekk.

5.  Louvre-safnið í París.

6.  Í Kína. Þetta er Danyang–Kunshan járn­braut­ar­brú milli Bejing og Shanhai. 

7.  Herkúles, Herakles.

8.  Mínus.

9.  Björgvin Hall­dórs­son.

10.  Tórínó.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Dúmbó.

Á neðri mynd­inni er Höður með bog­ann. Hinn er Loki.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár